Vikan - 11.09.1947, Side 9
VIKAN, nr. 37, 1947
9
Frétta-
myndir
Eitt af furðulegustu flugslysum, sem
um getur í sögu flugmálanna varð
nýlega í 6000 metra hæð yfir Atlants-
hafi i flugvél á leið frá New York til
Parísar. Glerhjálmurinn yfir flug-
mannssætinu sviftist af, og loft-
straumurinn upp um gatið varð svo
mikill, að hann hreif flugmanninn
með sér, og hefir ekkert til hans
spurzt síðan, þrátt fyrir vandlega leit.
Þessi mynd er af flugmanninum,
George W. Hart.
Ralph Windham dómari sat fyrir skömmu í dómarasæti sínu í einkennisbúningi sínum,
skósíðum kufli og með hárkollu, í réttarsalnum í Tel Aviv í Palestínu, þegar grímu-
klæddir menn réðust inn og höfðu hann á brott með sér. Brottnámið var gert í mót-
mælaskyni við dauðadómnum yfir hermdarverkamanninum Dov Gruner. Dómarinn
sést hér ásamt konu sinni, eftir að hann slapp úr gislingunni
Pord og Pirestone eru tvær af ríkustu ættum Ameriku og hafa
báðar grætt á bílum: Ford á framleiðslu bíla og Pirestone á fram-
leiðslu hjólbarða. Á myndinni sjást Martha Firestone og William
Clay Ford, er þau opinberuðu trúlofun sína nú fyrir skömmu. Það
er yngsta-kynslóðin, sem slær saman reitunum.
Þessi hjón eignuðust fjórbura fyrir skömmu. Þau urðu að láta smíða
fyrir sig sérstakan fjórburavagn og sjást þau hér á myndinni vera
að mæla dreidd vagnsins. Kom þá í ljós, að breikka verður útidym-
ar á húsi þeirra til þess að vagninn komist inn.
Þetta er mynd af þrílembdri á með lömb sín.