Vikan - 11.09.1947, Page 13
VIKAN, nr. 37, 1947
13
GLERSKIPIÐ.
Barnasaga.
Hið fyrsta, sem Jón litli sá, er hann
kom inn í stofuna á morgnana var
glerskipið. Hann þreyttist aldrei á
því að horfa á það. Honum virtist það
fegursti hluturinn í stofunni. Stofan
var ekki skrautleg, en viðkunnanleg.
Móðir Jóns var iðin og reglusöm, og
hélt öllu hreinu. Glerskipið stóð á
hillu yfir aminum. Það var fagurlega
málað gullnum, bláum og rauðum
litum. Seglin voru þanin og veifa
blakti á masturstoppi.
Einhverju sinni spurði Jón: „Hvað-
an fengum við skip þetta?“
„Afi þinn kom með það frá Fen-
eyjum. Sú borg er á Italiu. Þar eru
mjög duglegir glerblástursmenn. Þeir
búa til marga dásamlega hluti. Ertu
hrifinn af skipinu?“ mælti móðir
hans.
Jón svaraði: „Mér þykir vænst um
þig, og þar næst um skipið.“
„Sama máli gegndi með föður þinn.
Hann sigldi út á sjóinn — og kom
aldrei aftur.“
Jón þagði. Honum var kunnugt um,
að faðir hans hafði verið stýrimaður
á stóru skipi, er rakst á sker. Mai'gir
skipverjar komust i bátana og björg-
uðust, en sumir hurfu og spurðist
ekkert til þeirra. Og meðal þeirra var
faðir Jóns.
Dag noifkum, er móðir drengsins
þreif húsið fann hún postulinslíkneski.
Það var lítil stúlka í stuttu pilsi með
skrítinn hatt á höfðinu. Er Jón kom
heim úr skólanum sagði móðir hans:
„Taktu eftir! Er hún ekki falleg?
Hún er frá Meisen í Þýzkalandi. Þar
búa menn til ýmislegt á postulíni. Ég
læt hana á arinhilluna við hliðinu á
skipinu.“
Jón varð strax hrifinn af litlu
postulinsstúlkunni. Hann nefndi hana
Lenu kóngsdóttur. Á skipið minntist
hann ekki oftar. Hann vildi ekki ýfa
upp harma móður sinnar.
Þau Jón og móðir hans bjuggu í
litlu þorpi í Englandi. Það stóð ekki
alveg útvið sjó, en þó svo nærri haf-
inu að þau gátu séð það er þau gengu
upp á hæðina, er var í nánd við hús,
þeirra. Hinn salti, raki vindur At-
lantshafsins barst til þeirra. Jón
þráði að verða sjómaður og láta skip
sitt kljúfa hinar grænbláu öldur. En
um þessa þrá sína talaði hann ekki.
Hann vildi ekki styggja móður sína.
Hún harmaði mjög mann sinn.
Vorið var komið. Suðvestanvindur-
inn hafði rekið veturinn út í hafs-
auga. Sólin skein og fuglarnir sungu.
Jón svaf í herbergi sinu. Hann hafði
sofnað glaður mjög. — Skyndilega
sá hann dýrlega sýn. Tunglskinið
flæddi inn í herbergið. Og á silfur-
hvítum tunglskinsblettinum kom skip
siglandi. Skip! Jú, það var glerskip-
ið hans, aðeins miklu stærra og feg-
urra. Möstrin svignuðu, veifumar
blöktu. Skipið stækkaði og stækkaði.
Það varð eins stórt og stærstu skip,
er um höfin sigla. Fram á skipinu
stóð Lena kóngsdóttir. Hún veifaði
til Jóns með stómm blómvendi.
„Komdu með, Jón!“ kallaði hún.
„Fylgstu með yfir bylgjurnar bláu.
Þú ert enginn heigull.“ Jón stökk
fram á skipið. Það sigldi yfir hið
ljómandi haf. Vindurinn söng í reið-
anum. Loftið var eins og tónahaf.
Jón mælti: „Ertu lifandi, Lena kóngs-
dóttir?“
Hún hló. „Vitanlega,“ svaraði hún.
„Komdu, Jón, og heilsaðu gamla
kónginum, föður minum.
Jón sá gamlan mann í gullinni
kápu, með gullkórónu á höfði, koma
í áttina til hans. Hann gekk hægt.
Jón hneigði sig fyrir honum.
Kóngurinn kinkaði kolli og mælti:
„Eg þekki þig, Jón. Þú ert góður
drengur og gætir vel dóttur minnar.“
„Hvað heitir þetta skip?“ spurði
Jón.
„Draumaskipið," svaraði kóngur-
inn. „Við siglum því til drauma- og
óskalandsins. Við siglum til fjarlæg-
ustu staða. Til indælustu staða er
við höfum aldrei augum litið. Allt er
hægt að sjá af Draumaskipinu."
„Getum við ekki fund’ð föður
minn?“ spurði Jón.
„Það getum við,“ svaraði kóngur-
inn. En Lena kóngsdóttir brosti og
mælti. „Við getum flutt föður þinn
heim til móður þinnar."
Jón varð afar glaður. Hann horfði
í allar áttir. Lena stóð yið hlið hans.
Jón sá Robinson Crúsó, sjóræningja
frá löngu liðnum dögum, og margt
annarra manna. Allir voru þeir far-
þegar á Draumaskipinu.
Svo gerðist veðrið vont. Bylgjurn-
ar urðu háar sem fjöll. En annað
slagið kom blíðviðri. Eyjar komu í
sjónmál og hurfu. Jóni virtist sem
sigling þessi hefði staðið margar
vikur. En alltaf var förin jafn
skemmtileg.
„En pabbi! Hvar er pabbi?“ spurði
Jón.
Þá sýndi Lena prinsessa .honum litla
ey. Þar stóð maður og veifaði.
Lena mælti: „Þessi maður er fað-
ir þinn. Nú förum við og sækjum
hann.“
Draumaskipið renndi upp að strönd
eyjarinnar. Og í sömu svifum þekkti
Jón föður sinn. Hann hljóp niður af
skipinu og féll í faðm föður síns.
„Pabbi!" hrópaði Jón. Og í sama
bili vaknaði hann.
„Hvað er að þér?“ spurði móðir
hans.
Jón mælti: „Mamma, ég veit hvar
pabbi er. Hann er ekki dáinn. Eg sá
hann er ég sigldi á Draumaskipinu."
Og hann sagði móður sinni alla sög-
una.
Hún svaraði: „Eg vildi að þetta
væri satt.“
Móðir Jóns andvarpaði, kyssti
hann og sagði honum að halda áfram
að sofa.
Morguninn eftir kom Jón niður i
stofuna. Þar stóð glerskipið og Lena
kóngsdóttir á sínum stað. Það var
sólskin og dásamlegt veður. Jón flýtti
sér í skólann. Hann hugsaði um
drauminn. ■— Er hann kom heim úr
skólanum heyrði hann samtal inni í
stofunni. Hann þekkti röddina, fleygði
skólabókunum og þaut inn.
„Pabbi,“ hrópaði hann og breiddi
út faðminn móti axlabreiða marrnin-
um er sat við borðið.
„Pabbi, þú hefir komið með
draumaskipinu! ‘ ‘
„Draumaskipinu?" sagði faðir
hans.
Jón sagði þá föður sínum allt, sem
hann hafði dreymt. En faðir hans
sagði sína sögu. Hann hafði rekið
á land á lítilli eyju. Og fyrir nokkr-
um vikum hafði skip séð neyðarmerki
hans, komið og bjargað honum.
Nú var hann kominn heim og ætl-
aði aldrei að yfirgefa mæðginin fram-
ar. Hann sagði að síðustu: „Ég ferð-
ast hér eftir aðeins með Draumaskip-
inu.“
Lausn á bridgeþraut í síðasta tölublaði:
4 8, 7, 6, 5
V 8, 2
♦ K, 2
* A, K, D, 7, 6
▲ K, 10, 9, 4, 3, 2
^ 10, 6, 5
+ D, G, 10
* 2
N.
V. A.
S.
4
¥
♦
G
G, 9, 4, 3
9, 8, 7, 6
G, 10, 9, 8
4 Á, D
¥ A, K, D, 7
+ Á, 5, 4, 3
* 5. 4, 3
Suður spilar 6 grönd, vestur lætur út tíguldrottningu. Norður tekur með
kóng og spilar laufás. Suður tekur 3 hæstu í hjarta og tígulás. Spilar vestur
síðan inn á tigulgosa, sem nú neyðist til að spila spaða upp til suðurs. Þegar
suður spilar síðasta spaðanum, kemst austur í augljósa kastþröng og aust-
ur og vestur fá ekki fleiri slagi.
1. Maður kom fram, sendur af Guði;
hann hét Jóhannes. Þessi maður kom
til vitnisburðar, til þess að vitna um
ljósið, til þess að allir skyldu trúa
fyrir hann.
2. Og þessi er vitnisburður Jóhann-
esar, þá er Gyðingar sendu til hans
frá Jerúsalem presta og Levíta til
þess að rpyrja hann: Hver ert þú ? ...
Hann sagði: Ég er rödd manns, er
hrópar í óbygðinni: Gjörið beinan
veg Drottins, eins og Jesaja spámaður
hefir sagt.
3. Daginn eftir sér hann Jesúm
koma til sín og segir: Sjá, guðslamb-
ið, er ber synd heimsins! Hann er sá,
sem ég sagði um: „Eftir mig kemur
maður, sem hefir verið á undan mér;
þvi að hann var fyrri en ég.“
4. Daginn eftir var Jóhannes þar
aftur staddur og tveir af lærisvein-
um hans. Og hann horfði á Jesúm, þar
sem hann var á gangi, og segir: Sjá,
guðs-lambið!