Vikan - 03.03.1949, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 9, 1949
9
i
Fré t ta myn dir
Frederic Joliot-Curie prófessor stjörnar
kjarnorkurannsóknunum í Frakklandi.
Fulgensio Batista, sem á sínum tíma var
alræðismaður á Kúba, er kominn aftur
heim til lands sins eftir fjögurra ára dvöl
í Bandaríkjunum. Hefur hann á ný bland-
að sér í stjórnmálin og hér sést hann halda
fyrstu þingræðu sína eftir heimkomuna.
Ólafur, ríkisarfi Noregs, hefur mikinn
áhuga á kappsiglingum. Tók hann þátt i
alþjóðaráðstefnu um kappsiglingar í
London fyrir skömmu. Var myndin tekin
á þeirri ráðstefnu, en ræðumaðurinn er
Sir Ralph Gore.
Mikil ókyrrð hefur ríkt í París aö undan-
förnu vegna verkfalla. Hefur jafnvel í odda
skorizt milli lögreglu óg verkfallsmanna.
Á myndinni sést einn verkfallsmanna
studdur burtu af félögum sínum eftir við-
ureign við lögregluna á Boulevard Hauss-
mann.
Rússinn Iiravchcnko, liöfundur bókar-
innar ,,Eg kaus frelsið“, hefur stefnt
kommúnistabiaði i París fyrir meiðyrði.
Það var mikið annríki í brúðuverksir.iðj-
unum í París fyrir jólin. Myndin ei af
stúlku í einni verksmiðjunni, sem gætir
þess starfs að setja hárkollurnar á brúð-
urnar.
Seppi þessi heitir Lao Tze og á heima
í Róm. Er hann frægur fyrir hve vitur
hann er og hefur hann hlotið viðurnefnið
„Sómi Rómar". Enginn hundur á Italíu er
jafn oft myndaður og hann og hafa blaða-
ljósmyndarar í Róm gert seppa að heiðurs-
meðlim félags síns.
Þessi ítalska kona þykir mjög skyggn
og segir fyrir um margt. Signora Noþili,
en svó heitir hún, segir að Berlín muni
á þessu ári algjörlega komast undir yfir-
ráð Rússa, að páfinn verði veikur og ein-
veldi komist aftur á í Italíu, sennilega
1950.
Nýlega'yar haldin í París sýning á hlut-
um, unnum úr plasti. Meðal annars á sýn-
ingunni voru plast-hendur ákaflega eðli-
legar.
Nicolaus Horthy, fyrrum rikisstjóri Ung-
verjalands, sem búið hefur i Bayern
síðan 1945, er nú fluttur til Sviss með fjöl-
•kyldu sína. Hér sést Horthy, kona hans
og tengdadóttir vera að kveðja vinina i
Miinchen.