Vikan - 03.03.1949, Síða 10
10
VIKAN, nr. 9, 1949
* HEIM
Matseðillinn
Smásteik.
750 gr. nautakjöt, 2 gulrætur,
1 laukur, 1 tesk. salt, IV2 tesk.
pipar, 50 gr. jurtafeiti, 4 dl.
jurtaseyði, % dl. tomatpurré.
Kjötið er þvegið og skorið í smáa,
ferhyrnda bita. Laukurinn og gulræt-
urnar er hreinsað og skorið smátt.
Þykkur pottur er látinn yfir eld.
Feitin er látin í pottinn og hituð vel.
Grænmetið er brúnað í feitinni, en
tekið upp úr meðan kjötið er brún-
að. Þegar kjötið er orðið brúnað, er
grænmetið og jurtaseyðið látið I
pottinn ásamt einni níatskeið af öli
og tómatpurré, og soðið við hægan
eld í IV2 klst. Kartöflumauk er bor-
ið með.
Bohumjólk.
IV2 1. mjólk, 1 teskeið salt. I
bollurnar: 40 gr. smjör, 50 gr.
hveiti. 1 dl. vatn, 1—2 egg og
salt á hnífsoddi.
Smjörið er hrært saman við hveitið
ásamt vatninu og egginu. Hrært þar
til það losar sig við skeið og skál.
TJr deiginu eru búnar til litlar bollur
með skeið. Þær eru látnar í sjóð-
andi vatn og soðnar í 3—4 mín.,
síðan teknar upp með gataskeið og
lagðar á fat þar til mjólkin er fram-
reidd. Þá eru bollurnar látnar í skál
og sjóðandi mjólk hellt yfir. Kanel
og sykur borinn með.
Hedvig Collin
Framhald af hls. 3.
ust þær ekki í bænum. Jæja, siðar
skrifaði Hedvig Collin frá París:
„París er staðurinn fyrir mig, sem
lifað hef villtu lífi — án villtra rósa!
Eða hvað heldurðu . . .“
H. C. er tryggur og traustur vinur
vina sinna — og óvini sina lætur
hún engu skipta, ef hún á þá nokkra.
Hún dvaldi á Islandi þrjá mánuði
sumarið 1946y og átti þá heima hjá
fjölskyldíi Sigurðar Hlíðar, yfirdýra-
læknis og alþin^ismanns. Þá var hún
heppin með veðrið og sá töluvert áf
landinu, en landslag og litir heilluðu
hana mikið. Hún hélt málverka- og
bókasýningu á Akureyri og eins í
Reykjavík. Svo kom hún aftur árið
eftir, hélt þá enga sýningu, en vann
mikið. Þær sex vikur, sem hún dvaldi
hér málaði hún fjögur olíuiriálverk
af fólki og teiknaði á að gizka átján
myndir, mest af börnum — og var
vel að verið.
H. C. er hrifin af mörgum íslenzk-
um málurum og finnst henni mikil
þörf að reisa hér listasafn. Kjarval
metur hún mest allra íslenzkra mál-
ara, og segir, að hann sé ekki eim
ILIÐ *
Tízkumyrnd
Viðir jakkar hafa verið mjög i
tízku undanfarið.
göngu mestur málari Islands heldur
mestur málari sem nú sé uppi! Ég
hef séð hana standa fyrir framan eitt
af málverkum Kjarvals og bókstaf-
lega tárast af hrifningu . . . Það
geta verið skiptar skoðanir á því,
hve góður málari hún er sjálf, en hún
er heimsfrægur teiknari og viður-
kennd sem listakona . . .
Það er enginn efi á, að hún elskar
Island og allt, sem íslenzkt er og hún
er kona, sem ber hróður Islands víða
um lönd.
Það myndi ekki koma mér á óvart,
að hún Heiðveig Skallagrímsdóttir
ætti eftir að koma til Islands á
hverju sumri héðan í frá.
HÚ5RÁÐ
Þótt steikin brenni er engin ástæða
til að örvænta. Skerðu burtu ^p-ð
brennda, hreinsaðu pottinn eða skúff-
una og smurðu smjöri aftur á kjötið.
Ef vond lykt er úr flöskum og
blómavösum er ráðlegt að blanda
vatni og kaffi til helminga og láta
standa í þeim á heitum stað. Skolað
vandlega á eftir.
Ef geyma á hvíta dúka og rúm-
föt langan tíma þarf að setja bláan
pappír utan um þau, þá gulnar
þvotturinn ekki.
^imi'i'iiiiiiiiiiMimiiiiMiiiiiiifiiiiiiiiiifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiinmaiiiiiiimiiiimiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiimiiiiiiiiiiinK,^
Feimni barna
.......................... Eftir Dr. G. C. Myers.
við fullorðna
Ejölmargir foreldrar skrifa mér og
segja mér frá feimni barna sinna
innan við 6 ára aldur gagnvart full-
orðnum mönnum. Þegar barnið fer
óhikað og óhrætt til ókunnugra, tal-
ar við þá um alla heima og geima
og lætur þá leika við sig eins og
þeir væru móðir þess eða faðir, álita
foreldrarnir að uppeldi barna sinna
sé eins og bezt verði á kosið. En
aftur á móti, ef barnið er feimið
og þegjandalegt í návist ókunnugra,
hleypur sneypt bak við gluggatjöld
eða undir dívan og gegnir ekki einu
orði, ef á það er yrt, óttast foreldr-
arnir um framtíð barns síns og leita
til sérfræðinga í uppeldisfræðum.
En hér er engin hætta á ferðum.
Gætið þess aðeins að neyða ekki upp
á barnið ofmikilli umgengni við full-
orðna og ókunnuga og veitið því at-
hygli, hvenær feimnin fer að fara-
af því. Biðjið fólk þess í fyllstu vin-
semd, að skipta sér ekki af barninu
og forðist að særa það með þvi að
trana því fram, ef það æskir þess
ekki sjálft. Það er iðulega svo í skól-
um og barnastúkum, að börn eru
látin koma fram, lesa upp, syngja
eða skemmta á anna hátt, án þess að
þau hafi í rauninni kjark til þess
að standa frammi fyrir stórum á-
heyrandahóp, sem í eru oft fullorðnir
menn og foreldrar. Ef veslings barn-
inu fipast lesturinn vill oft til, að á-
heyrendur hlæi eða sýni annan hæðn-
issvip og getur slíkt verið viðkvæmu
og feimnu barni hinn versti ógreiði
og verða allir, sem umgangast börn,
að varast slíkt.
Móðir skrifar mér. um feimni
fjögnrra ára barns síns að koma
opinberlega fram. Barnið átti að lesa
upp örstutt ljóð á sunnudagsskóla-
skemmtun, en kennaranum tókst ekki
með nokkru móti að fá það til
þess að fara upp á leiksviðið. Loks
lét stúlkan tilleiðast að syngja jóla-
öll börn kunna að meta snjóinn.
Þessir litlu krakkar þarna á mynd-
inni hafa líka sýnt listræna hæfileika
sína með því að móta í snjó þenna
skringilega karl.
söng með 10 öðrum börnum. „Ég
óttast," segir móðirin, „að þessi
feimni dóttur minnar eigi eftir að
standa henni mjög fyrir þrifum eftir
að hún fer að ganga í skóla.“
Svar mitt er: „Stúlkan er fullkom-
lega eðlileg og þarf engan kvíðboga
að bera fyrir framtíð hennar, ef
.gætilega er að farið. Það sem forð-
ast ber, er að neyða hana til slxkra
aðgerða, sem áður gat, neyða hana
til þess að halda á sér sýningu á
nokkurn hátt eða trana henni fram,
þegar hún vill ekki láta á sér bera.
Feintin börn geta oft verið gædd
dómgreind, sem síðar meir á eftir
að koma þeim í góðar þarfir, og
þegar, er þau finna sjálf köllun hjá
sér til þess að láta að sér kveða, er
engin ástæða til þess að halda aftur
af þeim. En um fram allt forðist að
særa tilfinningar feiminna barna með
því að láta þau í ókunnra návist gera
vandasöm verk, sem þeim eru ekki
geðfelld.
Bréfasambönd
Framhaltl af bls. 2.
Ólafur Skaftason (við stúlkur 17—20
ára), Hólum, Hjaltadal.
Björg Erna Friðriksdóttir (við skáta
17—20 ára), Vallargötu 26, Kefla-
vik.
Guðrún V. Ellefsson (við skáta 17
—20 ára), Kirkjuveg 17, Keflavík.
Birna Helgadóttir (við pilta eða
stúlkur 16—20 ára),
Helga Sæmundsdóttir (við pilta eða
stúlkur 17—21 árs),
Herdís Egilsdóttir (við pilta eða
stúlkur 15—18 ára), allar á Garð-
arsbraut 12, Húsavík.
Gústav Leifsson (við stúlku 14—16
ára, æskilegt að mynd fylgi), Eski-
firði.
Einar B. Hjelm (við stúlku 14—16
ára, æskilegt að mynd fylgi), Eski-
firði.
Erika Petersen (við pilt eða stúlku
12—15 ára, mynd fylgi), Skóla-
vörðustíg 27, Reykjavík.
Sveinn Georgsson,
Kristgeir Kristinsson,
Oddur Jónsson,
(við stúlkur 18—22 ára), allir á
m/b Jóni Magnússyni, Hafnarfirði.
örn Ólafsson (við pilt eða stúlku 15
—18 ára), Hamri við Djúpavog,
Suður-Múlasýslu.
Hildur J. Ingólfsdóttir (við pilta eða
stúlkur 16—19 ára), Helgamagra-
stræti 34, Akureyri.
Margrét H. ögmundsdóttir (við pilta
eða stúlkur 16—19 ára), Helga-
magrastræti 34, Akureyri.
Guðlaugur Jónsson,
G.eir Sigurðsson,
Ólafur Sigurðsson,
(við stúlkur 16—18 ára, mynd
fylgi), allir í Búnaðarbanka Is-
iands, efstu hæð.