Vikan


Vikan - 10.03.1949, Page 12

Vikan - 10.03.1949, Page 12
12 VIKAN, nr. 10, 1949 um. Derek Kettering fann strax til ákafrar löng- unar til að sparka greifanum út úr salnum. Það var aðeins tilhugsunin um, að óheppilegt mundi vera að vekja hneyksli rétt núna, sem hélt aftur af honum. Hann furðaði sig enn einu sinni á, að Ruth skyldi hafa getað þótt vænt um þennan mann, en á því var enginn vafi, að svo hefði veriö. Frekur og ósvífinn, hugsaði Derek. Hann leit með viðbjóði á fagurlega snyrtar hendur greifans. ,,Ég kom í dálitlum viðskiptaerindum," sagöi greifinn. „Ég held það væri ráðlegt fyrir yður að hlusta á mig.“ Aftur greip Derek sterk löngun til að sparka honum út, en hann stillti sig enn. Ógnunin í orðum greifans fór ekki framhjá honum, en hann lagði sína merkingu í hana. Það voru ýmsar á- stæður til þess að ráðlegt var að hlusta á, hvað greifinn hefði að segja. Hann settist niður og tifaði óþolinmóður með fingrunum á borðið. ,,Jæja,“ sagði hann hvass, „hvað -er það?“ Það var ekki siður greifans að koma umbúða- laust að kjarna málsins. „Leifið mér að votta yður samúð mína í sorg yðar.“ „Ef þér verðið með nokkra ósvífni," sagði Derek rólega, „þá skuluð þér fara út um glugg- ann þarna.“ Hann kinkaði kolli í áttina til gluggans við hliðina á greifanum, og greifinn varð rólegur. „Ég skal senda vini mína til yðar, herra minn, ef það er það, sem þér óskið eftir,“ sagði hann drembilega. Derek hló. „Einvígi, ha? Kæri greifi, ég tek yður ekki nógu alvarlega til þess. En mér væri sönn ánægja að sparka yður niður Promenode des Anglais." Greifinn kærði sig ekki um að lenda í illdeil- um. Hann lyfti aðeins augabrúnunum og sagði lágt: „Englendingar eru ruddamenni.“ „Jæja,“ sagði Derek, „hvað ætlið þér að segja við mig?“ „Ég skal vera hreinskilinn,“ sagði greifinn, „ég skal koma beint að efninu. Það er okkur báðum fyrir beztu, finnst yður ekki?“ Hann brosti aftur. „Haldið áfram,“ sagði I>erek stuttaralega. Greifinn leit upp í loftið, lagði saman fingur- gómana og sagði lágt: „Yður héfur áskotnazt mikið fé, herra Kett- ering.“ „Hvern déskotann kemur það yður við?“ Greifinn rétti úr sér. „Herra minn, nafn mitt er flekkað! Ég er grunaður — ákærður — um Ijótan glæp.“ „Ákæran kemur ekki frá mér,“ sagöi Derek kuldalega; „sem aðili hef ég ekki látið í ljósi neitt álit.“ „Ég er saklaus," sagði greifinn, ,,ég sver við himininn“ — hann fórnaði höndunum til himins — ,,að ég er saklaus.“ „Herra Carrége er, að ég held, sakadómar- inn, sem hefur málið með höndum,“ sagði Derek kurteislega. Greifinn gaf orðum hans engan gaum. „Ég er ekki aðeins ranglega grunaður um glæp, sem ég hef ekki framið, heldur er ég einnig mjög þurfandi fyrir peninga." Hann hóstaði lágt og íbygginn. Derek reis á fætur. „Ég var að bíða eftir þessu," sagði hann lágt. „Vesæll fjárkúgari! Þér fáið ekki eyri hjá mér. Konan mín er dáin, og ekkert hneyksli, sem þér kunnið aö reyna að vekja, getur snert hana héð- an í frá. Hún hefur sjálfsagt skrifað yður heimskuleg bréf. Ef ég keypti þau af yður núna fyrir laglega fjárupphæð, er ég nokkurn veginn viss um, að þér mynduð hafa tök á að halda einu eða tveim eftir; og það skal ég segja yður, de la Roche greifi: fjárkúgun er ljótt orð bæði í Englandi og Frakklandi. Þetta er svar mitt til yðar. Verið þér sælir.“ „Bíðið augnablik," sagði greifinn og rétti fram höndina, þegar Derek bjóst til að fara út úr salnum. „Yður skjátlast, herra minn, yður skjátlast algerlega. Ég er, vona ég, heiðarlegur maður.“ Derek hló. „Ég mundi aldrei leggjast svo lágt að notfæra mér bréf, sem kona hefði skrifað mér." Hann kastaði til höfðinu með göf- ugmannlegri hreyfingu. „Uppástungan, sem ég ætlaði að leggja fyrir yður, var allt annars eðlis. Ég er, eins og ég sagði, mjög þurfandi fyrir MAGGI OG RAGGI Teikning eftir Wally Bishop. 1. Afi: Drengir mínir, við amma ykkar ætlum að spila i næsta húsi í kvöld - þið getið farið á bíó ef ykkur langar til . . . Raggi Gaman! Gaman! / Maggi: Heyr fyrir afa! 2. Afi: . . . en þið verðið að koma beint heim og fara strax að hátta . . . 3. Afi: . . . þið skuluð nota peningana, sem ég gaf ykkur í gær . . . en þið megið ekki fara á hjólunum, þið verðið að nota strætisvagninn að þessu sinni . . . og . . . 4. Afi Hvar eru drengirnir? Amma: Þeir eru fyrir löngu farnir . . . þeir íóru strax og þú varst búinn að segja fyrstu 'setninguna um bíóið! FELUMYND Hvar er vatnsberinn ? peninga, og samvizkan gæti knúð mig til að fara til lögreglunnar með tiltekna vitneskju, sem ég bý yfir.“ Derek gekk hægt inn eftir salnum aftur. ' „Við hvað eigið þér?“ Brosið á andliti greifans kvilcnaði aftur. „Það getur varla verið nauðsynlegt að fara út i smáatriði,“ sagði hann. „Leitið þess, sem hagnað hefur af glæpnum, segir máltækið, er það ekki? Eins og ég sagði rétt áðan, þá hefur yður áskotnazt mikið fé nýlega.“ Derek hló. „Ef þetta er allt og sumt —“ sagði hann fyrirlitlega. Greifinn hristi höfuðið. „Það er ekki allt, herra minn. Ég væri ekki að koma til yðar ef ég hefði ekki nákvæmari og ýtarlegri upplýsingar en það. Það er ekki skemmtilegt að vera tekinn fastur og kærður fyrir rnorð." Derek gekk fast að honum. Andlit hans lýsti þvílíkri heift, að greifinn hörfaði ósjálf- rátt aftur á bak. „Eruð þér að ógna mér?“ „Þér skuluð ekki heyra meira um málið," fullvissaði greifinn hann. „Af öHum þeim furðulegu blekkingum, sem ég hef komizt i kynni við —“ Greifinn lyfti hvítri hendinni. „Yður skjátlast. Ég er ekki að blekkja yður. Til að sannfæra yður, skal ég segja yður, að upplýsingarnar mínar eru frá ónafngreindri konu. Það er hún, sem hefur óyggjandi sann- anir um það, að þér hafið framið morðið." „Hún ? Hver ?“ „Ungfrú Mírella." Derek hörfaði aftur á bak eins og hann hefði verið sleginn utan undir. „Mírella," sagði hann lágt. Greifinn var fljótur að ganga á lagið. „Eina litla hundrað þúsund franka," sagði hann. „Ég bið ekki um meira." „Ha?“ sagði Derek annars hugar. „Ég sagði, herra minn, að einir litlir hundrað þúsund frankar myndu nægja — samvizku minni." Derek virtist herða sig upp. Har.n leit alvar- lega á greifann. „Þér óskið svars frá mér núna?“ „Ef yður þónkast, herra rninn." „Hérna er það. Þér getið farið til fjandans. Skiljið þér það?“ Derek sneri sér á hæl, fór út úr salnum og skyldi greifann eftir svo undrandi, að hann mátti ekki mæla.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.