Vikan - 14.04.1949, Side 2
2
VTKAN, nr. 15, 1949
PÖSTPRIWH •
Kæra Vika!
Viltu vera svo góð og birta mynd
af Thuran Bey fyrir mig, og segja
mér eitthvað um hann. Hann er nefni-
lega uppáhalds leikarinn minn.
Hvemig er skriftin ?
Með fyrirfram þökk.
Greta.
Um Thuran er annars staðar skrif-
að, en mynd getum við ekki birt
að sinni.
Skriftin er allgóð.
Kæra Vika min!
Viltu vera svo góð, að leysa úr
eftirfarandi spurningum fyrir mig:
1. Viltu segja mér eitthvað um Tur-
han Bey? Það er uppáhaldsleik-
arinn minn ?
2. Var Gene Raymond rithöfundur,
áður en hann gerðist leikari?
3. Er Gene Raymond hans rétta
nafn ?
4. Viltu birta mynd af honum, ef
þú getur ?
5. Er Ann Sheridan gift, og þá
hverjum ?
6. Er Ginger Rogers gift?
7. Á hún mörg börn?
Með hjartans þakklæti fyrir vænt-
anleg svör. Með beztu kveðju.
Alda Guðjóns.
P.S. Hvernig er skriftin?
Svar: 1. Hann er Tyrki. Faðir hans
var í utanríkisþjónustunni, svo að
hann hefur allvíða farið um heiminn.
Hann er stór og stæðilegur, ea. 185
cm. á hæð og að sama skapi þungur.
Hann er rólyndur og reykir mikið
pípu.
2.—4. Hann heitir réttu nafni Ray-
mond Guion, mun ekki vera rithöf-
undur.
5. Hún hefur gifzt 2—3 sinnum,
m. a. George Brent.
6. —7. Hún er gift Jackie Briggs.
Bamlaus.
Skriftin er sæmileg.
Kæra Vika!
Ég hef aldrei spurt þig áður, svo
að ég vona, að þú svarir nokkrum
spurningum fyrir mig.
1. Hvað heitir mamma hennar Mar-
grét O’Brien ?
2. Hvað heitir pabbi hennar?
3. Viltu gera svo vel, að birta mynd
af Margrét O’Brien?
4. Hvað er Shirley Temple gömul?
5. Er það satt, að hún sé byrjuð að
leika aftur ?
Svana (11 ára).
Svar: 1.—3. Bókfellsútgáfan hefur
alveg nýlega gefið út bók með mynd-
um um Margrét O’Brien, heitir hún
„Dagbókin mtn“.
Tímaritið SAMTÍÐIN
Flytur snjallar sögur, fróðlegar
ritgerðir og bráðsmellnar skop-
sögur.
10 hefti árlega fyrir aðeins 20 kr.
Ritstjóri: Sig. Skúlason magister.
Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75.
4.—5. Fædd 1928 eða ’29; hún leik-
ur af og til.
Kæra Vika!
Þú gætir víst ekki gefið mér ein-
hverjar upplýsingar um skáldið Peter
Cheyney, hverrar þjóðar hann sé og
hvort nokkur bók sé eftir hann á
íslenzku.
P.S. Hvernig lízt þér á skriftina?
H. P. G.
Svar: Hann er enskur, f. árið 1897.
Hann strauk að heiman, þegar hann
var 16 ára, til þess að verða leikari.
En 1914 gekk hann í herinn. Særðist
1917. Eftir stríðið gerðist hann blaða-
maður og rithöfundur og rak jafn-
framt leynilögregluskrifstofu. Af
reynslu sinni í þeim störfum tók hann
að rita leynilögreglusögur. — Nokkr-
ar af bókum hans hafa verið þýdd-
ar á íslenzku.
Kæra Vika!
Eg er þrettán ára gömul, eldheitur
leiklistarunnandi. Mig langar þess
vegna að leggja fyrir þig nokkrar
spurningar, sem ég vona, að þú svar-
ir eins fljótt og unnt er, því þetta
er dálítið áríðandi. Viltu segja mér
hvernig leikskóla Ævars R. Kvarans
eða Lárusar Pálssonar er háttað. Er
ég of ung til að byrja nám hjá öðr-
um hvorum? Hver er lágmargsald-
ur ? Hvað kostar ? Starfa þeir á
sumrin? Hvað eru námskeiðin löng?
Með beztu þökkum fyrir allar
ánægjustundirnar.
G. H.
Svar: Hvað leikskóla Lárusar Páls-
sonar snertir, viljum við benda á
Vikuna, nr. 37, 9. september 1948,
en í því blaði er viðtal við Lárus
Pálsson. — Leikskóli Ævars R. Kvar-
an starfar 7—8 mánuði (ekki á sumr-
in) á ári, 9 tímar í viku. Af þeim
kennir Ævar sjálfur 4 klukkustund-
ir leiklist almennt og tækni, Klemens
leikari Jónsson látbragðsleik 2 klst.
og skylmingar 1 klst., og Brandur
skólastjóri Jónsson raddþjálfun 2
klst. Ævar tekur ekki yngri nem-
endur en 16—17 ára, og þó drengi
ekki svo unga. Gjaldið er 160 krón-
ur á mánuði. Skólinn starfar ekki í
námskeiðum, en gert er ráð fyrir, að
námið taki 2—3 vetur.
Kæra Vika!
Þetta er í þriðja sinn sem ég skrifa
þér, og aldrei hef ég fengið svar
mitt birt eða bréf. Nú langar mig
að fá birt í næsta blaði texta, sem
byrjar svona: ,,Ein í húmi, áfram
líður, áin lygn og tær." Þetta er
það eina, sem ég kann í honum.
Nú treysti ég þér, elsku Vika mín,
að birta þetta fyrir mig. — Þúsund
kossar. J. Pétursd.
Svar: Við könnumst ekki við kvæð-
ið, sem þessar línur eru úr, — en
þökkum kossana!
Svar til Binnu: Vitum ekki úr
hvaða kvæði þetta er.
Bréfasambönd
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Elísabet Kristjánsdóttir (við pilt og
stúlku 15—17 ára), Hraðfrystihús-
inu Xnnri-ISIjarðvík, Keflavík.
Jóna Guðmundsdóttir (17—19 ára),
Hraðfrystihúsinu Innri-Njarðvík,
Keflavík.
Hafsteinn Magnússon (við stúlkur
14—18 ára, æskilegt að mynd
fylgi), Haukadal, Rangárvöllum,
Rangárvallasýslu.
Sigurvin Guðbrandsson (við stúlkur
18—22 ára), Munaðarnesi, Árnes-
hreppi, Strandasýslu.
Þorleifur Hallbertsson (við stúlkur
16—18 ára), Veiðileysu, pr. Djúpa-
vík, Strandasýslu.
Guðbrandur Kristinsson (við stúlkur
18—20 ára, mynd fylgi), VeiCi-
leysu, Árneshreppi, pr. Djúpavík,
Strandasýslu.
Framhald á bls. 7.
TÉKKÓSLOVAKIA
er eitt mesta sokkaframleiðsluland í Evrópu, þaðan koma hinir heimsþekktu
P E R LOIM - kvensokkar
(sama gerð og nylon). Það hefir nú fengist svo góð reynsla fyrir PERLON sokkum,
hér á landi að þeir eru taldir margfallt endingarbetri en venjulegir nylon sokkar,
sem stafar af því, að lykkjur dragast ekki til, og þessir sokkar hafa miklu meiri
teygju.
Þrátt fyrir þessa miklu kosti hvað endingu snertir, kosta PERLON
sokkar aðeins kr. 18,90 í smásölu.
PERLON eru því vaíalaust ódýrustu kvensokkar, sem til landsins hafa ltomið.
Sömu verksmiðjur bjóða einnig ULLARSOKKA og ULL og SILKI bl. með alveg
sérstaklega hagkvæmu verði.
Þórður Sveinsson & Co. h.f.
Reykjavík.
Einkaumboðsmenn fyrir ríkisverksmiðjurnar í Tékkóslóvakíu, sem framleiða
P E R L O N og KUNERT kvensokka.
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður; Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.