Vikan


Vikan - 14.04.1949, Síða 4

Vikan - 14.04.1949, Síða 4
VIKAN, nr. 15, 1949 4 Kommóðan Þýdd smásaga „Ert það þú, Adolf. Hvernig þorir þú þetta? Komdu inn fyrir.“ „Svo frænka þín er þá ekki héima,“ svaraði Adolf, lokaði dyrunum á eftir sér og leit í kringum sig í stofunni. „Já, svona búum við núna — gerðu svo vel og líttu inn í næsta klefa. Þetta er svefnherbergið með tveimur rúmum. Og hér er eldhúsið með öllum nútíma þæg- indum — komið fyrir á allra óþægileg- astan hátt. Settu þig á legubekkinn, og láttu eins og þú fáir kaffi,“ mælti Kamma og ýtti unga manninum út úr svefnher- berginu. Og síðan settist hún sjálf á pall- inn við gluggann, bjástraði eitthvað við lokkana og gaut á meðan hornauga til unga, útitekna mannsins, sem reyndi að sitja eðlilega í sófaskriflinu, sem minnti óþægilega á öld Friðriks heitins sjötta. „Viltu reykja?“ spurði hann og tók upp vindlingahylki. „Nei, í guðanna bænum ekki. Frænka finnur þefinn, áður en hún er stiginn inn úr dyrunum." „Fyrirgefðu! Já, þú sagðir í gær, að frænka þín ætlaði í bað í dag.“ „Svo þú hefur skilið, að ég var að bjóða þér heim! — Er ekki dásamlegt héma? Fjórir málaðir veggir með gulnuðum ljós- myndum, skatthol í stíl við dómhúsið á Nýjatorgi, málað borð og tveir ódrepandi stólar.“ „Getur þú lifað héma?“ „Ég venst því. Frænka hefur samið um það við forstöðukonuna og stjómina, að ég skuli erfa öll ,,herlegheitin“ með mið- stöðvarhitun og átta króninn á mánuði — en þó ekki fyrr en ég er 65 ára. Nú, þessi 47 ár, sem munar, ætlar hún sjálf að sitja að krásunum — enda er hún ekki nema liðlega hálfáttræð, gamla konan. Þau skilyrði era sett, að ég gifti mig ekki, eða skemmi mig á annan óverðugan hátt — Samt ætla ég að laga kaffi handa þér. — Bíddu andartak." „Þakka þér fyrir, elskan, — en ef þú gengur nú i berhögg við sett skilyrði?“ „Það geri ég nefnilega stundum. Því að frænka telur það höfuðsynd að tala við aðra karlmenn en dyravörðinn, sem skip- ar þann hæpna virðingarsess að vera tal- inn hvomgkyns. — Já, þá missi ég bæði frítt húsnæði, miðstöðvarupphitun, átta krónur á mánuði og eftirskildar eigur frænku gömlu.“ „Og er það mikið?“ „Það veit ég ekki upp á hár. En þar sem hún segir, að bankainnstæða frá dögum afa síns hafi aldrei verið hreyfð —“ „Já, sleppum því, þín æruverðuga frænd- kona reiknar í löngum árabilum —“ — „Já, já, einkum aftur á bak. Þú ættir bara að vita, hvað hún er forn í sér. Hún hefur mslaherbergi uppi á lofti og þar er eldgömul kommóða. Hún segir að hún sé frá dögum ensku árásarinnar — 1807 — þú manst, en það get ég sagt þér seinna allt saman. — Nú ætla ég fram og laga kaffið, en við getum ósköp vel talað sam- an, því að dymar eru opnar.“ Kamma fór fram í litla eldhúsið og A-dolf heyrði, að hún var að bardúsa eitt- hvað á meðan hún hélt áfram að skýra fyrir honum furðulega háttu frændkonu sinnar. „Nei, Adolf. Það er ekki til neins, að ég kynni þig sem unnusta minn. 1 fyrsta lagi mundi hún svipta mig arfi og gefa eigur sínar eitthvað út í bláinn, í öðru lagi mundi hún slíta félagsskap við mig og þriðja lagi mundi hún binda trúss sitt við einhverja afdánkaða og margpipraða frænku sína. Hvar ætti ég svo að fá fæði og húsnæði fyrir það, sem ég vinn mér inn. Við verðum heldur -—“ Kamma stanzaði allt í einu. Hún heyrði, að útidyrnar vom opnaðar, og angistar- vein kvað við frá frænku gömlu, sem hafði fengið éinhvern nasaþef af því að karl- maður væri í húsinu. Kamma vissi ekki sitt rjúkandi ráð. „Þér eruð ef til vill kirkjugjaldarukk- arinn, — eða, hvernig stendur á yður?“ spurði Bína frænka. „Afsakið, ég bið margfaldlega afsök- unar, ungfrú — nei, ég er ekki kirkju- gjaldamkkari, ég ætlaði hara að fá — fá leyfi til þess að líta á kommóðuna, sem ég hef heyrt að ungfrúin eigi — gömul kommóða og mjög dýrmæt.“ „Kommóðuna mína? En hvemig hafið þér komizt hingað inn?“ „Jú, ég barði að dyrum og ung —“ „Já, frænka, það var ég, sem opnaði. Þessi ungi maður er sérfræðingur í að rannsaka gömul húsgögn, og þess vegna ................................. I VEIZTU -? j I 1. I hvaða landi er banjóið fundið upp ? I 1 2. Hvenær var Jón Helgason biskup? | 3. Hverrar þjóðar var tónskáldið Camille i Saint-Saens og hvenær var hann uppi? | § 4. Hvenær var rithöfundurinn Jón Trausti i uppi og hvað hét hann réttu nafni? | 5. Hvar er Caracas höfuðborg ? | 6. Er Toskanini frægur vísindamaður, : hljómsveitarstjóri eða málari? : 7. Hvað vegur einn litri af vatni við i fjögur stig á Celsíus ? = 8. I hvaða óperu er arían „La Donna e i Mobile" ? i i 9. Hvaða forseti Bandaríkjanna hefur | lengst búið í hvíta húsinu? | 10. Hver leikur Ofelíu í ensku kvikmynd- § inni „Hamlet"? Sjá svör á bla. 14. i iiimiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiminiiiiiimiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiMiiiiiMiiiiiiiin/ kom hann,“ skaut Kamma inn í mjög flaumósa. „Já, ef yður langar mjög til, þá get ég komið með yður upp á loft — ég þarf bara að sækja lykilinn.“ Og frænka tók upp lykil, opnaði eina skattholsskúffuna, tók upp úr henni pakka og innan í hon- um var annar lykill, og með honum opn- aði hún aðra skúffu, tók upp úr henni léreftspoka og svo koll af kolli. „Ég er hræddur um, að ég geri yður all- mikið ónæði, ungfrú —“ „Ég er nú af gamla skólanum, skal ég segja yður, — þá höfðu menn nú reglu á hlutunum, — en nú er svo hert að hnút- unum, að ég get ekki leyst hann.“ „Ætli ég mætti líta inn seinna, ungfrú? Það munar mig engu, því að ég á hér oft leið um.“ „Já, ef þér gerið það, skal ég koma með yður upp. Hún er svo sem ekki mikils virði, gamla kommóðan, hún er frá tím- um afa míns, og hann var ættaður frá Jótlandi, — já, ef þér hafið gaman af, það eru alltaf til menn, sem eru vitlausir í gamla muni, eins og sagt er.“ Adolf og frænka skildu sem beztu vin- ir, og þegar Adolf kom daginn eftir, var harin svo lánsamur ( eða hitt þó heldur) að hitta fyrir Bínu gömlu, sem var nú búin að leysa hnútinn og fór með Adolf upp á loft og lét móðan mása. „Hvar ætti maður svo sem að geyma svona skrifli, þegar maður býr á elliheim- ili,“ sagði hún, er hún opnaði dyrnar. „Hérna er hún nú, kommóðuskömmin, alveg eins og hún var meðan hann afi sálugi átti hana.“ Kommóðan fyllti út í helminginn af her- berginu, og þótt Adolf bæri ekki mikið skynbragð á gamla húsmuni, sá hann þeg- ar, að hún mundi vera mikils virði. „Ég hugsa, að ég geti útvegað yður góð- an kaupanda, ungfrú,“ sagði hann og lét augun hvíla á þessu einstaka listaverki með málmleggingum og frábærum út- skurði. „Kaupanda?“ Ég hef alls ekki hugsað mér að selja hana. Ég hef ekkert að selja, það gerði fólk mitt ekki. Hvers vegna ætti ég þá að gera það?“ „Ég átti bara við, að þér hefðuð ekki rúm fyrir hana, svo að —“ „Það er rúm fyrir hana hér. Ég nota hana til þess að geyma í fötin hennar mömmu sálugi — hún átti svo indæla kápu, sem ég ætla að nota, þegar ég hef slitið minni. Nei, ég hélt, að þér vilduð bara líta á hana.“ Já, Adolf var vissulega mjög glaður að hafa fengið tækifæri til þess að sjá hana, og hann ætlaði að segja manni, sem hann þekkti, frá henni. Og síðan fóru þau niður, og frænka gaf kaffi. Auðvitað var Kamma heima, einkum meðan frænka var að laga kaffið í eldhúsinu. Þegar Adolf kom nokkmm dögum síð- ar með fjörugan, roskinn mann, var hann þegar spurður álits um kommóðuna. Framhald á bls. 14.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.