Vikan - 14.04.1949, Side 7
VIKAN, nr. 15, 1949
7
Bréfasambönd
Framháld af bls. 2.
Sigurður Guðmundsson (við stúlkur
17— 20 ára, mynd fylgi), Munað-
arnesi, Árneshreppi, Strandasýslu.
Addý Nicolai (við pilta og stúlkur
18— 22 ára) Lindargötu 58, Rvík.
Ármann E>. Ásmundsson (við stúlku
14—16 ára, mynd fylgi), Suður-
götu 25, Akranesi.
Karl Þórðarson (við stúlku 14—16
ára, mynd fylgi), Skagabraut 19,
Akranesi.
-Jórunn Axelsdóttir (við pilt eða
stúlku, helzt í Reykjavík eða á
:Siglufirði, 13—16 ára), Hjalteyri
við Eyjafjörð.
Lóa Friðriksdóttir (við pilta eða
stúlkur 16—18 ára), Simstöðinni
Egilsstöðum, Suður-Múlasýslu.
Helga Binna Jónasdóttir,
Benný Jónasdóttir,
Svandís Runólfsdóttir,
Dodda Runólfsdóttir,
(við pilta eða stúlkur 15—18 ára),
allar á Reykjaskóla, Hrútafirði,
V.-Húnavatnssýslu.
Fregn Björgvins (við pilt eða stúlku
14—16 ára, mynd fylgi), Ketils-
stöðum, Jökulsárhlíð, N.-Múlasýslu.
Guðmundur Pétursson (við pilta eða
stúlkur 12—14 ára, mynd fylgi),
Hverfisgötu 19, Siglufirði.
Rögnvaldur Haraldsson (við stúlku
14—15 ára, mynd fylgi), Unastöð-
um, Hólahreppi, Skagafirði.
Elín Þórhallsdóttir (við pilta 19—21
árs),
Ása Guðmundsdóttir (við pilta 15—17
ára), báðar til heimilis Hvamms-
tanga, V.-Húnavatnssýslu.
Aðalheiður Isleifs Hafliðadóttir,
Ólöf Egilsdóttir,
Petrina Kristjánsdóttir,
Petrea Vilhjálmsdóttir,
Rannveig Wormsdóttir,
(við pilt eða stúlku 18—23 ára),
allar St. Jósepsspítala, Hafnarfirði.
Guðmundur Guðmundsson,
Knútur Bergsveinsson,
Sigurður Karlsson,
Sigvaldi Júlíusson,
Sigurberg Júlíusson,
Bergvin Guðmundsson,
(við stúlkur 16—25 ára), allar á
m/b Sæbjörg GK 86, Grindavík.
Þórdís Pálsdóttir (við pilt eða stúlku
16—19 ára), Núpsskóla, Dýrafirði.
Elisabet S. Guðmundsdóttir (við pilt
eða stúlku 16—19 ára), Flateyri,
önundarfirði.
Hreinar láreftstuskur
keyptar háu veröi.
Steindórsprent h.f.
Rit Matthíasar Jochumssonar
ísafoldarprentsmiðja h.f. er í þann veg-
inn að hefja heildarútgáfu af ritum
Matthíasar Jochumssonar, í bundnu máli
og óbundnu, og mun fyrsta bindið koma
út að áliðnu komanda sumri. Verður,
-eins og skyldugt er, allt gert til þess
að útgáfan verði sem rækilegast af
hendi leyst og að sem fæst verði út
undan af því, er þar á að réttu leyti
að koma. Er þegar allmikið efni kom-
ið, sem ekki er í hinum fyrri út-
gáfum, og talsvert mun án efa bætast við
ennþá í þeirri leit, sem nú er verið að
framkvæma. Þó mun efalaust meira eða
minna verða út undan nema til komi góð-
viljuð aðstoð þjóðarinnar í heild. Mun og
mörgum góðum manni verða það ljúft, að
leggja fram sitt liðsinni, svo að þessum
konungi í ríki andans megi verða sýnd
svipuð ræktarstarfsemi af hendi þjóðar
hans eins og aðrar þjóðir sýna minningu
hinna mestu og beztu sinna manna. Það
eru því vinsamleg tilmæli mín til allra
þeirra, er undir höndum hafa eitthvað
það, er að gagni mætti koma við útgáf-
una, hvort heldur eru bréf eða ljóð, að
þeir láni það til afnota, frumrit ef þess er
kostur, en ella nákvæmar afskriftir. Má
senda allt slíkt annaðhvort til mín undir-
ritaðs eða til sonar skáldsins, Magnúsar
? tatthíassonar, Túngötu 5, Reykjavík. Mun
allra slíkra gagna verða vandlega gætt
c'; bau á sínum tíma endursend þeim er
'ánað hafa, nema þeir geri sjálfir þær ráð-
ptafanir að afhenda skuli Landsbókasafni.
Sömuleiðis mundu með þökkum þegnar
hverskonar upplýsingar og fróðleikur, er
ætla má að gagni mætti koma við útgáfu
lióða eða bréfa, svo að slíkt verði notað
við athugasemdir þær og skýringar, sem
gerðar verða við textana. Alveg sérstak-
lega er til þess mælzt, að aðstandendur,
ættmenn eða venzlamenn þeirra, er
Matthías kvað eftir, vildu senda svo
itarlega greinargerð, sem kostur er á
um þá hina sömu, ef ekki er aug-
ijóst, að auðvelt muni vera að afla
Söngvin systkin
Vikan birtir hér myndir af systkinum, sem eru
söngvin mjög, þeim önnu Þórhallsdóttur og
Daníel Þórhallssyni. Þau eru börn Ingibjargar
Friðgeirsdóttur og Þórhalls Daníelssonar, kaup-
manns á Hornarfirði. Á æskuheimili þeirra var
bæði píanó og orgel og var það eina píanóið,
sem þá var til í héraðinu. Anna fluttist hingað
til Reykjavíkur 1928 og gerðist bókari hjá
Landssímanum og síðan gjaldkeri.
Hún hóf söngnám hjá þekktri norskri söng-
kennslukonu í Kaupmannahöfn og var þá eitt ár
þeirra upplýsinga. Það er svo um mjög
mörg af hinum mikla sæg tækifæris-
kvæða, er Matthías kvað, að enda
þótt sjálf nöfnin séu kunn, þá getur nú
reynzt hartnær eða með öllu ómögulegt
að vita við hvern átt er. Útgefandi er
litlu nær þó að við eitt kvæðið standi
,,Jón Jónsson d. 1872“ eða ,,G. Jónsdóttir
d. 1881“ eða „eftir barn“. Þetta á ekki
við um erfiljóðin ein heldur og ýms önnur
tækifæriskvæði og tækifærisvísur. En úti
á meðal fólksins mun í langflestum til-
fellum enn vera einhver, sem að meira
eða minna leyti getur látið í té gagnlegar
erlendis.* Hvatti kennarinn önnu til að halda
áfram námi, en þá voru ekki ástæður til þess.
1945 fór hún svo aftur i námsför og þá vestur
um haf og stundaði söngnám tvö skólatímabil
í „Juillard School of Music“ í New York. Að
því loknu fékk hún lofsamleg ummæli fyrir söng-
námið. Hún starfar alltaf hjá Landssímanum og
syngur við og við í útvarp og þá eingöngu sigild
lög.
Daníel Þórhallsson hefur lika sungið mikið um
dagana. Hann vinnur hjá Síldarverksmiðjum rik-
isins á Siglufirði og tekur drjúgan þátt í söng-
lífi bæjarins. Hann hefur og sungið í útvarp.
Hann fór í söngför með Karlakór Reykjavíkur
til Ameríku.
upplýsingar. Menn mega ekki draga sig í
hlé fyrir það, að þeim finnist það vera
of fátæklegt, sem þeir geta lagt til mál-
anna. Lítilfjörleg bending getur oft og
einatt einmitt vísað á réttu leiðina.
Með fyrirfram þökk til allra þeirra, er
við þessum tilmælum verða og sýna þar
með minningu Matthíasar Jochumssonar
ræktarsemi — stundum máske um leið
minningu látinna náunga sinna;
Reykjavík, 24. marz 1949.
f.h. Isafoldarprentsmiðju h.f.
Gunnar Einarsson.