Vikan - 25.07.1991, Qupperneq 12
„ER ÓSJÁLF-
BJARGA DRUSLA
HEIMA FYRIR..."
þetta sé alveg stórmerkilegt. Þetta með Heiðar
og konurnar þarf líklega ekki að tíunda en
hann bætir við að allt annað sem nefnt sé
standist nákvæma skoðun.
ÓÞOLANDI Á HEIMILI
Verkefni Heiðars í þessu lífi er aö þroska
skapandi sjálfstjáningu og stjórnunarhæfileika.
Það varasama við grunneðli hans er ósveigj-
anleiki og tilhneiging til að hlusta ekki á aöra.
Hann á til að vera sjálfsupptekinn, tilætlunar-
samur og eigingjarn. Hann getur einnig átt til
að móðgast sé honum ekki veitt athygli. Meðal
bestu eiginleika hans eru göfuglyndi, gjafmildi,
hugrekki og þor til að vera hann sjálfur.
„Ég er óþolandi á heimili þó ég eigi auðvitað
mín andartök. Ég er ósjálfbjarga drusla heima
fyrir og vil láta stjana við mig og allt snúast
í kringum mig. Svo tuða ég eins og andskotinn
enda er ég meö Meyju á miðhimni. Konan mín
hefur engan áhuga á stjörnumerkjum, finnst
þau hundleiðinleg og skilur þau aldrei en þegar
hún sá að ég var Meyja á miðhimni, eftir að
hafa heyrt mig lýsa Meyjunni, þá hló hún vel og
lengi. Ég á tvær Meyjar og yngsta barnið er
Ljón þannig að þegar ég fer að verða minna
óþolandi fyrir aldurs sakir tekur yngsta barnið
bara við.“
MEIRI ÞÖRF FYRIR RMERUNA
Gjafmildi og þörf fyrir glæsileika getur leitt til of-
keyrslu. Hefur Heiðar mikla þörf fyrir íburð, til
dæmis í húsbúnaði?
„Eitt sinn vorum við Bjarkey að pakka þegar
tengdamamma kom f heimsókn. Hún spurði
hvert við værum að fara en förinni var heitið á
frönsku Rivieruna. Hún spurði þá hvort svona
ferð væri ekki dýrari en gott gólfefni. Ég svar-
aði þá að ég hefði miklu meiri þörf fyrir frönsku
Rivieruna en eitthvert drasl að labba á og ég
held nú að hún hafi skilið það alveg rétt. Ennþá
er ekkert á gólfinu annað en dúkur í ferningum
og í einu herberginu er ekkert annað en
steinninn eftir. Við eigum dúkalím og þegar
ferningur gefur sig í aðalvistarverunum er ann-
ar rifinn upp í þessu eina herbergi og skellt á
hitt gólfið. Við hjónin höfum ekki hjónaherbergi
og höfum þann hátt á að sá sem síðast gengur
til náða sefur yfirleitt í stofunni, svo heimilis-
haldið er svolítið kommúnulegt.
ÁTTU FYRIR TVEIMUR
DJÚPUM DISKUM
Við Bjarkey byrjuðum búskap innan við tvítugt
eftir að hafa verið erlendis um tíma. Við
skulduöum skatta en náðum okkur þó í pen-
inga fyrir einum potti, tveimur djúpum diskum
og tveimur grunnum. Ég átti gamalt skrifborð
sem ég fékk í fermingargjöf og við fengum
gamlan dívan sem átti að henda. Svo leigðum
við okkur kjallaraholu með eldunaraðstöðu.
Klósettið var svo lítið að það þurfti ekki einu
sinni að kveikja, maður hitti hvort sem var.
Þegar börnin voru orðin tvö vorum við ekki í
þeim tekjuhópi að geta farið og keypt íbúð
heldur var farið í félagslega kerfið. Nú höfum
viö búið í 72 fermetra íbúð í sautján ár. Við
erum fimm og erum með þrjá ketti og ég held
að innandyra sé ekkert nýtt húsgagn. Við höf-
um keypt eftir þörfum, oft keypt gamalt eöa
fengið eitthvað frá öðrum.
Aðallega höfum við keypt hillur undir bækur
því þær eru það fegursta og glæsilegasta sem
ég get hugsaö mér. í þessum fáu fermetrum
eigum við það sem líklega er með stærri
einkabókasöfnum. Bækur eru það eina verald-
lega sem við söfnum, ef hægt er að segja að
bókmenntir séu veraldlegar.
Eitt sinn sagði mér djúpvitur og fróð kona að
ég virtist vera mjög sterkur einstaklingur en að
ég hefði afar veikar línur á veraldlega sviðinu.
Það þýddi að væri fólki illa við mig gæti það
komið mér illa peningalega og veraldlega með
slæmum hugsunum en ekki andlega og tilfinn-
ingalega því þar væri ég of sterkur. Þetta á
ágætlega við og ég trúi þessu. Konan, sem
sagði mér þetta, heitir Guðrún Bjarnadóttir og
var ungfrú alheimur 1963. Síðan ég kynntist
henni hefur hún oft ráðiö mér heilt.“
ÞÁ ÞARF ÉG EKKI AÐ VERA HEIÐAR
Sem rísandi Sporðdreki vill Heiðar móta óræð-
an og dularfullan persónulegan stíl í þessu lífi.
Hann vill fela innri mann sinn og varpa vissum
dularblæ í kringum sig. Hann er varkár og að-
gætinn og hleypir ekki öllum að sér. Hann get-
ur verið opinn og hress en mislíki honum lokar
hann öllum dyrum, setur upp ópersónulega
grímu - og fer.
„Já, og þegar ég set upp þessa ópersónu-
legu grímu verður konan mín kolvitlaus því
hún þekkir hana. Hún þolir ekki þessa grímu
því henni finnst hún dónaleg en það gerir eng-
inn annar sér grein fyrir henni."
Heiðar á til aö horfa gagnrýnum augum á
sjálfan sig og umhverfið. Hjá honum er hætta á
tortryggni og niðurrifi, hann gæti orðið hvass
og brotið sjálfan sig niður.
„Þetta er alveg satt og svo er ég mikill ein-
fari. Það versta sem hendir mig eru veislur og
boð þar sem ég þekki fólkið. Ég get talað í
hljóðnema yfir þúsund manns en í vinaboðum
verða þessi persónulegu tjáskipti sem ég er að
reyna að forðast. Ég get skemmt sex manna
hópi sem ég þekki ekki en þegar kynni og
tengsl verða meiri þarf ég að komast út. Þess
vegna hitti ég fjölskylduna mína á eyðibýli úti á
landi og þar líður mér ógurlega vel eftir að flóð-
ið er komið og ég veit að enginn kemst. Annars
held ég að með tímanum hafi ég lært að gefa
aðeins, en ég gæti mín vel. Það er alveg sama
hve vel ég þekki fólk; vissum hlutum svara ég
ekki. Annars er ég góður í að snúa mér að
öðru; þar sem ég kem er ég oftast með eitt-
hvert verkefni. Þegar mér verður um megn að
standa i tjáskiptunum sný ég mér bara að því.
Þá þarf ég ekki að vera Heiðar."
„ALVEG, BARA ALVEG . .
Gunnlaugur hefur nú sett kynlífsvísbendingar
inn í kortið - eða ráðgjöf um náin samskipti.
Samkvæmt kortinu er Heiðar tilfinningaríkur
elskhugi en misjafn. Stundum er hann blíður
og næmur, getur síðan verið ákafurog ólgandi
eða læst tilfinningarnar inni í skel. Hann er
rómantískur og elskar fyrst og fremst vegna til-
finninga. Hann er ekki vélrænn elskhugi sem
getur „gert það“ hvar og hvenær sem er. Kon-
an í lífi hans þarf að vera íhaldssöm og búa
yfir móðurlegri hlýju. Hún þarf að vera djúp og
gefandi en ekki yfirborðsleg og gróf.
Heiðar svarar því einu til að þetta sé „alveg,
bara alveg ..." (Blaðamaður leit einnig á sitt
eigið fyrri lífa kort og verður að viðurkenna að
það var líka „alveg ... “)
Vegna Sporðdreka rísandi hugsar Heiðar
mikið um hið neikvæða og þarf oft að hreinsa
til. Hreinsunin getur birst í óánægju með sjálf-
an sig, hann vill kafa inn á við og leita nýrra
leiða. Hann getur orðið hranalegur og vill þá
ekki umgangast þá sem honum finnst trufla
einbeitinguna. Hann verður líklega æ ráðríkari
eftir því sem hann eldist og þörfin fyrir að
stjórna umhverfinu eykst.
„Já, þess vegna er ég farinn að vinna einn,
skilurðu..."
Heiðari er sérstaklega bent á að hafa í huga,
þegar myrkrið hellist yfir hann, að hann er að
hreinsa til og að á eftir nóttu kemur dagur með
bjarta sól.
„Þetta hef ég verið að læra undanfarin ár.
En svartsýnin er svolítið sterk í mér. Hún lýsir
hræðslu. Hræðslu við hræðsluna og hræðslu
við allt þetta nýja. Hvað verður?"
FÉLL í ÞÁ GRYFJU AÐ TREYSTA
Tilfinningar í Vog; hvernig hafa þær reynst
þér?
„Ég held að Vogin hafi gert mig svolítið
grænan á stundum og að ég hafi orðið fyrir
svikum frá fólki sem ég treysti vegna þessarar
eftirgefanlegu Vogar. Vogin hefur líklega gert
mér þann grikk að gera mig of græskulausan.
Ég féll í þá gryfju að treysta fólki um of og sat
svo steinhissa eftir yfir því hve illa þetta fólk
reyndist og hve mikið það sveik mig. Ég á því
til núorðið að afneita Vogareiginleikum mínum
gagnvart umhverfinu. Það í mínu lífi sem fór
öðruvísi en ég helst hefði kosið heimfæri ég
stundum upp á það í hve mikilli andstöðu Vog-
areðlið er við Ljónið og Sporðdrekann í mér.
Þar kemur þvl inn viss tvískinnungur sem mig
grunar að ég hafi ekki ráðið við. Ég get líka
bætt því við að þegar ég hef orðið fyrir von-
brigðum með fólk hefur yfirleitt verið um fólk að
ræða sem ekki þoldi þann þroska sem ég og
mitt fólk höfum. Þegar í óefni var komið held
ég að Vogin I mér hafi einfaldlega ekki kunnað
að segja stopp nógu snemma."
MADDAMA, KERLING, FRÖKEN, FRÚ
Hvað segir Heiðar um helstu eiginleika stjörnu-
merkjanna?
„Ég vinn stundum út frá stjörnumerkjum,
meira til skemmtunar en að ég telji mig sér-
fræðing í þeim efnum. Byrji ég hringinn á Meyj-
unni þá er hún óskaplega yndisleg manneskja.
Hún hefur ráð undir rifi hverju og er samúðar-
full; það er alltaf hægt aö leita til þessarar
elsku. Hún er vitanlega óskaplega samvisku-
söm og skilar öllu frá sér algerlega eitt hundrað
prósent því annars tekur hún hlutinn ekki að
sér.
Hún er lítið fyrir stutt og flegið og fer sjaldan
í sund; þá þarf maður að vera í sundbol og
hann er svo ber. Af því að hún er svo yndisleg
og góð þá fyrirgefst henni þessi hroðalegi galli
sem hún hefur en það er þetta bölvaða tuð út
af öllum ósköpunum sem ætlar alla að drepa.
12 VIKAN 15. TBL.1991