Vikan - 25.07.1991, Síða 26
TEXTI: GUÐMUNDUR SIGURFREYR JÓNASSON
Er líff eftir
þetta líf?
ENDURHOLDGUN
Hvað gerist við líkamsdauðann?
Hættir einstaklingurinn, með
alla sína reynslu og minningar,
einfaldlega að vera til. Eða er til
líf eftir dauðann? Hefur þú lifað
áður? Munt þú lifa á ný? Sjálfsagt hafa
flestir einhvern tímann á ævinni spurt sig
þessara spurninga. Milljónir manna um
heim allan svara þessum spurningum ját-
andi. Trúin á endurholdgun eða framhalds-
lif hefur færst í vöxt á Vesturlöndum á
undanförnum áratugum. Vaxandi hópur
manna trúir því að sálin sé eilíf, hún lifi af
líkamsdauðann og fæðist á ný í öðrum lík-
ama. Trúin á framhaldslíf er ekki lengur
bundin við austræn trúarbrögð og heim-
spekikerfi því kristnir menn trúa engu síður
á endurholdgun.
Samkvæmt könnun, sem Gallup-stofnunin
gekkst fyrir á árinu 1975, trúa 69 prósent af
Bandaríkjamönnum á líf eftir dauðann. Sam-
bærileg könnun hér á landi leiddi í Ijós að um
sextíu og átta af hverjum hundrað Islendingum
búast við áframhaldandi lífi eftir andlátið. Að-
eins tveir af hundraði telja framhaldslíf óhugs-
andi og fimm ólíklegt. Samkvæmt þessari at-
hugun eru aðeins sjö prósent íslendinga van-
trúaðir á framhaldslíf en um tuttugu prósent
manna geta ekki gert upp við sig hvort vænta
megi áframhaldandi lífs eftir líkamsdauöann.
TRÚIN Á ENDURHOLDGUN
JAFNGÖMUL MANNKYNINU
Trúin á framhaldslíf og fyrri jarðvistir er stór
þáttur í helstu trúarbrögöum heims. Hindúar
og búddatrúarmenn trúa því að sálin eða sjálf-
ið endurfæðist aftur og aftur, taki sér bólfestu í
fleiri líkömum í þeim tilgangi að öðlast aukinn
þroska. Gríski sagnfræöingurinn Herodótus
segir okkur að Fornegyptar hafi verið fyrstir
manna til aö kenna að sálin eigi sér tilvist
óháða líkamanum og aö hún sé eilíf. Grískir
heimspekingar á borð við Plató, Sókrates og
Pýþagóras urðu fyrir áhrifum frá hugmyndum
Fornegypta og trúðu á annað líf eftir líkams-
dauðann. ( ævisögu Pýþagórasar er sagt frá
því að hann hafi munað fyrri jarðvistir sínar.
í Gamla og Nýja testamentinu máfinna kafla
þar sem gert er ráð fyrir lífi eftir dauðann. Á
einum stað spyr Jesús Kristur lærisveina sína:
„Hvern segja menn mig vera?“ Sumir sögðu
Móses, en aðrir Elía. Kristur fullyrðir síðan að
Jóhannes skírari sé Elía spámaður endur-
borinn.
Það er fullvíst að menn játuðu trú á fram-
haldslíf á fyrstu öldum kristninnar. Ágústínus
kirkjufaðir boðaði til dæmis trú á líf eftir dauð-
Frh. á næstu opnu
Madonna heldur því fram aö hún hafi verið
Marilyn Monroe i fyrra lífi. Á síðustu árum hafa
dulsálfræðingar unnið að vísindarannsóknum
sem benda til lifs eftir dauðann. Dulsálfræðingur-
inn Ducasse við Brown-háskúlann í Bandaríkjun-
um hefur til dæmis látið svo ummælt: „Hvort
sem eilíft líf er eða er ekki raunveruleiki, með
fjölda æviskeiða á jörðunni, er það i samhengi
við það sem maður getur imyndað sér og ekki
ósamrýmanlegt þeim staðreyndum sem við
þekkjum úr tilraunum eða vísindaniðurstöðum.“
26 VíKAN 15. TBL 1991