Vikan - 25.07.1991, Side 38
SAKAMÁLASAGA EFTIR RICHARD HARDWICK
KÖLD ERU KVENNARÁÐ
Greg MacNeel reyndi að treina
sér drykkinn, þó að hann hetði
helst kosið að hvolfa honum í
sig og panta sér annan. En
hann vissi að það mundi ekki
bæta úr skák - öðru nær. Enda þótt vínið róaði
taugar hans mundi það einnig trufla dómgreind
hans og það vildi hann forðast eins og á stóð.
Hann átti um tvo kosti að velja. Annar var að
hætta við Klarissu fyrir fullt og allt. Hann var
ekki vanur að kippa sér upp við þess háttar.
Hinn var að koma Harry Melton fyrir kattarnef.
Þá gæti hann kvænst Klarissu og náð í alla
peninga Harrys Melton.
Hann dreypti á víninu og litaðist um á
barnum. Hann hafði hitt hana hérna fyrir tæp-
um þremur mánuðum. Hún hafði gefið honum
auga i speglinum bak við afgreiðsluborðið.
Greg McNeel var ekkert óvanur þvi að kven-
fólkið gæfi honum gætur og enginn sem sá
hann gat furðað sig á því. Hann hafði beint nef,
pétursspor í höku, grá augu, svart, liðað hár og
fallegar, hvítar tennur. Hann var í senn snyrti-
legur og höfðinglegur. Öðrum karlmönnum
geðjaðist ekki að honum en kvenfólkið
dreymdi um hann í laumi.
Hann vissi að Klarissa horfði á hann en lét
eins og hann tæki ekki eftir því. Hann var eng-
inn viðvaningur og tók öllu með ró.
Eftir dálitla stund bar hann glasið að vörum
sér og benti bareigandanum að koma til sín.
Þeir voru álfka miklar andstæður og Adonis og
Lúsífer.
- Einn í viðbót, hr. McNeel?
- Ekki strax. - Hvaða stúlka er þetta sem
situr þarna og horfir á mig?
Barney þurrkaði af borðinu, þó að enginn
blettur væri sjáanlegur á því, og gaut augunum
til hennar.
- Ljóshærða hnákan með eyrnalokkana og
brjóstnálina? Haldið þér að hún sé loðin um
lófana?
McNeel átti bágt með að verjast hlátri. -
Þetta var mergurinn málsins. Það var auðséð
að Barney hafði orðið margs vísari af að fylgj-
ast með ferli McNeels undanfarna mánuði.
- Ég veit það ekki. Ég hef að minnsta kosti
aldrei séð hana áður.
- Hún er hreint ekki ósnotur. Hvað er hún
að drekka?
- Hún hefur skellt í sig hverjum kampavfns-
kokkteilnum eftir annan. Það lítur út fyrir aö
hún hafi orðið fyrir einhverju mótlæti.
McNeel drakk úr glasinu og ýtti því fram á
borðið. - Gefið mér aftur i glasið, Barney, og
einn kampavínskokkteil handa dömunni með
kveðju frá mér.
Bareigandinn glotti og leit aðdáunaraugum á
McNeel. - Þér kunnið lagið á þeim, hr.
McNeel. Þessir ungu piltar hérna eru hreinustu
viðvaningar í samanburði við yður. Það fer
ekki á milli mála að hvað ungur nemur, gamall
temur.
Greg McNeel vissi að hann átti þetta hrós
skilið. Hann hafði ræktað með sér þennan
hæfileika í meira en tuttugu ár svo að hann
kunni sína hluti en honum gramdist bara að
Barney skyldi leggja svona mikla áherslu á
orðið „gamall". McNeel var þrjátfu og níu ára
en hann var raunsæismaöur og reyndi ekki að
blekkja sjálfan sig. Honum var vel Ijóst að hann
var að fá undirhöku. Upp á síðkastið loddu allt-
af fleiri og fleiri hár við hárburstann á morgn-
ana og hann varð að ganga í lífstykki til að
leyna því að hann var að byrja að fá ístru. Með
málshættinum: Hvað ungur nemur, gamall
temur - hafði Barney minnt hann á að nú var
tími til kominn fyrir hann að festa ráð sitt. Best
að gera það strax, meðan úr nógu var að velja.
Hann gaf sig á tal við Klarissu og eftir að
hann hafði gefið henni nokkra kokkteila sagði
hún honum að hún væri gift Harry Melton,
manni sem væri helmingi eldri en hún og mjög
ríkur.
Eitt kvöldið, þegar þau voru að dansa sam-
an á litlum veitingastað í Jersey, sagði hún: -
Ég er eins og fugl í gullnu búri.
- Það er varla mjög vel lokað, annars værir
þú ekki hér í kvöld.
- Harry fór til Chicago í viðskiptaerindum.
Hann fer sjaldan að heiman en þegar hann fer
verð ég að komast eitthvað út til að ganga ekki
alveg af vitinu.
- Enginn hefur þó þröngvað þér til að giftast
honum, sagði hann brosandi. - Eða var þér
kannski ógnað með skammbyssu?
Hlátur hennar var beiskjublandinn. - Við
konur erum veikar á svellinu ef peningar eru
annars vegar og ég féll fyrir freistingunni. -
Hún snerti varir hans með einum fingri. - En
nú skulum við reyna að skemmta okkur. Við
getum hugsað okkur að ég sé Öskubuska og
klukkan sé ekki orðin tólf. - Vonandi verður
hún það aldrei. Stöðvið allar klukkur! - Hún hló
glaðlega. - Það var auöheyrt að þetta er ekki í
fyrsta skipti sem þú skjallar konu en mér geðj-
ast vel að þér.
Klarissa hafði rétt að mæla - hann vissi
hvernig átti að umgangast konur.
Harry Melton fór nú oft að heiman og í hvert
skipti hraðaði Klarissa sér á stefnumót við
Greg. Þau hittust á afviknum stöðum og aldrei
nema einu sinni á sama staö.
- Ég elska hann ekki en ég dýrka pening-
ana hans, sagði Klarissa við Greg. - En hún
bauðst aldrei til að borga reikninginn, enda
þótt hann gæfi henni f skyn aö hann væri
blankur. Hún sagðist ekki vilja eyöa peningum
meðan Harry væri fjarverandi, þvi aö hvernig
ætti hún að útskýra það fyrir honum þegar
hann kæmi heim?
Um það bil mánuði seinna leit Greg inn á
barinn hjá Barney.
- Þér eruð ekki daglegur gestur um þessar
mundir, hr. McNeel!
- Ég hef verið önnum kafinn, sagði Greg.
Barney leit kankvfslega á hann. - Er það litla
hnákan með eyrnalokkana og brjóstnálina?
sagði hann og byrjaði að blanda drykkinn.
McNeel yppti öxlum en bareigandinn brosti út
að eyrum.
- Vel af sér vikið! Ef ég á að segja mína
meiningu þá verða þessir ungu strákar alltaf
að láta í minni pokann þegar pabbi gamli er á
ferðinni.
Ennþá haðfi McNeel hugboð um að Barney
væri að skensa hann vegna aldursins og hann
sagði, súr á svipinn: - Já, þér getið trútt um tal-
að en allir höfum við einhverjar áhyggjur.
- Slíkar áhyggjur væru mér ekki á móti
skapi, sagði Barney og rétti honum drykkinn. -
Þær mættu gjarnan vera þrjár, ein Ijóshærð,
ein rauðhærð og ein dökkhærð. Nei, hr.
McNeel, ef þér giftið yður eigum við á bak að
sjá einu mesta kvennagulli bæjarins, á því er
enginn vafi!
Barney fór að afgreiða annan viðskiptavin
en McNeel sat kyrr og dreypti á víninu ööru
hverju. Hann var f rauninni að hugsa um
hjónaband. Hann hafði ekkert á móti því aö
kvænast Klarissu ef þess væri nokkur kostur.
Honum leist reglulega vel á hana og kannski
var hægt að koma skilnaðinum í kring þannig
að maðurinn yrði að sjá henni fyrir sæmilegu
viðurværi.
Barney kom nú aftur og tók tómt glas Mc-
Neels og leit spyrjandi á hann og þegar hann
kinkaði kolli fór hann að blanda annan Martini.
- Já, eins og ég sagði áöan hefði ég ekkert
á móti því að hafa sams konar áhyggjur og
þér, hr. McNeel. En ef svona ófríður náungi
eins og ég reynir að koma sér í mjúkinn hjá
þessum hnákum hlæja þær bara upp í opið
geðið á manni.
McNeel brosti og Barney hélt áfram: - Þó að
undarlegt kunni aö virðast fyrirfinnast hnákur
sem geðjast vel aö manni þó að ekki sé fríð-
leikanum fyrir að fara. Ætli það sé ekki ein-
hvers konar móöurást? En það er ekki fyrir-
hafnarlaust að ná vinfengi þeirra. En það er
kannski bættur skaðinn, það þroskar að
minnsta kosti heilabúið.
Eitt kvöld nokkru síðar minntist Greg þess-
ara orða bareigandans. Hann hafði snætt
kvöldverð með Klarissu. Síðan héldu þau til
eins þessara ódýru veitingastaða sem Klarissa
vildi endilega venja komur sínar á. Þau höfðu
dansað dálítið og drukkið nokkra sjússa.
Barney mundi aldrei deyja ráðalaus. Hann
hafði rétt fyrir sér í því að maður varð að þjálfa
heilabúið, hugsaði McNeel. - Ef til vill hef ég
hjakkað of lengi í sama farinu.
- Um hvað ertu að hugsa? spurði Klarissa.
Hann varð sér þess meðvitandi að hann sat
með hrukkað ennið. - Það er mikið alvörumál.
Ég var að hugsa um þig og mig - um okkur.
Hún kinkaði kolli og fitlaði viö glas sitt. Eftir
augnabliksþögn sagði hún: - Harry vill að við
flytjumst suður á bóginn.
Hrukkurnar á enni McNeels urðu enn dýpri.
- Hann hefur verið að gera út ýmis viðskipti
og segist vera orðinn svo fjáður að hann geti
tekið sér hvíld frá störfum, að minnsta kosti að
einhverju leyti. Hann vill flytjast til Miami eða
vesturstrandarinnar, ef til vill til Sarasota.
McNeel varð ónotalega við. Hann sem hafði
beðið eftir Klarissu í öll þessi ár!
- Þú getur ekki gert þetta, Klarissa. Við sem
elskum hvort annað. Er það þér einskis virði?
Hún hló gleðivana. - Hvað get ég gert? Álft-
ur þú kannski að ég ætti að yfirgefa hann?
Ég... hann þagnaði þegar hann sá að
hann var kominn út á hálan ís. - Ég get ekki
ætlast til þess af þér. Eins og þú veist er ég al-
veg peningalaus.
- Já, ég veit það, ástin mín. - Hún strauk
um hönd hans.
- Ef til vill hugkvæmist okkur eitthvað en nú
langar mig til að dansa.
Hann reyndi að tala um fyrir sjálfum sér.
38 VIKAN 15. TBL1991