Vikan


Vikan - 25.07.1991, Page 38

Vikan - 25.07.1991, Page 38
SAKAMÁLASAGA EFTIR RICHARD HARDWICK KÖLD ERU KVENNARÁÐ Greg MacNeel reyndi að treina sér drykkinn, þó að hann hetði helst kosið að hvolfa honum í sig og panta sér annan. En hann vissi að það mundi ekki bæta úr skák - öðru nær. Enda þótt vínið róaði taugar hans mundi það einnig trufla dómgreind hans og það vildi hann forðast eins og á stóð. Hann átti um tvo kosti að velja. Annar var að hætta við Klarissu fyrir fullt og allt. Hann var ekki vanur að kippa sér upp við þess háttar. Hinn var að koma Harry Melton fyrir kattarnef. Þá gæti hann kvænst Klarissu og náð í alla peninga Harrys Melton. Hann dreypti á víninu og litaðist um á barnum. Hann hafði hitt hana hérna fyrir tæp- um þremur mánuðum. Hún hafði gefið honum auga i speglinum bak við afgreiðsluborðið. Greg McNeel var ekkert óvanur þvi að kven- fólkið gæfi honum gætur og enginn sem sá hann gat furðað sig á því. Hann hafði beint nef, pétursspor í höku, grá augu, svart, liðað hár og fallegar, hvítar tennur. Hann var í senn snyrti- legur og höfðinglegur. Öðrum karlmönnum geðjaðist ekki að honum en kvenfólkið dreymdi um hann í laumi. Hann vissi að Klarissa horfði á hann en lét eins og hann tæki ekki eftir því. Hann var eng- inn viðvaningur og tók öllu með ró. Eftir dálitla stund bar hann glasið að vörum sér og benti bareigandanum að koma til sín. Þeir voru álfka miklar andstæður og Adonis og Lúsífer. - Einn í viðbót, hr. McNeel? - Ekki strax. - Hvaða stúlka er þetta sem situr þarna og horfir á mig? Barney þurrkaði af borðinu, þó að enginn blettur væri sjáanlegur á því, og gaut augunum til hennar. - Ljóshærða hnákan með eyrnalokkana og brjóstnálina? Haldið þér að hún sé loðin um lófana? McNeel átti bágt með að verjast hlátri. - Þetta var mergurinn málsins. Það var auðséð að Barney hafði orðið margs vísari af að fylgj- ast með ferli McNeels undanfarna mánuði. - Ég veit það ekki. Ég hef að minnsta kosti aldrei séð hana áður. - Hún er hreint ekki ósnotur. Hvað er hún að drekka? - Hún hefur skellt í sig hverjum kampavfns- kokkteilnum eftir annan. Það lítur út fyrir aö hún hafi orðið fyrir einhverju mótlæti. McNeel drakk úr glasinu og ýtti því fram á borðið. - Gefið mér aftur i glasið, Barney, og einn kampavínskokkteil handa dömunni með kveðju frá mér. Bareigandinn glotti og leit aðdáunaraugum á McNeel. - Þér kunnið lagið á þeim, hr. McNeel. Þessir ungu piltar hérna eru hreinustu viðvaningar í samanburði við yður. Það fer ekki á milli mála að hvað ungur nemur, gamall temur. Greg McNeel vissi að hann átti þetta hrós skilið. Hann hafði ræktað með sér þennan hæfileika í meira en tuttugu ár svo að hann kunni sína hluti en honum gramdist bara að Barney skyldi leggja svona mikla áherslu á orðið „gamall". McNeel var þrjátfu og níu ára en hann var raunsæismaöur og reyndi ekki að blekkja sjálfan sig. Honum var vel Ijóst að hann var að fá undirhöku. Upp á síðkastið loddu allt- af fleiri og fleiri hár við hárburstann á morgn- ana og hann varð að ganga í lífstykki til að leyna því að hann var að byrja að fá ístru. Með málshættinum: Hvað ungur nemur, gamall temur - hafði Barney minnt hann á að nú var tími til kominn fyrir hann að festa ráð sitt. Best að gera það strax, meðan úr nógu var að velja. Hann gaf sig á tal við Klarissu og eftir að hann hafði gefið henni nokkra kokkteila sagði hún honum að hún væri gift Harry Melton, manni sem væri helmingi eldri en hún og mjög ríkur. Eitt kvöldið, þegar þau voru að dansa sam- an á litlum veitingastað í Jersey, sagði hún: - Ég er eins og fugl í gullnu búri. - Það er varla mjög vel lokað, annars værir þú ekki hér í kvöld. - Harry fór til Chicago í viðskiptaerindum. Hann fer sjaldan að heiman en þegar hann fer verð ég að komast eitthvað út til að ganga ekki alveg af vitinu. - Enginn hefur þó þröngvað þér til að giftast honum, sagði hann brosandi. - Eða var þér kannski ógnað með skammbyssu? Hlátur hennar var beiskjublandinn. - Við konur erum veikar á svellinu ef peningar eru annars vegar og ég féll fyrir freistingunni. - Hún snerti varir hans með einum fingri. - En nú skulum við reyna að skemmta okkur. Við getum hugsað okkur að ég sé Öskubuska og klukkan sé ekki orðin tólf. - Vonandi verður hún það aldrei. Stöðvið allar klukkur! - Hún hló glaðlega. - Það var auöheyrt að þetta er ekki í fyrsta skipti sem þú skjallar konu en mér geðj- ast vel að þér. Klarissa hafði rétt að mæla - hann vissi hvernig átti að umgangast konur. Harry Melton fór nú oft að heiman og í hvert skipti hraðaði Klarissa sér á stefnumót við Greg. Þau hittust á afviknum stöðum og aldrei nema einu sinni á sama staö. - Ég elska hann ekki en ég dýrka pening- ana hans, sagði Klarissa við Greg. - En hún bauðst aldrei til að borga reikninginn, enda þótt hann gæfi henni f skyn aö hann væri blankur. Hún sagðist ekki vilja eyöa peningum meðan Harry væri fjarverandi, þvi aö hvernig ætti hún að útskýra það fyrir honum þegar hann kæmi heim? Um það bil mánuði seinna leit Greg inn á barinn hjá Barney. - Þér eruð ekki daglegur gestur um þessar mundir, hr. McNeel! - Ég hef verið önnum kafinn, sagði Greg. Barney leit kankvfslega á hann. - Er það litla hnákan með eyrnalokkana og brjóstnálina? sagði hann og byrjaði að blanda drykkinn. McNeel yppti öxlum en bareigandinn brosti út að eyrum. - Vel af sér vikið! Ef ég á að segja mína meiningu þá verða þessir ungu strákar alltaf að láta í minni pokann þegar pabbi gamli er á ferðinni. Ennþá haðfi McNeel hugboð um að Barney væri að skensa hann vegna aldursins og hann sagði, súr á svipinn: - Já, þér getið trútt um tal- að en allir höfum við einhverjar áhyggjur. - Slíkar áhyggjur væru mér ekki á móti skapi, sagði Barney og rétti honum drykkinn. - Þær mættu gjarnan vera þrjár, ein Ijóshærð, ein rauðhærð og ein dökkhærð. Nei, hr. McNeel, ef þér giftið yður eigum við á bak að sjá einu mesta kvennagulli bæjarins, á því er enginn vafi! Barney fór að afgreiða annan viðskiptavin en McNeel sat kyrr og dreypti á víninu ööru hverju. Hann var f rauninni að hugsa um hjónaband. Hann hafði ekkert á móti því aö kvænast Klarissu ef þess væri nokkur kostur. Honum leist reglulega vel á hana og kannski var hægt að koma skilnaðinum í kring þannig að maðurinn yrði að sjá henni fyrir sæmilegu viðurværi. Barney kom nú aftur og tók tómt glas Mc- Neels og leit spyrjandi á hann og þegar hann kinkaði kolli fór hann að blanda annan Martini. - Já, eins og ég sagði áöan hefði ég ekkert á móti því að hafa sams konar áhyggjur og þér, hr. McNeel. En ef svona ófríður náungi eins og ég reynir að koma sér í mjúkinn hjá þessum hnákum hlæja þær bara upp í opið geðið á manni. McNeel brosti og Barney hélt áfram: - Þó að undarlegt kunni aö virðast fyrirfinnast hnákur sem geðjast vel aö manni þó að ekki sé fríð- leikanum fyrir að fara. Ætli það sé ekki ein- hvers konar móöurást? En það er ekki fyrir- hafnarlaust að ná vinfengi þeirra. En það er kannski bættur skaðinn, það þroskar að minnsta kosti heilabúið. Eitt kvöld nokkru síðar minntist Greg þess- ara orða bareigandans. Hann hafði snætt kvöldverð með Klarissu. Síðan héldu þau til eins þessara ódýru veitingastaða sem Klarissa vildi endilega venja komur sínar á. Þau höfðu dansað dálítið og drukkið nokkra sjússa. Barney mundi aldrei deyja ráðalaus. Hann hafði rétt fyrir sér í því að maður varð að þjálfa heilabúið, hugsaði McNeel. - Ef til vill hef ég hjakkað of lengi í sama farinu. - Um hvað ertu að hugsa? spurði Klarissa. Hann varð sér þess meðvitandi að hann sat með hrukkað ennið. - Það er mikið alvörumál. Ég var að hugsa um þig og mig - um okkur. Hún kinkaði kolli og fitlaði viö glas sitt. Eftir augnabliksþögn sagði hún: - Harry vill að við flytjumst suður á bóginn. Hrukkurnar á enni McNeels urðu enn dýpri. - Hann hefur verið að gera út ýmis viðskipti og segist vera orðinn svo fjáður að hann geti tekið sér hvíld frá störfum, að minnsta kosti að einhverju leyti. Hann vill flytjast til Miami eða vesturstrandarinnar, ef til vill til Sarasota. McNeel varð ónotalega við. Hann sem hafði beðið eftir Klarissu í öll þessi ár! - Þú getur ekki gert þetta, Klarissa. Við sem elskum hvort annað. Er það þér einskis virði? Hún hló gleðivana. - Hvað get ég gert? Álft- ur þú kannski að ég ætti að yfirgefa hann? Ég... hann þagnaði þegar hann sá að hann var kominn út á hálan ís. - Ég get ekki ætlast til þess af þér. Eins og þú veist er ég al- veg peningalaus. - Já, ég veit það, ástin mín. - Hún strauk um hönd hans. - Ef til vill hugkvæmist okkur eitthvað en nú langar mig til að dansa. Hann reyndi að tala um fyrir sjálfum sér. 38 VIKAN 15. TBL1991

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.