Vikan


Vikan - 25.07.1991, Blaðsíða 39

Vikan - 25.07.1991, Blaðsíða 39
Klarissa var ekki eina konan í heiminum en konur, sem voru margra milljóna viröi, voru samt ekki á hverju strái. Hann var viss um aö Klarissa mundi giftast honum og þola meö honum stúrt og sætt ef hann færi fram á það. Hann sá þetta fyrir sér í huganum: Klarissa og hann í þægindalausri íbúð með bakgarði. Eftir nokkur ár yrðu þau umkringd af æpandi krökk- um og hinn myndarlegi Greg McNeel hlypi í spik þar sem hann sæti með bjórglasið og horfði á sjónvarp. Hann hryllti við tilhugsuninni einni saman. Siðdegis næsta dag leit hann að venju inn á barinn hjá Barney. Barney gat þó alltaf komið honum í gott skap. Barney blandaði drykkinn. Siðan tók hann blað sem lá fyrir framan hann á borðinu. - Háfið þér lesið um þennan náunga í Flór- ída? - Nei, hvað um hann? - Ég hef fylgst með þessu í blöðunum undanfarið en ég hefði sannarlega reynt að spjara mig betur hefði ég verið í hans sporum. Með þessu móti fer hann beint í rafmagnsstól- inn. McNeel leit í blaðið og sá mynd af þver- móðskulegum, ungum manni og lögregluþjónn stóð við hlið hans. - Hafið þér ekki heyrt um þetta? spurði Barney. McNeel hristi höfuðið. - Þessu var raunar þannig háttað að piltur- inn ætlaði að kvænast dóttur auðkýfings nokk- urs í Chicago en karlinn sá við honum og sagði við dótturina að ef hún hitti náungann aftur mundi hann gera hana arflausa. Þá kálaði pilt- urinn karlinum í þeirri sælu trú aö dóttirin fengi arfinn. - Hvernig fór þetta? - Það fór allt I handaskolum hjá stráknum og hann fer áreiðanlega beint í stólinn. - Hvað hefðuð þér gert? spurði McNeel leti- lega. - Ég skal segja yður hvað hann hefði átt að gera. Hann hefði átt að fara sína leið og látast vera hættur við allt saman en hafa jafnframt gætur á karlinum. Seinna hefði hann getaö komið að honum óvörum og slegið hann í rot- látið það líta út eins og innbrotsþjófur hefði verið á ferðinni - og eftir hæfilegan langan tíma hefði allt getað fallið í Ijúfa löð með hon- um og dótturinni. - Hann bar hönd að enni sér. - Maður hefur þó alltaf einhverja vitglóru í koll- inum. Eitthvað svipað þessu hafði verið að brjótast um í undirvitund McNeels undanfarna daga. Nú vissi hann að dauði Harrys Melton var eina úrlausnin. En hann hryllti við tilhugsuninni og hafði sneitt hjá henni i lengstu lög og það var ekki neitt tilhlökkunarefni að eiga það kannski á hættu að lenda í rafmagnsstólnum. En það voru þó miklar líkur til þess að hann kæmist undan. Enginn vissi um samband hans við Klarissu. Samkvæmt ósk hennar höfðu þau alltaf farið huldu höfði. Nú var það langt liðið á daginn að siðdegis- gestirnir voru komnir. Greg bað um annan Martini og horfði á Barney þar sem hann var í óðaönn að afgreiða gestina. Hann er hreint ekki svo vitlaus þessi piltur, hugsaði hann. Af vörum brjóstmylkinga og bareigenda fær mað- ur að heyra sannleikann ... Þetta var sannar- lega erfitt viðfangsefni og ef það mistækist væri hann búinn að vera. En hvers vegna ætti það að mistakast? Allt í einu datt honum í hug það sem Klarissa hafði sagt: „Ef til vil hug- kvæmist okkur eitthvað." Hafði hún átt við morð? Kannski hafði hún aðeins viljað gefa það i skyn en ekki viljað segja það hreint og beint. Það hefði verið heldur óhugnanlegt ef hún hefði komið með slíka uppástungu þar sem hann sjálfur átti að veröa seinni eiginmað- ur hennar... Hann mætti þá kannski vera við öllu búinn þegar hún kæmi með morgunkaff- ið ... svo að það var í sjálfu sér mjög eðlilegt að hún vildi ekki leggja á ráðin en aðeins gefa honum smábendingu. Þegar McNeel hitti Klarissu í næsta skipti, sagði hún: - Harry er væntanlegur frá Los Angeles á morgun, síðan fer hann til Atlanta og verður þar alla vikuna. Hann er að gera út um einhver viðskipti. Hann vill flytjast til Flórída svo fljótt sem auðið er. - Hvenær verður það? - Eftir tæpan mánuð, hugsa ég. Hann hefur tekið á leigu hús við Miamiströndina og segist geta stjórnað viðskiptunum þaðan þangað til hann hefur komið öllu í kring. McNeel lyfti glasinu. - En fyrst fer hann til Atlanta? - Já, ég er búin að útvega honum farmiða með flugvélinni og panta hótelherbergi. Hann ætlar að búa á Imperial Plaza og fer með flug- vélinni klukkan kortér yfir sex á föstudaginn. McNeel lagði við hlustirnar. Kannski var það bara af tilviljun að hún gaf honum þessar upp- lýsingar - en hvers vegna var hún að segja honum hvar Harry ætlaði að búa og hvenær hann færi ef hún meinti ekkert meö þvi? Hann tók matseðilinn og rannsakaði hann nákvæm- lega. - Humarirm hlýtur að vera góður. Eigum við að biðja um eina flösku af Rínarvíni? Hann vætti varirnar. - Kortér yfir sex, var það ekki? - Á föstudaginn, sagði Klarissa. - Ég er viss um að humarinn er ágætur. McNeel hafði séö myndir af Harry Melton í blöðunum öðru hverju og þekkti hann af þeim. McNeel keypti sér farmiða með sömu flugvél og gaf upp nafnið Clarence Smith. Hann sat fjórum sætaröðum fyrir aftan Melton. Þegar flugvélin lenti í Atlanta náði McNeel sér í leigubíl, ók til borgarinnar og settist að á litlu annars flokks hóteli í grennd við Imperial Plaza. Hann var mjög taugaóstyrkur þegar hann tók skammbyssuna upp úr ferðatöskunni og stakk henni á sig. Hann hringdi til Imperial Plaza og fékk að vita herbergisnúmer Meltons og einnig að hann var nýkominn til hótelsins. McNeel fór til Imperial Plaza, beið í forsalnum og þóttist vera að lesa í blaði þartil eiginmaður Klarissu birtist. McNeel elti hann út á götu og hafði ekki augun af honum. Hann var allur í einu svitabaði. Nú mátti honum ekki fipast. í þessu beygði Melton inn á hliðargötu. Það leit út fyrir að hann væri á skemmtigöngu. Barney stóð við afgreiðsluborðið þegar sím- inn hringdi. - Sæl og blessuð, sagði hann. Hann hlustaði af miklum áhuga dálitla stund, síðan kinkaði hann kolli. - Þá er allt í þessu f ína lagi, er það ekki? Nei, hafðu engar áhyggj- ur þess vegna. Það gerir ekkert til þó að hann hafi ekki náðst ennþá. Ef hann reynir að flækja þér í málið kemur hann upp um sjálfan sig um leið og fer beint í stólinn. Nei, ástin mín, eng- inn veit að þú þekkir hann ... Barney hlustaði lengi ennþá og kinkaði kolli eins og sá sem tal- aði gæti séð hann. Þegar hann loks tók til máls var viðkvæmnin svo mikil að við lá að hann vatnaði músum. - Ég veit að þú elskar mig, Klarissa, og þú veist að ég elska þig. En þú skilur... Það er ekki viðeigandi að gera það strax þegar Harry er nýlátinn. Við verðum að bíða nokkra mánuði. Já, vissulega. Eftir nokkra mánuði getum við gift okkur. □- 15.TBL1991 VIKAN 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.