Vikan - 25.07.1991, Qupperneq 39
Klarissa var ekki eina konan í heiminum en
konur, sem voru margra milljóna viröi, voru
samt ekki á hverju strái. Hann var viss um aö
Klarissa mundi giftast honum og þola meö
honum stúrt og sætt ef hann færi fram á það.
Hann sá þetta fyrir sér í huganum: Klarissa og
hann í þægindalausri íbúð með bakgarði. Eftir
nokkur ár yrðu þau umkringd af æpandi krökk-
um og hinn myndarlegi Greg McNeel hlypi í
spik þar sem hann sæti með bjórglasið og
horfði á sjónvarp. Hann hryllti við tilhugsuninni
einni saman.
Siðdegis næsta dag leit hann að venju inn á
barinn hjá Barney. Barney gat þó alltaf komið
honum í gott skap. Barney blandaði drykkinn.
Siðan tók hann blað sem lá fyrir framan hann
á borðinu.
- Háfið þér lesið um þennan náunga í Flór-
ída?
- Nei, hvað um hann?
- Ég hef fylgst með þessu í blöðunum
undanfarið en ég hefði sannarlega reynt að
spjara mig betur hefði ég verið í hans sporum.
Með þessu móti fer hann beint í rafmagnsstól-
inn.
McNeel leit í blaðið og sá mynd af þver-
móðskulegum, ungum manni og lögregluþjónn
stóð við hlið hans.
- Hafið þér ekki heyrt um þetta? spurði
Barney. McNeel hristi höfuðið.
- Þessu var raunar þannig háttað að piltur-
inn ætlaði að kvænast dóttur auðkýfings nokk-
urs í Chicago en karlinn sá við honum og sagði
við dótturina að ef hún hitti náungann aftur
mundi hann gera hana arflausa. Þá kálaði pilt-
urinn karlinum í þeirri sælu trú aö dóttirin fengi
arfinn.
- Hvernig fór þetta?
- Það fór allt I handaskolum hjá stráknum
og hann fer áreiðanlega beint í stólinn.
- Hvað hefðuð þér gert? spurði McNeel leti-
lega.
- Ég skal segja yður hvað hann hefði átt að
gera. Hann hefði átt að fara sína leið og látast
vera hættur við allt saman en hafa jafnframt
gætur á karlinum. Seinna hefði hann getaö
komið að honum óvörum og slegið hann í rot-
látið það líta út eins og innbrotsþjófur hefði
verið á ferðinni - og eftir hæfilegan langan
tíma hefði allt getað fallið í Ijúfa löð með hon-
um og dótturinni. - Hann bar hönd að enni sér.
- Maður hefur þó alltaf einhverja vitglóru í koll-
inum.
Eitthvað svipað þessu hafði verið að brjótast
um í undirvitund McNeels undanfarna daga.
Nú vissi hann að dauði Harrys Melton var eina
úrlausnin. En hann hryllti við tilhugsuninni og
hafði sneitt hjá henni i lengstu lög og það var
ekki neitt tilhlökkunarefni að eiga það kannski
á hættu að lenda í rafmagnsstólnum. En það
voru þó miklar líkur til þess að hann kæmist
undan. Enginn vissi um samband hans við
Klarissu. Samkvæmt ósk hennar höfðu þau
alltaf farið huldu höfði.
Nú var það langt liðið á daginn að siðdegis-
gestirnir voru komnir. Greg bað um annan
Martini og horfði á Barney þar sem hann var í
óðaönn að afgreiða gestina. Hann er hreint
ekki svo vitlaus þessi piltur, hugsaði hann. Af
vörum brjóstmylkinga og bareigenda fær mað-
ur að heyra sannleikann ... Þetta var sannar-
lega erfitt viðfangsefni og ef það mistækist
væri hann búinn að vera. En hvers vegna ætti
það að mistakast? Allt í einu datt honum í hug
það sem Klarissa hafði sagt: „Ef til vil hug-
kvæmist okkur eitthvað." Hafði hún átt við
morð? Kannski hafði hún aðeins viljað gefa
það i skyn en ekki viljað segja það hreint og
beint. Það hefði verið heldur óhugnanlegt ef
hún hefði komið með slíka uppástungu þar
sem hann sjálfur átti að veröa seinni eiginmað-
ur hennar... Hann mætti þá kannski vera við
öllu búinn þegar hún kæmi með morgunkaff-
ið ... svo að það var í sjálfu sér mjög eðlilegt
að hún vildi ekki leggja á ráðin en aðeins gefa
honum smábendingu.
Þegar McNeel hitti Klarissu í næsta skipti,
sagði hún: - Harry er væntanlegur frá Los
Angeles á morgun, síðan fer hann til Atlanta
og verður þar alla vikuna. Hann er að gera út
um einhver viðskipti. Hann vill flytjast til Flórída
svo fljótt sem auðið er.
- Hvenær verður það?
- Eftir tæpan mánuð, hugsa ég. Hann hefur
tekið á leigu hús við Miamiströndina og segist
geta stjórnað viðskiptunum þaðan þangað til
hann hefur komið öllu í kring.
McNeel lyfti glasinu. - En fyrst fer hann til
Atlanta?
- Já, ég er búin að útvega honum farmiða
með flugvélinni og panta hótelherbergi. Hann
ætlar að búa á Imperial Plaza og fer með flug-
vélinni klukkan kortér yfir sex á föstudaginn.
McNeel lagði við hlustirnar. Kannski var það
bara af tilviljun að hún gaf honum þessar upp-
lýsingar - en hvers vegna var hún að segja
honum hvar Harry ætlaði að búa og hvenær
hann færi ef hún meinti ekkert meö þvi? Hann
tók matseðilinn og rannsakaði hann nákvæm-
lega. - Humarirm hlýtur að vera góður. Eigum
við að biðja um eina flösku af Rínarvíni? Hann
vætti varirnar. - Kortér yfir sex, var það ekki?
- Á föstudaginn, sagði Klarissa.
- Ég er viss um að humarinn er ágætur.
McNeel hafði séö myndir af Harry Melton í
blöðunum öðru hverju og þekkti hann af þeim.
McNeel keypti sér farmiða með sömu flugvél
og gaf upp nafnið Clarence Smith. Hann sat
fjórum sætaröðum fyrir aftan Melton. Þegar
flugvélin lenti í Atlanta náði McNeel sér í
leigubíl, ók til borgarinnar og settist að á litlu
annars flokks hóteli í grennd við Imperial
Plaza. Hann var mjög taugaóstyrkur þegar
hann tók skammbyssuna upp úr ferðatöskunni
og stakk henni á sig. Hann hringdi til Imperial
Plaza og fékk að vita herbergisnúmer Meltons
og einnig að hann var nýkominn til hótelsins.
McNeel fór til Imperial Plaza, beið í forsalnum
og þóttist vera að lesa í blaði þartil eiginmaður
Klarissu birtist. McNeel elti hann út á götu og
hafði ekki augun af honum. Hann var allur í
einu svitabaði. Nú mátti honum ekki fipast.
í þessu beygði Melton inn á hliðargötu. Það
leit út fyrir að hann væri á skemmtigöngu.
Barney stóð við afgreiðsluborðið þegar sím-
inn hringdi. - Sæl og blessuð, sagði hann.
Hann hlustaði af miklum áhuga dálitla stund,
síðan kinkaði hann kolli. - Þá er allt í þessu
f ína lagi, er það ekki? Nei, hafðu engar áhyggj-
ur þess vegna. Það gerir ekkert til þó að hann
hafi ekki náðst ennþá. Ef hann reynir að flækja
þér í málið kemur hann upp um sjálfan sig um
leið og fer beint í stólinn. Nei, ástin mín, eng-
inn veit að þú þekkir hann ... Barney hlustaði
lengi ennþá og kinkaði kolli eins og sá sem tal-
aði gæti séð hann. Þegar hann loks tók til máls
var viðkvæmnin svo mikil að við lá að hann
vatnaði músum. - Ég veit að þú elskar mig,
Klarissa, og þú veist að ég elska þig. En þú
skilur... Það er ekki viðeigandi að gera það
strax þegar Harry er nýlátinn. Við verðum að
bíða nokkra mánuði. Já, vissulega. Eftir
nokkra mánuði getum við gift okkur. □-
15.TBL1991 VIKAN 39