Vikan - 14.12.1950, Side 6
Jólablað Vikunnar 1950
6
ur, þegar hún var viss um að hann væri
í nálægð hennar.
En eftir því sem tíminn styttist til jól-
anna, óx fullvissa hennar. — Kristján
drengurinn hennar, myndi koma.
1 fyrstu var hún glöð og frjáls, við
þessa tilhugsun, — en nærri samhliða varð
hún hljóðlát og hugsandi. — Myndi hann
þá koma, til að leiða hana yfir þröskuld-
inn mikla? — Ennþá var hún varla við-
búinn. Undarlegt eftir öll þessi ár — en
það var nú svona samt.
Oft hafði drengurinn hennar verið nærri
henni, síðan hann fór, það vissi hún vel,
en nú myndi hún geta fundið hann, með
sínum hrjúfu höndum, og séð hann með
augunum, sem höfðu lýst henni út í mann-
lífið, og kennt henni að meta og virða, —
gleðjast og hryggjast, — eftir því sem
allt bylltist til, í hverfulu umrótinu.
Var hún ekki enn óreynd, þrátt fyrir öll
árin? — Ennþá barn, sem kveið fyrir að
mæta sjálfri sér, — sjá allt það liðna í
sínum eigin spegli? —
En Kristján drenginn sinn, gat hún
ekki fengið aftur, nema með því eina móti,
að hún færi með honum. — Hún gat ekki
leynt sig því, eða hvað átti þetta ákveðna
hugboð hennar að tákna?
Aðfangadagskvöldið rann upp. Guðrún
í Garðinum tók gamla jólatréð fram, og
setti kertin á það, í þeirri röð, sem Kristj-
án, drengurinn hennar, var vanur að hafa
þau. — Þetta hafði hún gert öll jólin síð-
an Kristján fór. Ef hann fengi að líta nið-
ur til hennar, myndi hann sjá allt eins og
það var, þegar þau voru síðast saman. •—
En var þetta nú í seinasta sinni, sem hún
skreytti þetta tré ? — Engan veginn fannst
henni það sennilegt. — En hvemig átti
hún þá að ráða þetta sterka hugboð, sem
var orðið að vissu hjá henni?
Hún var komin í dökka kjólinn sinn,
þann bezta sem hún átti til. — Gráa hárið
féll slétt og vandlega greitt, niður með
vöngunum. Það var virðulegur svipur, á
fölleitu andlitinu.
Guðrún setti litla borðið sitt fram á mitt
gólfið, og færði stólinn sinn að því. Hún
breiddi vandvirknislega, hvítan dúk á það.
Hún strauk úr honum brotin, og var venju
fremur hæg og seinvirk.
Allt í einu gerði hún sér grein fyrir því,
að hún var að hlusta.
Þessa stimd hlustaði Guðrún, af öllum
kröftum sálar sinnar, — og loks heyrði
hún, að það var barið ósköp hægt á hurð-
ina.
Á svipstundu risu allir kraftar hennar
úr dvala, hún hafði fundið sjálfa sig aftur.
Hún gekk fram að dyrunum.
Fyrir utan hurðina stóð Dóri litli, sonur
læknisins. Hann var með húfuna sína í
annarri hendinni en dálítinn böggul í
hinni.
— Ert það þú, góði minn, gerðu svo vel
að ganga inn, sagði Guðrún.
Drengurinn hrökk við, þegar hann var
ávarpaður. — Um leið og hann steig inn
í stofuna, sagði hann. — Já, það er ég
Guðrún. Gleðileg jól. —
— Gleðileg jól, góði minn, — sagði Guð-
rún, og klappaði honum á kollinn. —
Hvernig stendur á því, að þú ert kominn
hingað til mín í kvöld? —
Drengurinn horfði á gömlu konuna,
dökkum, bláum auginn.
— Ég er með böggul til þín, — sagði
hann. Ég man í haust, þegar ég var vond-
ur við þig í búðinni, en þú varst jafngóð
fyrir því, og fannst seðilinn minn og
fékkst mér hann, — Dóri var rauður út
að eyrum.
Guðrún sneri sér undan augnaráði
drengsins.
— Þú hefur verið eitthvað illa fyrir
kallaður, góði minn, — sagði hún.
— Ég ætla líka að biðja þig fyrirgefn-
ingar, — sagði Dóri lágt. — Amma sagði
að þú værir guð elskandi kona, sem dæmd-
ir ekki allt á verri veg. — Dóri barðist
við grátinn.
— Taktu þér þetta ekki svona nærri,
væni minn, — sagði Guðrún. — Þú verður
eflaust góður maður, sem gengur á guðs
vegum. —
Drengurinn leit á gömlu konuna tárvot-
um augum, og hvíslaði svo lágt að varla
heyrðist. — Eg hefi reynt að vanda mig
allan desember. Mig langar svo að vera
Guð elskandi eins og þú. — Hann lagði
ennið á borðröndina, og grét með þungum
ekka.
Baráttan kemur á öllum aldri til mann-
anna, — hugsaði Guðrún gamla, og því
betra, því fyrr, sem þeir finna Guð í sínu
eigin brjósti. Hún strauk drengnum ástúð-
lega um kollinn. Loksins voru jólin fyrir
alvöru komin til hennar, um leið og hún
fékk ráðningu á því hugboði sínu, að hún
myndi hitta drenginn sinn um jólin.
Svarti kjúklingurinn
Barnasaga
Hænan gekk um g-arðinn og var
hreykin. Hún gat þó ekki farið mjög
langt, þar sem hún var tjóðruð. Um
aðra löppina á henni hafði verið lát-
inn járnhringur. En við hringinn var
fest band, sem bundið var um staur.
Hænan sagði við sjálfa sig: „Það
er auðséð, hve mönnunum þykir vænt
um mig. Þeir tjóðra mig til þess að
ég hlaupist ekki á brott, og einhver
ókunnugur nái mér. En það er engin
hætta á því að ég stryki, þó að ég
væri ekki tjóðruð. Mér kemur ekki
til hugar að fara frá sex indælum
kjúklingum, er ég á.“ Hænan gagg-
aði af gleði.
Umhverfis hænuna hlupu sex
kjúklingar. Þeir voru í raun og veru
sjö. En hænan taldi þann sjöunda
varla með. Hænan sagði við sjöunda
kjúklinginn:
„Ég skil það ekki hversvegna þú
varðst svartur, þar sem hinir kjúkl-
ingarnir urðu gulir og yndislegir. Það
er afar einkennilegt, að þú skyldir
verða kolsvartur."
Svarti kjúklingurinn svaraði: „Ég
á enga sök á þessu. Mér þykir gam-
an að því að vera öðruvísi en hinir
kjúklingarnir. Er það nokkuð betra
að allir kjúklingar séu gulir?“
En þrátt fyrir það, að svarti kjúkl-
ingurinn talaði svo borginmannlega,
leiddist honum að vera ekki eins og
hinir kjúklingarnir. Systkini hans
voru falleg, þvi varð ekki neitað.
„Ég álít að það sé bezt fyrir mig
að hverfa á braut,“ sagði svarti
kjúklingurinn við sjálfan sig. Honum
féll það mjög illa hve mamma hans
hafði hann útundan.
1 hvert sinn, sem hænan kallaði
á ungana til þess að gefa þeim eitt-
hvað góðgæti, var svarta kjúklingn-
um ýtt til hliðar.
„Ef til vill sakna þeir mín, þegar ég
er farinn," sagði hann við sjálfan sig.
Svo fór kjúklingurinn sína leið. En
hann fór ekki langt. Hann fór dá-
lítinn spöl niður I garðinn, þar sem
voru runnar, og hann gat falið sig.
Þarna kunni svarti kjúklingurinn
vel við sig, og hann hafði nóg að
eta. En þó saknaði hann dálítið móð-
ur sinnar og systkina. Hann heyrði
móður sina kalla og kalla. Þó að
henni þætti ekki eins vænt um svarta
kjúklinginn og þá gulu, vildi hún
ekki missa hann.
Litli flóttaunginn var kominn á
fremsta hlunn með að fara til móður
sinnar, er hann heyrði einhverja tala
saman í grenndinni.
„Sex, gulir kjúklingar mjög fal-
legir! Við getum hæglega stolið
þeim, þegar þeir fara frá móður
sinni. Þeir eru svo litlir, að það er
enginn vandi að ná þeim.“
Hinn ræninginn sagði: „Við getum
vafalaust selt þá fyrir gott verð. Við
bíðum þar til um miðjan daginn. Þá
er konan í húsinu í eldhúsinu að mat-
reiða og lítur ekki út í garðinn."
„Þetta er ágætt,“ sagði hinn. „Við
munum ná ungunum eins og að
drekka."
Svarti kjúklingurinn gægðist til
þess að sjá hverjir töluðu. Það voru
tveir vondir strákar. Þeir ætluðu að
stela systkinum hans. Kjúklingur-
inn hafði fyrr séð stráka þessa í
garðinum. Að likindum áttu þeir
heima í grenndinni. Þeir voru
hænsnaþjófar. Hugsa sér, að þessir
strákar skyldu vera svo illa innrætt-
ir. Kjúklingnum leið illa. Hann vissi,
að systkin hans voru i hættu.
„Ég verð að fara til mömmu og
systkina minna og gera þeim viðvart.
Það var heppni, að vondu strákarnir
sáu mig ekki. Þeir sáu mig ekki
vegna þess, að ég er svartur."
Skömmu síðar læddist kjúklingur-
inn af stað áleiðis til móður sinnar
og systkina.
„Þú verður barinn," sagði einn
unginn, er hann sá svarta kjúkling-
inn. „Mamma er svo reið vegna þess
að þú komst ekki, þegar hún kallaði.“
„Ekki býst ég við því,“ sagði svarti
unginni „Ég hef fréttir að segja
henni, sem hafa þau hárif, að hún
refsar mér ekki.“
Þétta reyndist sannleikur. Hænan
var byrjuð að skamma svarta ung-
ann en hætti því, þegar hann fór að
segja henni frá vondu strákunum.
Þegar hann hafði lokið frásög-
unni, sagði hann: „Var það ekki gott,
að ég heyrði hvað vondu strákarnir
ætluðu að gera?“
Hænan kallaði á alla gulu ungana
og sagði þeim frá hættunni, sem yfir
þeim vofði. Hún skipaði þeim að fara
ekki frá henni, heldur vera alltaf í
nánd við hana.
Hænunni og kjúklingunum sex
þótti vænt um að fá viðvörunina.
Hún bjargaði þeim frá því að lenda
í höndum þjófanna.
Þegar drengirnir komu, sáu þeir,
að ekki var hægt að stela ungunum
vegna þess, að þeir voru hjá móður
sinni. Ef þeir reyndu til þess að taka
þá, myndi hænan garga og óskapast
og fólkið í húsinu koma.
„Við verðum að fara eitthvað ann-
að og reyna að ná þar hænuungum,"
sagði annar drengjanna. Svo fóru
þeir.
Eftir þetta voru móðir og systkini
svarta kjúklingsins góð við hann.
Það má segja að hann væri elskaður
og virtur innan fjölskyldunnar.
Þegar hænan eignaðist góðan mat,
fékk svarti kjúklingurinn æfinlega
bezta bitann. Má því segja, að það
var af sem áður var.
Svarta kjúklingnum þótti nú ekki
framar leiðinlegt að vera svartur.