Vikan - 27.05.1992, Blaðsíða 10
þaö aö sjá fólk spila í spilavíti
Flamingo var fjöldinn fljótur aö
taka viö sér. Fólk streymdi
hvaðanæva að til að freista
gæfunnar. Veitingamenn voru
fljótir að finna peningalyktina og
reis hvert hóteliö á fætur öðru. (
kjölfarið fluttust margir búferlum
til borgarinnar og hefur fólks-
fjöldinn farið vaxandi undanfar-
in ár. Ekkert stórborgarsvæði í
Bandaríkjunum er í örari vexti
en Las Vegas og nú eru íbú-
arnir um 230.000.
Flestir íbúar borgarinnar
sinna störfum sem á einn eða
annan hátt tengjast hótelum
eða spilavítum. Núna eru 69
hótel í Las Vegas og í þeim eru
rúmlega sextíu þúsund her-
bergi. Þegar 202 mótel eru talin
með bætast við tæplega
sautján þúsund herbergi. Ekk-
ert lát virðist á vexti spila- og
hóteliðnaðarins; árlega eykst
herbergjafjöldinn þegar ný hótel
eru opnuð eða önnur stækkuð.
Níu af tíu stærstu hótelum
veraldar eru í Las Vegas. Árið
1989 var Mirage hótelið opnað
og bættust þá við 3.049 her-
bergi og árið eftir var Excalibur
opnað með 4.032 herbergjum.
Það ku nú vera stærsta hótel í
veröldinni.
Til viðbótar við stór og glæsi-
leg hótel státar borgin af
stærstu sýningarhöll Bandaríkj-
anna (Las Vegas Convention
Center) sem er 120.755 fer-
metrar. Árið 1990 komu 1,7
milljónir manna á 1.011 sýning-
ar og ráðstefnur í Las Vegas og
það jók tekjur bæjarbúa og fyrir-
tækja um 1,3 milljarða dollara.
Til að laða sem flesta til borg-
arinnar er verði á gistingu og
mat haldið í lágmarki. ( miðri
viku getur fólk fengið gistingu á
úrvals hóteli á allt niður í 10
dollara (600 kr. ísl.) en þess í
stað treysta rekstraraðilar hótel-
anna á að fólk eyði þeim mun
meira í spilavítum hótelanna.
Þetta virðist virka ágætlega -
tuttugu milljónir ferðamanna
leggja leið sína til Las Vegas
árlega og er innkoma spilavít-
anna um fjórir milljarðar dollara
(240 milljarðar ísl.) á ári. Þaö
nemur tvöfaldri upphæð ís-
lensku fjárlaganna og tuttugu
milljörðum betur.
SKEMMTANALÍF
Til viðbótar við fjárhættuspilin er
Las Vegas þekkt fyrir litrikt næt-
ur- og skemmtanalíf. Borgin er
stundum nefnd höfuðborg
skemmtanalífsins í heiminum.
Bill Cosby, Frank Sinatra, Liza
Minelli, Diana Ross og Cher
eru aðeins nokkrir af þeim
heimsfrægu skemmtikröftum
sem hafa sótt borgina heim.
< Loga-
gyllt tram-
hlið spila-
vítisins
Golden
Nugget
lokkar veg-
farendur
að.
▼ Warren
Beatty og
Annette
Bening í
Bugsy. Að
lokinni töku
myndarinn-
ar létu þau
pússa sig
saman i
hjónaband
- þó ekki i
Las
Vegas...
Elvis Presley kom oft fram (
borginni og var um tíma með
fastan samning við eitt hótel-
anna.
Las Vegas er einnig þekkt
fyrir íburðarmiklar uppákomur í
skemmtanalífinu þar sem ekk-
ert er sparað til að gera allt sem
glæsilegast. Heimsins bestu
töframenn eins og David Copp-
erfield hafa ávallt verið vinsælir
í Las Vegas.
Ekki má gleyma reglulegum
stórviðburðum eins og fegurð-
arsamkeppnum og boxkeppn-
um en allir frægustu boxarar
Bandaríkjanna hafa barist í Las
Vegas. Þegar slíkir viðburðir
eiga sér stað skipta milljónir
dollara um eigendur í veðmál-
um en þau eru mjög algeng í
borginni. Aðrir íþróttaviðburðir,
eins og tennis og golfmót, eiga
vaxandi vinsældum að fagna (
borginni.
T í spila-
vitunum
skipta doll-
ararnir um
eigendur
svo millj-
örðum
skiptlr.
Sumir efn-
asten flest-
ir fara fá-
tækari heim
en þeir
voru við
komuna til
borgarinn-
ar.
Þegar tekur að skyggja fær
borgin á sig nýjan svip sem ein-
kennist af Ijósadýrð og glæsi-
leika. Þá klæðir fólk sig í sitt fín-
asta skart og hjól næturlífsins
fara á fullan snúning. Algengt er
að fólk leigi sér limósínu með
bílstjóra i stað þess að taka
leigubíl. í borginni eru fyrirtæki
sem leigja út alls 240 limósínur
og það verður að teljast mikið í
borg með aðeins 550 leigubíla.
GIFTINGAR
„Vilt þú ganga að eiga ... “ eru
orö sem hljóma oft í Las Vegas
því árlega eru rúmlega 75 þús-
und pör gefin saman í borginni
eða sjöundu hverja mínútu.
Einu kröfurnar eru að viðkom-
andi séu orðin átján ára og þá
er hægt að kaupa giftingarvott-
orð - engin bið og engar blóð-
prufur eins og víða í Bandaríkj-
unum. Stórstjörnur á borð við
Elizabeth Taylor, Bruce Willis,
Richard Gere, Joan Collins,
Jon Bon Jovi og Frank Sinatra
eru meðal þeirra sem hafa lent
í hnappheldunni ( Las Vegas.
Það eru þrjátíu kapellur í
borginni - sumar inni á hótelun-
um - og bjóða þær upp á gift-
ingarvottorð fyrir 40 til 60 doll-
ara. Hægt er' að fá atburðinn
festan á myndband og þá bæt-
ast 90 dollarar á reikninginn.
Ýmsir aðrir valkostir eru í boði
eins og tónlist eftir smekk hvers
og eins, blóm og limósínuþjón-
usta. Þeir sem vilja gera atburð-
inn eftirminnilegri geta keypt
stuttermabol með nafni kapell-
unnar.
Ein kapellan býður upp á gift-
ingu í bíl og þarf því ekkert
annað en að aka upp að „kap-
ellulúgunni" og segja til nafns,
borga og taka við giftingarvott-
orðinu. Kossinn getur komið
síðar. Það er því jafnlítið mál að
ganga í það heilaga í Las Veg-
as og að kaupa sér kók og
prins ( Nesti á Ártúnshöfða.
Önnur kapella býður fólki upp á
athöfn „á ferð“. Þá á fólk kost á
þv! að gifta sig í bíl frá kapell-
unni og hefur þannig möguleika
á að gifta sig hvar sem er í
suðurhluta Nevada-fylkis nema
þar sem bílastöður eru bannað-
ar.
í Las Vegas þurfa brúðgum-
arnir ekki að hafa áhyggjur af að
brúöinni snúist hugur því hægt
er að drífa í giftingunni strax að
loknu bónorði þar sem flestar
kapellurnar eru opnar allan sól-
arhringinn, alla daga vikunnar.
Fyrsti dagur ársins er vinsæl-
asti dagurinn en júní er vinsæl-
asti giftingarmánuðurinn.
Það er augljóst að margt hef-
ur breyst í Las Vegas frá því
Bugsy opnaði Flamingo. Margir
álitu hann skrýtinn að láta sig
dreyma um að opna hótel á
þessum stað en hann gafst ekki
upp. Ekki er ofmælt að hann
hafi verið frumkvöðull með
meiru og að hugmynd hans hafi
hitt í mark; í lok myndarinnar
um Bugsy er tekið fram að tekj-
ur Flamingo frá opnun séu
komnar yfir 100 milljarða doll-
ara. Það er því óhætt að segja
að fjárfestingin í eyðimörkinni
hafi skilað sínu og gott betur.
Kvikmyndin um Bugsy hefur
fengið mjög góða dóma í
Bandaríkjunum og auk þess að
vera tilnefnd til ellefu óskars-
verðlauna vann hún Golden
Globe-verðlaunin sem besta
mynd ársins. □
Níu af tíu stærstu hótelum
heims eru í Las Vegas og enn er
verið að byggja fleiri hótel.
10 VIKAN 11.TBL.1992