Vikan - 27.05.1992, Qupperneq 42
VÆNTIR ÞU AF
KARLMÖNNUM?
p LU R S Ó N U L LU K A P R Ó F
tááú'
SETJUM SEM SVO . . .
í þessum hluta átf þú að velja það
svar sem þú telur líkjast þínum við-
brögðum við slíkar kringumstœð-
ur.
1. Kunningi þinn skipuleggur stefnumót
fyrir þig með „hlýjum og skemmtilegum"
manni. Þegar hann kemur að sækja þig
kemstu að því að það eina sem þér finnst
athyglisvert við hann er hvernig eyrun á
honum hreyfast þegar hann talar. Hvað
gerir þú?
A. Gerir þér upp skyndilegan lasleika. Þér leið
virkilega vel fyrir klukkutíma en núna ...
B. Ferð með honum en lofar sjálfri þér að þú
munir fara snemma heim.
C. Gefur honum tækifæri - kannski hefur hann
eitthvað meira til að bera.
D. Þú ferð ekki aðeins út með honum heldur
samþykkir einnig að hitta hann aftur- hann er
reglulega hlýr og indæll.
2. Þú og kærasti/eiginmaður þinn eruð
stödd í samkvæmi. Hann daðrar á mjög
áberandi hátt við fallegustu konuna á
staðnum. Hvernig bregst þú við?
A. Lætur sem þér sé alveg sama þó þú sért í
miklu uppnámi.
B. Reynir að halda ró þinni en springur svo um
leið og þið eruð komin út um dyrnar.
C. Yfirgefur samkvæmið á stundinni. Hver
þarfnast útskýringa?
D. Þér er alveg sama. Þú veist að þú ert alltaf
númer eitt hjá honum.
3. Þú kynnist frábærum manni sem hefur
einungis þann galla að hann er mjög ó-
stundvís. Þú:
A. Notar hvert tækifæri sem gefst til að minna
hann á hversu mikilvægt það er að vera
stundvís.
B. Kvartar nokkrum sinnum yfir þessu við hann
en þegar þú sérð að það gagnar ekki snýrðu
dæminu við og lætur hann bíða eftir þér.
C. Gerir ekkert í málinu - allir hafa einhverja
galla.
D. Segist munu hitta hann klukkutíma fyrr en
þú ætlar þér. Á þann hátt getur þú veríð nokk-
uð örugg um að hann mæti á réttum tíma.
4. Maður, sem þú ert alveg yfir þig ástfang-
in af segist ekki vera tilbúinn að skuld-
binda sig. Hann hyggst hitta aðrar konur en
þig og það sem meira er, hann vill að þú
hittir aðra karlmenn. Hvað gerist?
A. Þú ert mjög vonsvikin en ófús ferðu að hitta
aðra menn og að lokum skilur leiðir ykkar
tveggja.
B. Niðurbrotin lætur þú þig hverfa úr lifi hans.
Ef hann vill þig ekki á þeim skilmálum sem þú
setur fær hann þig alls ekki.
C. Blíðlega samþykkir þú þetta og framkvæmir
en vekur þó oft máls á skuldbindingu og þá oft
á krefjandi hátt.
D. Þú fellst á þetta eins og ekkert sé og gerir
hann svo afbrýðisaman að hann fer sjálfur að
ræða skuldbindingu.
5. Þú kynnist manni sem er myndarlegur,
heillandi, gáfaður, blásnauður, hefur alls
engan áhuga á peningum og er algerlega
metnaðarlaus. Hann biður þig um að segja
upp vinnunni og flytjast með sér á
afskekkt, lítið sveitabýli. Þú myndir:
A. Gera það meö ánægju! Margt af því besta í
lífinu er fritt og þú getur alltaf reynt að örva
metnaðargirni hans seinna.
B. Hika við að flækja þig alvarlega í þetta
samband. Maður, sem er svo metnaðarlaus,
gæti átt við einhver vandamál að stríða og þú
þarft að hugsa um eigin frama.
C. Forða þér!
D. Láta á þetta reyna meðan á sælunni
stendur. Ef hann er nægilega myndarlegur,
gáfaður og heillandi gætir þú hugsanlega að-
lagað þig að hans háttum.
Ert þú sú sem lætur alltaf undan — eða hin
sem ber höfuðið hátt og lætur hann
óhjákvæmilega bera virðingu fyrir sér?
42 VIKAN 11.TBL.1992