Vikan - 27.05.1992, Side 44
KROSSGÁTUGERÐ: GUÐJÓN BALDVINSSON
/ /l/PDP^ NTIRÞÚ AF
J*fVEr\0 KARLMÖNNUM?
114TIL 138 STIG
Þú krefst svo mikils af karlmönnum í lífi þínu
aö leitin aö heppilegum félaga er nánast
dæmd til aö bera ekki árangur - enginn gæti
lifaö í samræmi viö kröfur þínar. Þótt kald-
hæðnislegt sé þá er djúpstæö óánægja meö
sjálfa þig orsök þessara vonbrigöa í ástarlíf-
inu. Þér finnst þú vera hafin yfir flesta þá karl-
menn sem þú kynnist en á sama tíma nagar sá
grunur þig aö þú sért kannski ekki nógu góö
fyrir þá. Sá möguleiki er fyrir hendi aö þegar þú
varst barn hafi foreldrar þínir alið á þeirri trú aö
þú þyrftir aö skara fram úr á öllum sviðum. Oft
eru þaö foreldrar meö persónulegan, óuppfyllt-
an metnað sem beita slíkum þrýstingi á af-
kvæmi sín. Reyndu aö vera ekki svona óvæg-
in viö sjálfa þig, hver svo sem ástæöa þessar-
ar miskunnarlausu fullkomnunaráráttu þinnar
gæti verið. Um leið og þú hefur losað aöeins
um eigin tauma er aldrei aö vita nema full-
nægjandi rómantík komi óvænt upp í hendurn-
ar á þér.
84 TIL 113 STIG
Væntingar þínar til hugsanlegs maka eru mikl-
ar en ekki óraunsæjar þar sem þær eru í sam-
ræmi viö þær kröfur sem þú gerir til þín sjálfrar.
Þú ert vel meðvituð um þaö sem þú hefur til aö
bera, missir aldrei sjónar á takmarki þinu og
getur þar af leiöandi látiö eftir þér grunn og
saklaus skammtímasambönd. Þau fáu skipti
sem þú hefur verið særö hafa á endanum aö-
eins skerpt dómgreind þina og mat á ástinni
og hvers þú væntir af henni. Þú lítur stundum
út fyrir aö vera fremur tilfinningalaus og kulda-
leg en veist sjálf aö þú ert aðeins vandlát. Þú
gerir þér einnig grein fyrir því aö þú getur ein-
ungis metið verðleika annarra meö því aö bera
virðingu fyrir þínum eigin. Þetta viðhorf þitt
þýöir samt ekki aö þú sért köld og líflaus þegar
ástin er annars vegar því um leiö og þú hefur
fundiö veröugan félaga gefur þú þig alla.
Staðreyndin er sú aö þó hugsast geti aö þú
giftir þig seint er mjög líklegt aö þegar þar áö
kemur verði það fyrir lífstíð.
54 TIL 83 STIG
Þrátt fyrir aö fáeinar af þeim kröfum sem þú
gerir til karlmanna í lífi þínu séu ósveigjanleg-
ar ert þú fremur umburöarlynd á öðrum sviðum
og ert fær um aö finna hamingju meö fjölda
ólíkra manngeröa. Yfirleitt er sjálfsvirðing þín
þó heilbrigö, sem og væntingar þínar til félaga
þinna. Sú tilhneiging þín aö ýta varfærni og
skynsemi til hliðar, þegar heillandi maöur
kyndir undir ímyndunarafli þínu og tilfinning-
um, hefur haft í för með sér nokkur særindi en
einnig kennt þér mikið um eigin þarfir. Þó aö þú
sért nægilega sanngjörn og sveigjanleg til aö
sætta þig við félaga þína eins og þeir eru
væntir þú ósvikinnar ástar og hreinskipt traust
þitt er yfirleitt ríkulega launaö.
28 TIL 53 STIG
Ástin hefur svo sannarlega fariö óblíöum
höndum um þig og siendurtekin vonbrigöi hafa
leitt til þess aö væntingar þínar til karlmanna
eru of litlar. Þú líöur fyrir vöntun á sjálfsáliti, rétt
eins og konan sem krefst of mikils, þrátt fyrir
aö í þínu tilviki séu ástæöurnaraörar. Hún hef-
ur hugsanlega veriö kæfö meö of miklum af-
skiptum foreldra en aftur á móti er líklegt aö þú
hafir ekki fengiö nægilega athygli og umönnun
í uppeldinu. Mikilvægt er aö þú gerir þér grein
fyrir því aö þú eigir við vandamál aö striöa og
ætti þaö aö vera fyrsta skrefið í baráttu þinni
viö aö yfirvinna þessa skertu sjálfsímynd sem
hefur rænt þig hamingjunni í svo langan tíma.
Gangi þér vel... þú verðskuldar meiri vel-
gengni!
' - JY....... / STÓLP- fLft KíaJO- iaRaJRR. RiT- A&TfL 'ott- 4ÓT PRÍLf}í{ /y\uLö-
^ 3 EiHS KEVRÖU V > 3
i 'OLfAUZ. 'ONa) þboÐ- sw þofi AJEmR töluR MfíT- Öu£t4 >
\JEKuK i*yNT 1 > fl f<ht\ K'ÓLFOL ?
OKu/jO KUSKU& l/E RuR . / fc > >
/ /0 > H B'oK- strf
KE'úR i' KfíLL
HVOXT KL.3 E-H. <sl-oí R KEVR °l > > s~ >
R.E.ÍO- LA&ib PRiK V n > - T
/ l 3 y .r (c } 8 /o // '8, \
Lausnarorö í síöasta blaði 1-5: HALLA
44 VIKAN 11. TBL. 1992