Vikan - 27.05.1992, Qupperneq 46
VIKAN RÆÐIR VIÐ BIRNU BRAGADOTTUR SEM VAR KOSIN
FULLTRÚIÍSLANDS í FORD-FYRIRSÆTUKEPPNINNI Á SÍÐASTA ÁRI
ar uir og gruir
afpínulitlu
gulu fólki“
C£
'O
Q
<
o
£
CQ
CQ
<
co
<
Q
Q
'O
<
o
Þaö var hnuggin, ung
stúlka sem sá fram á aö
veröa aö hætta viö eins
árs dvöl í Brasilíu vegna
áverka sem hún hlaut er hún
varö fyrir bíl.
Fyrir rúmlega ári bjó Birna
Bragadóttir, sextán ára stúlka
á Álftanesi, sig undir að dvelja
sem skiptinemi í Brasilíu
ásamt vinkonu sinni. Til-
hlökkunin var mikil, sem gefur
aö skilja. Margt fer þó ööruvísi
en ætlað er, Birna lenti í því
óláni aö veröa fyrir bíl og fyrir-
ætlanir hennar um ársdvöl í
Brasilíu uröu að engu. Sem
betur fer brotnaði Birna hvergi
en hún hlaut áverka á fótum
og slæman hnykk á bak og
háls, sem hún er reyndar enn
ekki góö af.
Birnu hefur sjálfsagt ekki
grunaö aö önnur spennandi
ævintýri á fjarlægum slóöum
biöu hennar, þar sem hún lá
rúmföst og harmaði örlög sín.
Legan varð að vísu ekki löng
en þar sem meiöslin plöguðu
hana enn þótti ekki ráðlegt aö
senda hana til langrar dvalar í
fjarlægu landi. Auk þess var
ekki vitað hversu lengi hún
yrði aö jafna sig.
Eitt tekur viö af ööru. Móöir
Birnu haföi séö tilkynningu um
Ford-fyrirsætukeppnina og
sendi inn mynd af henni, án
hennar vitneskju. Fyrr en varði
haföi Birna verið valin í úrslit
og var farin aö æfa ásamt
mörgum öörum stúlkum.
Hvernig skyldi Birnu hafa oröiö
viö þegar hún uppgötvaöi aö
móðir hennar haföi sent mynd
í keppnina?
„Mér var alveg sama. Þaö
var bara gaman aö taka þátt í
þessu. Ég var svo niðurdregin
eftir að Ijóst var aö ég kæmist
ekki til Brasilíu aö þetta hressti
mig upp. Mér datt samt ekki í
hug eina sekúndu aö ég
mundi vinna. Þetta voru svo
margar stelpur."
Að keppninni lokinni bauðst
Birnu að vinna við fyrirsætu-
stöd hér heima, fyrst meö
Módel 79 og síðan meö lce-
landic Models (íslenskum
fyrirsætum). í júlí lá síðan leiö-
in til Los Angeles til aö taka
þátt í Ford-keppninni sem
nefnist „Supermodel of the
World“ og þýöa má sem ofur-
fyrirsæta heimsins.
„Þaö var æöislega garnan,"
sagöi Birna. „Maöur var bara
eins og lítil prinsessa. Viö vor-
um vaktar upp um klukkan sjö
á morgnana og vorum aö til
klukkan tólf á kvöldin. Keppn-
inni var sjónvarpað og mörg
atriöin voru tekin upp fyririram.
Þetta voru stanslausar æfing-
ar og myndatökur. Svo fórum
við út að borða á kvöldin og
fengum aö fara á skemmtilega
klúbba og í Disney-land.
Hótelið, sem viö bjuggum á,
var alveg frábært og verst aö
geta ekki notið þess aö vera
þar nema yfir blánóttina, því
viö vorum svo uppteknar."
Birna komst ekki í úrslit
þarna úti en eyddi tíu dögum
eftir keppnina hjá vinafólki í
Los Angeles og er hæst-
ánægö meö feröina. Hvaö tók
svo viö?
„Svo kom ég heim og vann
hér heima. Um haustiö sendi
umboösskrifstofa mín hér
heima myndir af mér til um-
boösskrifstofu í Mílanó og hún
vildi fá mig þangað í vinnu."
Á nýársdag siöastliöinn var
för Birnu svo heitið til Ítalíu.
Hún flaug til Lúxemborgar þar
sem hún beið í tíu tíma eftir
lest sem flutti hana til Mílanó.
„Þessi lest var alveg hryll-
ingur. Þetta var eins og fanga-
flutningalest. Ég þurfti aö sitja
frammi við klósett allan
tímann, þaö var svo troöið í
lestina. Þegar til Mílanó kom
var skítakuldi en ég haföi búist
viö sól og hita. Ég tók leigubíl
að skrifstofu umboðsins en
varð aö bíöa í nokkra tíma því
þaö var ekki búiö aö opna.“
Blaðamanni líst ekki á þess-
ar lýsingar og undrast aö eng-
inn skyldi taka á móti stúlk-
unni. Var ekki erfitt að vera
svona ein á ferö, ekki eldri en
þetta?
„Eiginlega bjóst ég viö aö
taka fyrstu vél til baka heirn,"
svarar Birna og hlær við. „En
umboðsskrifstofan var dugleg
að koma mér af staö og strax
á öðrum degi í Mílanó fékk ég
vinnu.“
Birna bjó í íbúö sem um-
boðsskrifstofan útvegaði
henni. Meö henni bjuggu tvær
stúlkur, önnur frá Kanada og
hin frá Bandaríkjunum.
„Fljótlega fluttist þessi
bandaríska burt og önnur kan-
adísk fluttist inn. Þær töluðu
bara frönsku svo ég var aö
veröa vitlaus af aö skilja
ekkert.“
Læröiröu einhverja ítölsku á
þessum tíma?
„Ég var farin aö geta bjarg-
aö mér en það er ekki hægt aö
segja að ég tali ítölsku. Þaö er
geysilega erfitt aö tala ensku á
Ítalíu því fæstir tala ensku.
Fólkið á götunni gerir þaö ekki