Vikan - 27.05.1992, Page 74
UMSJÓN: GUNNAR H, ÁRSÆLSSON
NÝJAR HLJÓMPLÖTUR
Frh. af bls. 57
Svar:
Giacomo Casanova. Hann
fæddist í Feneyjum þann 2.
apríl 1725. Honum tókst að
flýja með gondóla úr fangelsi
þar i borg árið 1756. Endur-
minningar sínar ritaði hann á
árunum 1791-1798 en þær
byggjast á öllu því sem hann
hafði haldið til haga í lífinu.
Hann safnaði öllu; ástarbréf-
um, fölsuðum vixlu, hótel-
reikningum og hárlokkum svo
örfá dæmi séu nefnd.
THE CURE:
WISH
SÁ FR/íGI HERSLUMUNUR
Ellefu stúdíóplötur, ein smá-
skífusafnplata, ein endurmix-
plata og tvær hljómleikaplötur.
Þetta er afrakstur starfs hljóm-
sveitarinnar The Cure frá
stofnun hennar áriö 1976 í
Bretlandi. Forsprakki sveitar-
innar er gítarleikarinn/
söngvarinn/furðufuglinn, oftar
en ekki varalitaði, Robert
Smith. Ásamt honum eru í The
Cure Simon Gallup (bassi),
Porl Thompson (gítar), Boris
Williams (trommur) og Perry
Bamonte, þriðji gítarleikarinn.
Þessir vösku sveinar hafa
nú borið fram eina krásina í
viðbót við allt hitt, The Wish.
Skemmst er frá því að segja
að platan er ein sú besta það
sem af er árinu og ein besta
Cure platan. Heilsteyptar
lagasmíðar, söngur Roberts,
hljóðfæraleikurinn, textarnir,
sem fjalla margir um óendur-
goldna ást, sumir pínulítið
þunglyndislegir - allt þetta
leggst á eitt og setur plötuna í
þann flokk sem kalla mætti
„næstum því meistaraverk".
Aðeins skortir herslumuninn
(eins og svo oft hjá fótbolta-
landsliðinul). Bestu lög: Open,
End, To Wish Impossible
Things, High, Doing the Un-
stuck og Friday l’m in Love,
sem er næsti smellur plötunn-
ar.
STJÖRNUGJÖF: ★★★★
UTANGARÐSMENN:
GEISLAVIRKIR
VIRKIR GEISLAR
Á næstu fimm árum eftir að
Sumar á Sýrlandi kom út varð
gjörbylting í íslenskri dægur-
tónlist, pönkbylgjan hafði riðið
í hlað með öllum sínum næl-
um og tilheyrandi. Helsta rokk-
sveit pönksins voru Utan-
garðsmenn meö „rokkgúrú-
inn“ Bubba Morthens öskrandi
og trylltan fremstan í flokki því
Utangarðsmenn voru ekki
pönksveit í þeim skilningi
heldur rokksveit undir sterkum
reggíáhrifum. Það sýnir best
fyrsta platan þeirra, Rækju-
reggí, frá 1980. Pönksveitirnar
voru til dæmis Q4U, Fræbbbl-
arnir og fleiri.
Sama ár kom svo út fyrsta
og eina breiðskífa Utan-
garðsmanna, að undanskilinni
safnplötunni í upphafi skyldi
endinn skoða. Þetta var platan
Geislavirkir, dúndrandi kraft-
mikil rokkplata á köflum, svo
sem f lögunum Hirósíma,
Poppstjarnan og í þekktasta
lagi plötunnar, Laus og liðug-
ur, sem er útgáfa sveitarinnar
á samnefndu lagi Lúdó og
Stefáns. Þeir sneru því á haus
og gáfu ímyndinni um síglaða
sjóarann langt nef. Þetta er nú
hægt að hlusta á á geisladiski.
Og það var fleirum gefið
langt nef, efnafólk fékk ákúrur
svo og atvinnurekendur. Her-
inn fékk líka sinn skerf og svo
mætti lengur telja. Athygl-
isverðasta hlið þessara plötu
finnst undirrituðum reggírokk-
ið sem þeir voru að prófa sig
áfram með í lögum á borð við
Visku Einsteins, Barnið sefur
og Chinese Reggae. Hefði
verið gaman að vita hvernig
það hefði þróast með árunum.
Þaö varð aldrei og sveitin
leystist upp eftir útkomu plöt-
unnar 45 rpm. árið 1981.
Bubbi hélt sína leið og þá
sögu þekkja allir.
STJÖRNUGJÖF: ★★★★
STUÐMENN:
SUMAR Á SÝRLANDI
GLEÐILEGT SUMARN
Allt frá því að Sumar á Sýr-
landi kom út þann 17. júní árið
1975 hafa lögin af plötunni
hljómað reglulega í útvarpi
landsmanna, sum meira en
önnur eins og gefur að skilja;
Út’ á stoppistöð, Strax í dag, í
bláum skugga, Tætum og
tryllum, She Broke My Heart
og Á Spáni. Þessi lög eru
greypt inni i þjóðarsálina og
fara þaðan aldrei aftur.
Stemmningin, sem er yfir
þessari plötu, er þvílík að ekki
er hægt annað en að fara í
gott skap þegar hlustað er á
gripinn. Húmorinn, ferskleikinn
og andagiftin er það mikil að
sennilega er það einsdæmi í
íslenskri poppsögu. Hér er
sungið um lífsgleði, sveitaböll,
hippamenningu og hippaheim-
speki, sólarlandaferðir og
nautaat svo eitthvað sé nefnt.
Lögin eru svo skrautbúningur
utan um textana.
Nú er allt heila klabbið kom-
ið á geisladisk þannig að þeir
sem vilja geta losnað við risp-
ur og allt sem þeim fylgir,
keypt diskinn og lagst í
sófann, látið hugann reika til
baka, gleymt sér í 40 mínútur
og risið síðan upp endurnærð-
ir.
STJÖRNUGJÖF: ★★★★★
WAYNE’S WORLD:
ÚR SAMNEFNDRI
KVIKMYND
GAMALT OG NÝTT
Þessi kvikmynd segir frá
skrýtnum félögum sem reka
litla sjónvarpsstöö í kjallara og
senda þaðan út frfkaðan þátt.
Þegar stór sjónvarpsstöð vill
kaupa þáttinn og gera hann að
sínum gerist ýmislegt skondið.
Eins og allar vinsælar kvik-
myndir nú til dags fylgir náttúr-
lega plata með lögum úr
myndinni og þar er ýmsa
gamla kappa að finna; Alice
Cooper, Eric Clapton, Jimi
Hendrix, Black Sabbath og
Queen, með lagið fræga
Bohemian Rhapsody. Einnig
eru nýrri nöfn á ferðinni, svo
sem Red Hot Chilipeppers
(með frábært lag, Sikamikan-
ico), Cinderella, Bulletboys og
Tia Carrera sem skartar geysi-
lega fallegri söngkonu sem er
af asísku bergi brotin. Hún
hefur ágæta rokkrödd og heyr-
ist það vel í laginu Ballroom
Blitz. Samt er það nú eiginlega
gamla rokkbrýnið Alice Coop-
er sem stelur senunni.
STJÖRNUGJÖF: ★★★
Hljómsveit-
in The
Cure. The
Wish er ein
besta plata
sveitarinn-
ar.
Grínararnir
Garth og
Wayne
skoða bjór-
verksmiðju
f Mil-
waukee.
74 VIKAN ll.TBL. 1992