Vikan - 01.09.1994, Side 47
göngu. Hvort barnið getur
skaðast eða ekki er erfitt að
fullyrða nokkuð um. Það eru
þó til dæmi þess, að börn,
fædd af konum sem hafa á
meðgöngu þjáðst af streitu,
hafi verið í uppvexti sínum
tauganæm og óeðlilega við-
kvæm. Það er þó ekki rétt að
fullyrða nokkuð í þessum
efnum, nema þá ef að fag-
lærðir gerðu slíkt.
ÓÆSKILEG ÓÞÆGINDI
Á MEÐGÖNGU
Alla vega hlýtur þessi stöð-
uga vanlíðan Sifjar að vera
barninu, ekkert síður en
henni sjálfri, til einhverra
óæskilegra óþæginda.
Hversu djúpt slíkt álag ristir
þegar upp er staðið, og þá
hvernig, getur einungis tím-
inn leitt í Ijós, og mat sér-
fróðra auðvitað. Sif verður
eiginlega sjálf að meta þær
hættur sem gætu skapast
vegna þessarar óæskilegu
taugaspennu sem hún er í á
vinnustað ófrísk. Hún þekkir
sín takmörk væntanlega. í
kjölfarið er eðlilegt að bera
síðan óttamat sitt undir sér-
fræðinga á sviðum barn-
eigna. Mat þeirra er mikil-
vægt og það borgar sig að fá
það. Barnið, sem er í móður-
kviði, hlýtur að tengjast móð-
ur sinni mjög sterkt. Raunar
það sterkt að það hlýtur að
mótast meira og minna af
þvf andlega og líkamlega
ástandi sem móðirin er í á
meðgöngunni, þótt það verði
ekki sannað.
SIÐFÁGUÐ
SJÓNARMIÐ
MIKILVÆG
Það er ekkert sem réttlætir,
að láta það óátalið að verk-
stjóri á vinnustað komist upp
með það óeðlilega framferði
sem í því felst að gera undir-
mönnum sínum ókleift að
vinna undir hans handar-
jaðri. Það er því full ástæða
til að hvetja Sif til að taka á
þessu leiðindamáli og þá
ekki seinna en strax. Hún á
ekki að láta ótta sinn við
vinnuuppsögn eða áfram-
haldandi áreiti mannsins
koma í veg fyrir að hún
bregðist skynsamlega við
ástandinu. Hún á að reyna
eftir megni að leita réttar
síns. Við, sem erum úti á
hinum almenna vinnumark-
aði, eigum vissulega rétt á
því að komið sé fram við
okkur af sanngirni og með
hliðsjón af siðfáguðum sjón-
armiðum.
RÉTTARKERFI
DÓMSTÓLANNA
Það á engum yfirmanni að
líðast það atferli á vinnustað,
að komast upp með að
ástunda valdníðslu og yfir-
gang sem kemur undir-
mönnum hans í koli. Sem
betur fer er til eitthvað sem
heitir réttarkerfi dómstólanna
og ef við getum ekki ieitað
réttar okkar eftir öðrum leið-
um þá verðum við að nýta
okkur lagabókstafinn til þess
arna. Það er nokkuð Ijóst af
öllum lýsingum Sifjar að
maðurinn er ósáttur við að
hafa ekki á sínum tíma get-
að komið henni til við sig. Öll
hegðun hans eftir atvikið í
ferðalaginu miðast við að
gera lítið úr persónu hennar.
SIDFERÐISÞROSKI
ÁREITLA HÆPINN
Sif er því að gera alveg rétt
þegar hún ákveður að bera
þetta, til að byrja með, undir
hlutlausan aðila. Hún er orð-
in það óörugg og miður sín
vegna framferðis mannsins
að hún getur sennilega illa
ákveðið, nema með stuðn-
ingi sinna og annarra hlið-
hollra, hvað best er að gera
til að reyna að uppræta
ástandið. Hún spyr að lokum
hvað mér þyki um svona
áreitla. Svarið er: „Ég hef
aldrei getað fellt mig við
óréttmæta og siðlausa
framkomu þeirra sem sjá
alla hluti einungis frá sín-
um sjónarhóli en hunsa
sjónarmið annarra við all-
ar aðstæður. Það vantar
eitthvað í siðferðisþroska
þeirra sem troða á rétti
annarra."
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
VELKOMIN A
SNYRTISTOFU ÁRBÆJAR
HRAUNBÆ 102 - SÍMI 87 - 93 - 10
► ANDLITSBOÐ
► HÚÐHREINSUN
► LITUN
► PLOKKUN
► VAX-MEÐFERÐ
► FÓTSNYRTING
► FÖRDUN
HULDA
SÉRMEÐFERÐ:
JURTAMASKI: f. bóluhúS, f. háræSaslit,
f. eldri húð. HITAMASKI: f. þurra húð,
f. óhreina húð, f. vannærða húð.
AUGNMASKI: f. poka og hrukkur.
SILKINEGLUR • TRIM FORM • GERUM GOT I EYRU
Hársnyrtistofan
Hár-Tískan
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
SÍMI 50507
REYKJAVÍKURVEGI 64 ■ HAFNARFIROI - SlMI 652620 • HEIMASÍMI 52030
Hreinsum allan venjulegan fatnað með bestu vélum sem
fáanlegar eru í dag. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum
einnig gluggatjöld, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl.
HÁRSNYRTISTOFAN
SAMSKIPTAÁREITLAR
OG VINSÆLDIR
Eða eins og samviskusama
stúlkan sagði eitt sinn að
gefnu tilefni. „Elskurnar
mínar. Ég er einföld sál og
hrekklaus. Það breytir því
þó ekki að ef á mér er troð-
ið og ég verð vör við að
eitthvað óréttlæti er í
gangi þá bregst ég við og
segi skoðanir mínar hreint
út við viðkomandi „sam-
skiptaáreitil". Mér er nefni-
lega sama þótt ég tapi vin-
sældum annarra um tíma,
svo fremi ég tapi ekki
sjálfsvirðingunni." Með
vinsemd, Jóna Rúna.
GRANDAVEGI 47 62 61 62
RAKARA- <t HAR^RmSLOíSWFA
HVERFISGÖTU 62 101 REYKJAVlK
8. TBL. 1994 VIKAN 47
SÁLRÆN SJÓNARMIÐ