Vikan


Vikan - 01.09.1994, Side 51

Vikan - 01.09.1994, Side 51
fíflunum sem eru vinkonur hennar. Honum líður svo vel hjá okkur. Ef þú ekur hratt þá geturðu náð lestinni! Náð lestinni! En sú vitleysa. - Flýttu þér mamma, lestin stoppar svo víða. Við verð- um á undan til borgarinnar. Vertu nú góð, mamma. . . . Augu Larissu voru full af tár- um. - En það er ómögulegt, elskan mín. Við náum því aldrei. - Ef þú vilt það ekki, sagði Larissa og nú gat hún ekki lengur haldið aftur af tárunum. Það réði bagga- muninn. Margaret flýtti sér að ná bílnum út af stæðinu og ók út á þjóðveginn. - Settu öryggisólina á þig, sagði hún án þess að líta af veginum. Hún vissi að hún ók of hratt, en hún var þaul- vön og vegurinn var góður. Ef hún hefði heppnina með sér myndi hún ná lestinni í Avonshill. . . . Það var auð- vitað hreinasta firra að taka gamla manninn á heimilið aftur, en hún vissi að hún átti ekki á öðru völ. Margaret stökk út úr bílnum rétt í því að lestin nam staðar. Larissa hrópaði fyrir aftan hana að hún næði ekki af sér örygg- isólinni, en hún ansaði því ekki og hljóp meðfram vögn- unum þangað til hún fann hann. - Flýttu þér, kallaði hún. Hann hikaði ekki, greip töskuna sína og flýtti sér út. - Hvað er að Margie, hefur eitthvað komið fyrir Larissu? Og skyndilega var hann ekki gamall lengur, svolítið eldri útgáfa af Ted sem bauð upp á öryggi og stuðning. Hann lagði arminn um axlir henn- ar. - Segðu mér hvað er að, vina mín. Er það eitthvað al- varlegt? - Það er, - það er ekkert að, tengdapabbi. Hún brosti, en tárin runnu niður kinnar hennar. (Hvers vegna var hún eiginlega að gráta?) - Tengdapabbi. . . ég. . .Lar- issa. . .við getum ekki án þín verið. Við vonum að þú verð- ir svo góður við okkur. . .að koma með okkur heim aftur. Hún horfði á hann og það var angist í augnaráðinu. Ef Larissa hafði haft á röngu að standa? Ef hann vildi nú heldur búa hjá Ken. . . . - Vilt þú að ég komi heim með ykkur? - Já. En ef þú vilt heldur. . .ég á við. . .Ken og Madge geta gert svo miklu meira fyrir þig, þau hafa betri ráð, meiri tíma til að sinna þér. . . Larissa, sem loksins hafði náð af sér öryggisól- inni, kom nú dansandi eftir brautarpallinum og fleygði sér um háls hans. Hann þrýsti henni að sér og leit á Margaret. - Enginn getur gefið mér nokkurn hlut sem er mér dýrmætari en það sem þið nú hafið gefið mér, Margie. En ert þú viss um að þú viljir í raun og veru fá mig til þín aftur? Ég get kannski orðið þér að einhverju liði, ég gæti. . . . Hún svaraði ekki en stakk höndinni undir arm hans og leiddi hann að bílnum. - Ó, sagði hún og það var ekki laust við skjálfta í röddinni, - fyrst verður þú að lána mér peninga svo ég geti hringt til Teds og sagt honum að þeir bræðurnir þurfi ekki að fara á brautar- stöðina. Heldurðu að þeir verði mjög reiðir við mig? - Ken verður kannski svolítið vonsvikinn, en honum léttir örugglega vegna Madge, hann veit að hún vill ekki fá mig til sín. Ted fær aðeins einu sinni ennþá að vita að hann á svo fjandi góða konu. Margaret ætlaði að segja eitthvað en kom ekki upp nokkru orði. Gamli maðurinn stakk peningum í lófa henn- ar. - Flýttu þér nú, Margie, sagði hann rólega. - Ó, afi, ég hef svo margt að segja þér, sagði Larissa og hopp- aði í kringum hann. - Ég var heima hjá Desmond í dag og við lékum okkur í kofanum í trénu, og hann sagði að ég mætti koma líka á morgun. - Er það satt? sagði hann og lagði mikla áherslu á orð sín. - Já, og mamma hans hefur bakað bollur með rúsínum og. . . . Dyrnar að símaklef- anum féllu að baki hennar svo hún heyrði ekki meira til þeirra. En þegar hún leit í spegilinn og sá tárvott andlit sitt rak hún út úr sér tunguna framan í sjálfa sig vegna þess hve heimsk hún hafði verið. En svo fór hún að hlæja, vegna þess hve ham- ingjusöm hún var. □ iileJI SKoR- b^RiM STEFa/A PiaJa/AR TAUór /? Ffl-Ti SUELÓ- uRíaJaJ E>R.CirJ T FUKi 0? l —> 1 T \ ^ Vs. 7 / ?» / íj xLíSf RftR- DHC.AM T/?É 1/ Z > ELSKfí TÁSfl V . / * > . / T FATaJ- H-b Gúkfi Sftud- 6.A PRilíib SMÁ&yu 1/ERK V tr > FiSKuR Ti/LíR. E-íMS ¥ fiU/Lbi /9 PLoaJTU 3 \/ HrJtF- Aa)A t> 5\íi f 7 bE ltA HREifJSA ST UPP ✓ > > 5~ / JL 3 Y 5~ 6 y 'oimfi M Z3. Lausnarorð síðustu krossgátu: ÁLFAR 8. TBL. 1994 VIKAN 51 SMÁSAGAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.