Vikan - 01.09.1994, Page 63
Falleg fjölskyldumynd sem síst vakti
grunsemdir um aö hjónabandiö væri
frúnni hreinasta víti.
Fyrrum ruðningshetjan
O.J. Simpson bíður nú
dóms en hann er
ákærður um morð konu
sinnar og kunningja hennar.
Saga O. J. Simpsons er
harmleikur, hvernig sem á
hana er litið, en hún er þó
vís til að kveikja nauðsyn-
lega umræðu um heimilisof-
beldi og áhugaleysi laganna
um að vernda eiginkonur
sem er misþyrmt, ekki bara í
Bandaríkjunum, heldur um
allan heim.
Það er þó þyngra en tár-
um taki að sú umræða kvikni
fyrst eftir harmleik þar sem
tvö fórnarlömb liggja í valn-
um. Nicole Simpson þurfti
að deyja til þess að fólk
gerði sér grein fyrir því að
jafnvel sá dásamlegasti í fé-
lagslífinu getur verið ofbeld-
ismaður á heimilinu. Og það
er myrk mynd sem dregin er
upp af ruðningshetjunni eftir
morðin. „Það var á allra vit-
orði að hann barði hana,“
segir þekktur umboðsmaður
sem umgekkst Simpson-
hjónin. „Margir vina hans
vissu það - ekki bara um at-
vikið 1989 heldur um allar
barsmíðarnar. Þeir reyndu
allir að þagga það niður, rétt
eins og sögurnar um
kvennafarið á Magic. Fólk
kemur ekki fram með svona
upplýsingar ( þröngum hópi.
Fólk verndaði hann.“
í Bandaríkjunum og á
Norðurlöndum er talið að um
20% sambanda séu ofbeld-
issambönd. Prósentuhlutfall
er talið svipað hér á landi,
hvort sem um er að ræða
Ron Goldman: Var að
koma til hennar sólgler-
augum sem hún hafði
gleymt á veitingastaðn-
um þar sem hann vann
þegar morðinginn lét til
skarar skríða.
sifjaspell, nauðganir eða
annað ofbeldi. Á þeim tólf ár-
um sem liðin eru frá stofnun
Kvennaathvarfs í Reykjavík
hafa komið þangað um
4.000 konur með rúmlega
tvö þúsund börn.
GÖTUDRENGUR ÚR
FÁTÆKRAHVERFI
Flvernig maður er svo O.J.
Simpson? Hann hefur verið
heltekinn þráhyggju síðan á
bernskuárunum í fátækra-
hverfinu í San Francisco.
Faðir hans fór að heiman
þegar O.J. var 4 ára, svo
móðir drengsins var ein um
að ala upp fjögur börn í
skuggahverfinu. Brottför föð-
urins var drengnum mikið
áfall og unglingsár hans ein-
kenndust af hatri, þrjósku og
smáglæpum leiðsagnarlauss
unglings götunnar.
Æskuvinur O.J. minnist
þess þegar þeir félagar fóru
heim til föður O.J. að sækja
peninga. Faðir O.J. kom til
dyra á slopp og fyrir aftan
hann sáu piltarnir ungan,
hvítan mann liggja á sófan-
um. Faðir O.J. bað vin sinn
að fara inn í svefnherbergi
og kallaði hann „elskuna".
Vinurinn segir að O.J. hafi
virst óska þess að jörðin
opnaðist og gleypti hann.
„Við vissum allir að pabbi
hans var hommi og hann
vissi að viö vissum það.
Þetta útskýrði fyrir okkur
hvers vegna O.J. var harð-
ákveðinn í því að vera mesti
töffarinn í götunni."
Þegar íþróttahæfileikar
O.J. fóru að blómstra snerist
þráhyggjan upp í að komast
út úr fátækrahverfinu og síð-
ar sneri hann sér að því að
búa sér til ímynd f fyrirtækja-
veröld Bandaríkjanna. Að
lokum beindist þráhyggjan
að hinni fögru Nicole, sem
O.J. leit ævinlega á sem
sína eign.
Eins og í mörgum tilvikum
heimilisofbeldis sýnir saga
O.J. og Nicole Simpson
kvíðvænlegt mynstur opin-
berra afskipta sem komu of
seint og gerðu of lítið.
Felmtri slegnir aðdáendur
Simpsons vita núna að hann
var handtekinn fyrir heimilis-
ofbeldi á nýársdag 1989. í
lögregluskýrslum segir að
Nicole hafi komið fáklædd út
úr runna, andlit hennar blátt
og marið, og sagt lögreglu:
„Hann á eftir að drepa mig.“
Einnig er orðið Ijóst að sjö
ára hjónaband O.J. og Nico-
le var gegnsýrt af bræði og
þráhyggju, þótt ekkert hafi
getað búið fólk undir hand-
töku Simpsons ( morðmál-
inu.
Atvikið 1989 komst þó fyrir
almenningssjónir. Simpson
var ákærður; játaði að hafa
misþyrmt konu sinni, fékk
tveggja ára skilorðsbundinn
dóm, 65 þúsund króna sekt
og var skiþað að vinna 120
klukkustundir í þágu samfé-
lagsins. Honum var þó leyft
að velja samfélagsstörfin og
sálfræðing í hina lögskipuðu
sálfræðimeðferð, en hluti
Frá moróstaónum. Stéttin ötuó
blóói og lik fyrrverandi eig-
inkonu O.J. Simpson hefur ver-
ió hulió klæói. í framhaldi af
þvi fóru vinir og kunningjar
loksins aó leióa hugann aó því
hversu óhugnanlegar bar-
smíóar „hetjunnar" höfóu verió
og ótti Nicole um aó þær end-
uóu meó aó ganga af henni
dauöri skiljanlegur.
8. TBL 1994 VIKAN 63