Vikan - 01.09.1994, Síða 65
henni algerlega. Hann tryllt-
ist ef hún sýndi nokkur merki
sjálfstæðis. Hann elskaði
hana en leit á hana sem
sína eign,“ segja vinir.
Ron Goldman, sem lét líf-
ið fyrir hendi sama morð-
ingja og Nicole, starfaði sem
þjónn og fyrirsæta. Ron var
þekktur fyrir að stæra sig af
sigrum sínum á kynferðis-
sviðinu en hélt þvi fram að
þau Nicole væru ekki par.
Hann sagði að það væri gott
fyrir sig að sjást með Nicole
og að í gegnum hana hitti
hann margar konur. Tveimur
dögum fyrir morðin spurði
klæðskeri hans hann hreint
út hvort hann svæfi hjá Nico-
le. Goldman hló og neitaði.
„O.J. myndi áreiðanlega
drepa mig ef hann kæmi að
okkur saman,“ sagði hann.
Nú lítur út fyrir að Ron
Goldman hafi verið staddur
hjá Nicole af tilviljun. Nicole
hafði snætt á veitingahúsinu
Mezzaluna í Brentwood,
vinnustað Rons. Hún
gleymdi sólgleraugum þar
og Goldman bauðst til að
skila þeim. Hann lagði af
stað skömmu fyrir tíu þetta
örlagakvöld - fyrir klukkan
ellefu voru hann og Nicole
liðin lík.
HEIFTIN EKKI ÞESSA
HEIMS
Margir vinir O.J., þar á
meðal Dionne Warwick, hafa
gengið fram fyrir skjöldu og
fullyrt að hann sé saklaus.
Hvað sem vinir Simpsons og
vandamenn segja er ekki
hægt að líta framhjá blóð-
hafinu á tröppunum fyrir ut-
an íbúð Nicole; slagæðagus-
unum sem morðinginn fram-
kallaði í heift sinni. Grimmdin
að baki morðanna og heiftin
sem hefur þurft til að fremja
þau, var ekki þessa heims.
Ef O.J. Simpson var morð-
inginn verðum við að endur-
skoða ýmislegt af því sem
við teljum okkur vita um
mannlega hegðan.
Ef við eigum að trúa því
að réttur maður hafi verið
ákærður verðum við að fá
einhvern botn í ástæðuna.
Gæti hann hafa myrt vegna
þess að hann sá ungan,
myndarlegan mann kominn í
sinn stað? Gæti hann hafa
áformað morðin og farið síð-
an upp í flugvél til að búa til
fjarvistarsönnun sem hafði
verið undirbúin mörgum
dögum áður? Og gæti hann
8. TBL. 1994 VIKAN 65
síðan hafa komið heim og
staðið með börnum konunn-
ar sem hann myrti við jarðar-
för hennar? Gæti nokkur
gert slíkt?
Engin sönnunargögn geta
útskýrt hvers vegna fórnar-
lömbin voru myrt á jafn
skelfilegan hátt og raun ber
vitni. Komi játning ekki til
fæst engin haldbær skýring.
Til þess að leysa gátuna þarf
að ætla morðingjanum of-
boðslegar ástríður. Saksókn-
ari þarf þá að ætla Simpson,
sem fram til þessa virtist
ósköp venjulegur maður,
nema auðugri, vinsælli og
myndarlegri en flestir, hafi
einhvern veginn byggt upp
lífstortímandi bræði. Það er
óþægileg hugmynd vegna
þess að hún þýðir að þetta
gæti hent hvern sem er, eða
að minnsta kosti hvern þann
sem elskar konu svo og svo
mikið.
Meirihluti fórnarlamba
heimilisofbeldis verður að
reiða sig á eigin dómgreind
og hugrekki. Kerfið hjálpar
þeim lítið þegar þær þurfa
mest á því aö halda. Starfs-
maður Kvennaathvarfsins
segir: „Eins og er, er kerfið
ofbeldismönnum í vil. í fyrra
gekk kona inn á lögreglu-
stöð, illa útleikin, og sagðist
ætla að kæra sambýlismann
sinn. Þá sagði vaktmaður-
inn: „Guð minn góður, hvað
gerðir þú til að fá þessa út-
reið?“ Þessi skekktu viðhorf
þjóðfélagsins til ofbeldis lifa
góðu lífi og eru þess vegna
aðalhindrunin.“
Fyrrum fyrirsætan Erin
Everly segir að líf hennar
með rokkaranum Axl Rose
úr Guns N’ Roses hafi verið
martröð heimilisofbeldis. Axl
og Erin giftu sig árið 1990
eftir 4 ára samband en Erin
segir sambandið hafa leyst
upp í öskur og ofsafenginn
ágreining löngu áður en þau
gengu upp að altarinu. Mál
þeirra er merkilegast fyrir
það að ofbeldismynstrið er
nánast það sama og hjá
Simpsonhjónunum fram að
morði Nicole. Erin Everly
segir að hún hafi sætt bar-
smíðum af hendi Axl öll fjög-
ur árin og staðið eftir marin,
blóðug og stundum meðvit-
undarlaus.
Jenný Baldursdóttir hjá
Kvennaathvarfi segir að
undanfarin ár hafi margar
konur leitað þangað með för
á hálsi eftir margendurteknar
kyrkingartilraunir. „Oft hefur
þetta verið alveg á mörkun-
um. Sumar konur lýsa því að
þær deyi, að líf þeirra fjari út.
Svo sleppir hann rétt áður
en hún er öll.“
Vinkona Axl Rose, sem
samþykkti að ræða nafn-
laust við bandarísk blöð, við-
40% karla,
teljarétf-
mættaöslá
eiginkonur
I UM 40% íslen.'akra karla og 27%
íslenskra kve-nna telja réttlætan-
legt að eigintnaður berji konu sína.
Þetta eru TiiiðurstÖður úr skoðana-
könnun Qallup á. íslandi.
l Þettai kom fram í Þjóðarpulsin-
Vum s€:m Gallup á íslandi gefur út.
Urtílucið í könnuninni var 1.200
15-69 ára. í
Óhugnanlegt ef þetta er
raunin. Margfalt fleiri ís-
lendingum en bandaríkja-
mönnum finnst þaö geta
veriö réttlætanlegt aö
eiginmaöur slái til konu
sinnar!
Jenný Anna Baldursdóttir,
ein af vaktkonum Kvenna-
athvarfsins, færir okkur
heirn sanninn um aö ástand-
iö er síst betra hérlendis i
þeim efnum sem hér um
ræöir.
MARTROÐ
HEIMILISOFBELDIS
OFBELDI