Vikan - 09.07.1998, Blaðsíða 54
am—
j
ekki missa%af%...(
...því að heimsœkja krána Áslák í Mosfellsbœ.
Sj armerandi bygging í fallegu umhverfi og alúðlegt starfs-
fólk. Sannkölluð sveitarkrárstemmning... Eftir Esjugöng-
una er gott að enda kvöldið á kakóbolla á kránni Ásláki.
....því að ganga á Esjuna í sumar.
Á toppnum er gestabók sem þú verður að vera í! Þar má sjá
nöfn forstjóra, strætisvagnabílstjóra og allra hinna. Á topnn-
um hittist fólk úr öllum áttum. Mundu; hver og einn fer á sín-
um eigin hraða, og góðir gönguskór eru nauðsynlegir í Esju-
gönguna.
...Listaskálanum í Hveragerði.
Þar er frábær sýningarsalur þar sem ýmis verk hanga
alltaf uppi. Kaffið er gott og boðið er upp á góðan mat og
meðlæti. Full ástæða er til að minnast á salernin á þessum
stað því þau finnast vart þrifalegri á opinberum stöðum,
en klósettmenning á íslandi er stundum þannig að manni
ofbýður!!! Á sólríkum dögum er líka hægt að sitja úti,
njóta sólar og hafa það huggulegt...
54
~ 'S
....því að njóta tímans í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar.
Farðu endilega tímanlega af stað í ferðalagið, því nú er að
finna í flugstöðinni fjölda frábærra verslana. Þar geturðu til
dæmis keypt þér fatnað, skartgripi, gleraugu, íslenskan mat
til að færa vinum erlendis, og íþróttavörur, að ógleymdum
tímaritum. Ekki gleyrna að taka Vikuna með í ferðalagið!
Nýju verslanirnar voru formlega opnaðar 12. júní og sjón er
sögu ríkari!...
....því að spila golf á góðviðrisdegi á Hvaleyr-
arholti...