Vikan - 21.03.2000, Page 8
Aðför að konu með aðstoð ríkisins
heimili hennar og barnanna. Hún
missti það á uppboði og þau flutt-
ust í leiguíbúð.
Á undanförnum tveimur árum
hefur fjölskyldan búið í þremur
íbúðum.
„Dagsektirnar héldu áfram að
hrannast upp þrátt fyrir að íbúð-
in okkar hafi verið seld á uppboði
og svo kom að því einn daginn að
bréf barst um að ég yrði gerð
gjaldþrota ef ég greiddi ekki dag-
sektirnar," segir Hafdís sem hafði
ekki setið aðgerðalaus meðan á
öllu þessu stóð og árangurslaust
beðið um að fá barnasálfræðing
inn í málið. „Ég bað um að fag-
menn væru settir í málið, að
barnasálfræðingur talaði við
börnin og þetta yrði leyst þannig
að hagsmunir barnanna yrðu
hafðir að leiðarljósi. Orð mín
fengu ekki hljómgrunn hjá yfir-
völdum. Mér hefur reynst erfitt að
tala máli barnanna í kerfinu,1' seg-
ir hún, „því mér hefur alltaf ver-
ið svarað þar að börnin segi við
mig það sem þau telji að henti mér
að heyra. Það er öðru nær því ég
hef reynt að vera börnum mínum
trúnaðarvinur og alið þau upp í
því að koma með vandamál sín
til mín svo hægt sé að leysa þau.
Hvernig á ég að segja börnunum
að allt sem gerist heima hjá föð-
ur þeirra sé undanskilið? Á það
get ég ekki hlustað en með því
væri ég að segja börnum
mínum að þau geti ekki
komið til mín með alla
hluti."
Engar jóla- og afmælis-
gjafir
Faðir barnanna hefur ekki gef-
ið þeim jóla- og afmælisgjafir síð-
an umgengni hætti. Hann hefur
tvisvar á síðustu misserum hitt
þau í Bónus þar sem þau voru í
fylgd móður Hafdísar. Hann
horfði á börn sín en heilsaði þeim
ekki.
„Hann hefur gert mikil mistök
með því að skera á allt samband
við þau,“ segir Hafdís. „ Börnin
hefðu orðið mildari í afstöðu
sinni til hans ef hann hefði til
dæmis heilsað þeim á almanna-
færi og sent þeim gjafir," segir
hún ákveðin á svip.
„Þessi ellefu ár hafa verið
martröð frá upphafi til enda, sem
byrjuðu á veikindum barnsins,
síðan skilnaði og nú er ég orðin
gj aldþrota. Ég hef alltaf haldið að
þessu væri að ljúka en alltaf kem-
ur eitthvað nýtt upp á borðið,"
segir hún. „Börnin hafa verið í
góðu jafnvægi þessi ár þrátt fyr-
ir allt álagið á heimilinu. Elsta
barnið er í framhaldsskóla og
stendur sig mjög vel. Það yngsta
virðist ætla að verða góður stærð-
fræðingur og er uppátektarsamt
og fjörugt barn. Miðbarnið
stendur sig mjög vel í íþróttum,"
segir Hafdís „en þarf enn að fara
í eftirlit hjá læknum sem hafa
orðið varir við ýmsa
ferðarinnar. Læknar eru í dag
hættir að beita geislameðferð á
krabbameinsveik börn nema í
einstaka erfiðum tilfellum
einmitt vegna þeirra aukaverk-
ana sem hún getur haft í för með
sér,“ segir hún.
GjaldDrota
Rétt áður en Hafdís var lýst
gjaldþrota sl. vor fékk hún góða
hjálp frá lögfræðingi sem ætlaði
að ljúka málinu í eitt skipti fyrir
öll. Börnin buðust til að hitta föð-
ur sinn áður en til gjaldþrota-
skiptanna kæmi en svar hans,
sem kom öllum að óvörum, var
að hann treysti sér ekki til að
hitta þau.
„Ef dagsektirnar sem hann var
búinn að krefjast og voru lagðar
á mig hefðu með þessum orðum
hans fallið á hann sjálfan er ég
viss um að hann hefði íhugað svar
sitt betur,“ segir Hafdís. „Hefði
hann hitt börn sín síðasta vor
hefðu dagsektir fallið niður og þá
skil ég ekki hinn eiginlega tilgang
hans með að láta beita þeim. Ef
hann hefur ætlað að eyðileggja líf
mitt með því gerir það líf barna
hans einnig mjög erfitt. Ég var
gerð gjaldþrota vegna dagsekt-
anna sem annars hefðu verið
felldar niður með einu penna-
striki," segir Hafdís. „Nokkrum
vikum eftir að ég var gerð gjald-
þrota fékk ég enn eitt bréfið þar
sem mér var tjáð að faðirinn
krefðist umgengni við börnin
sín,“ segir hún. „Ég hef ekki enn
svarað því og veit ekki hvernig ég
geri það. Hvers vegna hitti hann
ekki börnin þegar þau voru
reiðubúin til þess? Hann hefði
átt að reyna að vinna traust
|k þeirraogkannskimeðtím-
K anum fengið þau til að
| koma og gista heima hjá
íjÍ sér. Þau eru oröin eldri
■ og þroskaöri ídag. Mér
I finnst greinilegt að
■ liann er ckki búinn að
K vinna lir tilfinningum
H sínum. hvorki \egna
H veikinda barnsins ne
skilnaðarins." segir
Hf Hafdís. „Allir í kerfinu
W': halda að því sé öfugt far-
ið, aðégviljinámérniðri
■ á honum.“
„Ég hef fulla samúð
með mönnum sem fá ekki að
hitta börnin sín,“ heldur hún
áfram, „en ansi held ég að það
séu margir pabbarnir sem
misnota sér samúð almenn-
ings með forræðislausum
feðrum til að ná sér niðri á
fyrrverandi eiginkonum á ein-
hvern hátt. Ég fór á fund hjá
Ábyrgum feðrum í nóvember á
síðasta ári og varð margs vísari.
Feðurnir töluðu út frá eigin hags-
munum, um að þeir hefðu allan
rétt, en töluðu ekki um réttindi
barnanna. Konurnar sem töluðu
á fundinum gerðu það með hags-
muni barnanna í huga.“
Þreytt en óbuguð
Hafdís hefur spurt margra
spurninga í kerfinu en engin svör
fengið því enginn virðist vilja
hlusta eða skilja. Framkoma
stjórnvalda við hana hefur ein-
kennst af algjöru skilningsleysi
og hún fær ekki að verja fjöl-
skyldu sína.
„Aðfarir stjórnvalda virðast
vera gerðar í þeim eina tilgangi
að rassskella mig til hlýðni en
börnin gleymdust. Þetta mál er
gegnsýrt af óréttlæti og grimmd,“
segir hún. Hafdís er greinilega
orðin mjög þreytt á stöðugu
áreiti en virðist óbuguð og segist
ætla að standa með börnum sín-
um í gegnum þykkt og þunnt eins
og hingað til.
„Hvers vegna eru dagsektir
ekki gagnkvæmar? Hvers vegna
kemur ekki barnasálfræðingur
inn í erfið mál? Hvers vegna er
börnum ekki útvegaður talsmað-
ur? Hver á að hlusta á barnið ef
ekki foreldrið? Hvers vegna
verður pabbinn að fá að hitta
börnin sín inn á heimili sínu?
Langar hann í alvöru að hitta
börnin sín eða er hann að hefna
sín á mér?“ Þessara spurninga
hefur Hafdís spurt í mörg ár án
þess að fá svör.
„Ég hef aldrei meinað föður
barnanna umgengni við þau
heldur veigrað mér við því að
þvinga þau til að fara inn á heim-
ili hans. Ég ber ekki hefndarhug
í brjósti til hans en hann virðist
vilja ná sér niðri á mér. Nú höfum
við, ég og börnin mín, misst all-
ar veraldlegar eigur okkar af
hans völdum og það með aðstoð
stjórnvalda," segir Hafdís að lok-
um.
Eftirmáli
Fyrir ári voru börn Hafdísar
loksins kölluð í viðtal hjá sýslu-
mannsembættinu. Þarsögðuþau
að þau vildu ekki hitta föður sinn,
hvorki heima hjá honum né ann-
ars staðar. Skýrsla um þetta við-
tal var sent föður barnanna og
jafnframt var honum tilkynnt að
málið félli niður þar sem börnin
kærðu sig ekki um að hitta hann.
Eftir stendur gjaldþrotamál Haf-
dísar.