Vikan - 21.03.2000, Page 46
HNEYKSLANLEGT BÚNORB
Dirk var svo sannarlega
hættulegur óvinur.
„Ég hef í raun nokkurs
konar bónorð fram að færa,“
sagði hann hreykinn.
„Bónorð? En við stöndum
í skilnaði, Dirk,“ sagði Laura
undrandi.
„Jæja, bónorð er kannski
ekki rétta orðið en mér fannst
það bara frekar viðeigandi
heldur en tilboð sem er í raun
rétta orðið.“
„Tilboð mitt er mjög ein-
falt. Ég vil að þú gerist ást-
kona mín, Laura.“
Laura greip andann á lofti.
„Ég veit að þér finnst þetta
kannski hljóma dálítið gamal-
dags,“ hélt hann áfram eins
og hann væri bara að ræða um
daginn og veginn. „En ég held
að slíkt samband milli okkar
sé mjög skynsamlegt. Ég
héldi þér upp fjárhagslega,
auðvitað. Keypti handa þér
dýrar og fallegar gjafir og
byði þér út að borða og í stað-
inn vil ég fá aðgang að þér í
rúminu.“
Hann mældi Lauru út frá
toppi til táar. „Jæja, hvað
finnst þér um þetta?“
Laura fann að hún var að
missa stjórn á skapi sínu. Fá
aðgang að mér í rúminu!
„Þú þarft ekki að vera
svona hneyksluð, Laura,“
bætti hann hljóðlega við. „Ef
þú hugsar í alvöru um þetta
sérðu að svona fyrirkomulag
er alls ekki svo slæmt. Við
græðum bæði á því. Ég fæ að
njóta þín í rúminu án nokk-
urra tilfinningalegra skuld-
bindinga og þú færð frábæran
bólfélaga og fjárhagslegt ör-
yggí-“
Hann andvarpaði en hún
var enn orðlaus.
„Ég sé að ég verð að gera
betur til að sannfæra þig um
þetta góða tilboð mitt. í fyrsta
lagi girnumst við hvort ann-
að ennþá. Það er einfaldlega
staðreynd sem þýðir ekki að
horfa fram hjá eða neita. Þú
hefur þegar sagt að þú sért
ekki búin að finna drauma-
manninn og því er ég viss um
að ég get þóknast þér vel í
rúminu og jafnvel betur en
flestir aðrir.“
Hann hallaði sér rólega aft-
ur í stólnum og horfði drýg-
indalega á Lauru. Laura var
öskuvond og hneyksluð.
Hún neyddi sjálfa sig til að
halla sér líka aftur í stólnum
til að reyna að líta út fyrir að
vera róleg og örugg með sig.
En hún kreppti hnefana svo
fast að neglurnar grófust inn
í lófana á henni.
„Ég get alveg viðurkennt
að ég hef ekki girnst neina
konu jafnmikið og þig og eng-
inn hefur gert mig jafn
ánægðan í rúminu og þú. Þess
vegna skil ég ekki að þú sjáir
ekki að þetta væri fullkomið
fyrirkomulag. Af hverju lát-
um við ekki undan löngunum
okkar og verðum elskendur.
Hvað hindrar okkur eiginlega
í því? Við værum ekki að gera
neinum mein. Settu nú bara
þessar gamaldags skoðanir
þínar til hliðar, elskan, og
horfstu í augu við raunveru-
leikann. Langar þig virkilega
að eyða nóttum ein og án
karlmanns á meðan þú bíður
eftir þeim eina rétta? Hvað ef
þú finnur hann aldrei?"
Hann hallaði undir flatt og
brosti blíðlega til hennar.
„Þú ert mjög glæsileg og
falleg kona, Laura, með synd-
samlega fallegan líkama. Af
hverju notar þú hann ekki
betur?“
Hún sagði ekki orð heldur
stóð upp og lét munnþurrk-
una falla á diskinn, tók upp
töskuna sína og gekk frá
borðinu án þess að líta við.
Hún skalf frá hvirfli til ilja
er hún gekk niður stigann út
af veitingastaðnum. Leigubíl-
arnir biðu í röðum fyrir utan
og Laura settist inn í einn
þeirra og dreif sig í burtu.
Dirk sat hins vegar áfram
þar til þjónninn kom og bauð
honum annan drykk.
„Ég vil bara fá reikning-
inn,“ sagði Dirk dauflega og
stóð upp.
Hann var þungt hugsi þeg-
ar hann gekk út af veitinga-
staðnum og tók ekki eftir að-
dáunaraugum nokkurra
kvenna sem sátu á næsta
borði er hann gekk fram hjá.
„Laura frænka, Laura
frænka!" Donna sönglaði fyr-
ir munni sér og hoppaði af
kæti. Hún beið á þröskuldin-
um í náttfötunum sínum eft-
ir því að Laura kæmi inn.
„Vá, hvað það eru margar
tröppur hérna,“ sagði Laura
og kastaði mæðinni. „Það var
eins gott að ég kom í íþrótta-
galla. Nú skil ég vel af hverju
mamma þín er svona grönn.“
Carmel birtist í gættinni og
brosti. „ Hver er að kalla
hvern grannan? Þú sést varla
frá hlið lengur. Þú borðar ör-
ugglega ekki nóg,“ sagði Car-
mel móðurlega.
„Heyrðu, ég kom til að
passa fyrir ykkur, ekki til að
lenda í yfirheyrslu. Ég borða
alveg nóg. Hvernig heldur þú
annars að ég kæmist upp all-
ar þessar tröppur til ykkar?“
sagði Laura hlæjandi.
„Já, það er bratt hérna, en
útsýnið er líka alveg frábært,
finnst þér það ekki? spurði
Carmel.
Laura leit í kringum sig á
dökk fjöllin og blátt hafið fyr-
ir neðan.
„Jú, svo sannarlega,“ sam-
sinnti hún. „Jæja, fröken Fix,
ég vona að þú sért með fullt af
tölvuleikjum sem við getum
spilað í kvöld því það er ekk-
ert almennilegt í sjónvarp-
inu,“ bætti Laura við og
beindi orðum sínum til
Donnu.
Donna brosti áköf. „Ég get
sýnt þér þá alla núna,“ sagði
hún og hljóp inn.
„Það var fallegt af þér að
bjóðast til gæta að krakkanna
með svona stuttum fyrir-
vara,“ sagði Carmel hlýlega.
„Ég trúði bara ekki mínum
eigin eyrum þegar Kirsty
hringdi og sagðist vera veik.
Ég vissi að það yrði erfitt að
fá aðra barnapíu með svona
stuttum fyrirvara á laugar-
dagskvöldi. Ég vona að þér
finnist það ekki frekt af mér
að biðja þig að passa?“
„Hvaða vitleysa! Ég er bara
ánægð með að geta hjálpað
ykkur og hitt krakkana í leið-
inni.
„Ég býð þér í grillmat um
næstu helgi, það er að segja
ef þú hefur ekki eitthvað ann-
að á prjónunum?“
„Nei, nei, ég er ekki búin að
ákveða neitt. Ég hlakka bara
til að koma.“
Lauru fannst sem hún hefði
greint von í spurningu Car-
melar. Sennilega vonaðist
hún til þess að hún og Dirk
væru tekin saman aftur. Allt
í einu áttaði Laura sig á stöð-
unni.
„Aha! Morrie hefur sagt
þér frá því að hann kom að
okkur Dirk í faðmlögum á
laugardagskvöldið, er það
ekki?“
Af viðbrögðum Carmelar
að dæma hafði Morrie ekki
sagt henni neitt. Carmel var
greinilega forvitin og undr-
andi.
„Það var ekki neitt um að
vera. Bara andartaks dóm-
greindarleysi af minni hálfu.
Drífum okkur inn.“
„Það væri nú samt frábært
ef þið Dirk tækjuð saman aft-
ur. Þið voruð alltaf svo flott
par. Þið virtust passa svo vel
saman. Enda urðu allir mjög
hissa þegar þið skilduð,“
sagði Carmel upprifin.
Laura leit rólega á mág-
konu sína þótt henni væri síð-
ur en svo rótt. Það var ekki
liðinn sólarhringur frá því að
hún hafði setið með Dirk á
veitingastaðnum og hann
hafði borið fram þetta und-
arlega og siðlausa tilboð.
Henni leið afar illa er hún
minntist þessa kvölds.
„Ég get alveg sagt þér það,
Carmel, að það eru engar lík-
ur á að við Dirk tökum aftur
saman. Alls engar.“
46
Vikan