Vikan - 21.03.2000, Qupperneq 62
Ekki missa af...
... að vera góð
við „tásurnar"
Þreyttir fætur geta eyðilagt dag-
inn og það má ekki. Ef þú hefur
ekki tíma eða tækifæri til að fara
í fótsnyrtingu ættirðu að fara í
gott fótabað, nudda fæturna,
bera á þá mjúkt krem og vera
síðan berfætt (í opnum skóm)
dagpart. Klipptu negiurnar og
lakkaðu þær og settu jafnvel fal-
legan hring á einhverja tána.
Það er goð tilfinning að vita að maöur
hefur glatt einhvern og kannski aukiö sjálfs-
traust hans og lífskraft. Einfaldar setningar eins
og: „ Mikið klæðir þessi litur þig vel.“ Eða: „ Ég
vildi að ég hefði svona fallega rithönd," geta gert
kraftaverk. Feimni við aö hrósa er því miður land-
læg á íslandi alveg eins og hlý snerting, en hvort
tveggja er manninum mjög nauösynlegt til að
hann þrífist.
Þú munt njóta þess síðar að hafa glatt
vini þína ef þú talar af einlægni,-
reyndu aldrei að gleðja einhvern
með því að Ijúga að honum, það er trn V'w
engum til góðs. .\\\.J
Það hefur sýnt sig í könnunum að
fslendingar virðast frekar vilja innbyröa ávexti í fljótandi
formi en ferska. Ávaxtasafar eru svo sem ágætir, flestir
hverjir, en þeir gera alls ekki sama gagn fyrir meltinguna
og nýir ávextir. Margir ávaxtasafar hafa verið blandaðir rot-
varnarefnum, bragðefnum og sykri og í mörgum tilfellum
hafa hin upþhaflegu vítamín dofnað. Nýir, ferskir ávextir
blandast meltingarvökvanum betur, þeir eru lausir við
aukefni og líkaminn þarf aö hafa meira fyrir að brjóta niður
efnin og það er af hinu góða.
... sýningarsölunum.
Það er ekki bara frábær skemmtun, heldur einnig
þroskandi að leggja upp um helgar og flækjast milli
sýningarsala til að skoða listaverkin sem þar er að sjá.
í dagblöðunum og fleiri prentmiðlum má sjá skrár yfir
það sem i boði er á hverjum tima og svo er bara að
kíkja á vegakortið og skoða hvernig sé best að haga
ferðinni til að ná nokkrum sýningum og kannski góð-
um kaffisopa á einhverjum staðnum í leiðinni. Fólk á
öllum aldri kann að meta svona dægrastyttingu ef vel
er valið.