Vikan - 21.11.1957, Side 2
PÓSTURIINIIM
Fyrir Áhugaaama, Báru, Katrínu,
Sillu, Rögnu og Unni birtum við dæg-
urlagatextann Mærin frá Mexíkó eft-
ir Óla Gauk. Ragnar Bjarnason syng-
ur hann með undirleik hljómsveitar
Kristjáns Kristjánssonar. Dægur-
lagasöngvarinn vinsæli Harry Bela-
fonte syngur þetta lag líka með ensk-
um texta, sem hann kallar „Jamaica
Farewell."
Eitt sinn kom til mín yngismær
með augun brún, sem ljómuðu
bíið og skær.
Ég gerðist bráður og bað um hönd
og biddu fyrir þér mér héldu
engin bönd.
Ég var ungur þá og hýr á brá
er. ekki féll henni við mig þó.
hún kvaðst ei vilja væskilsgrey
cg ég varð að skilja hana eftir
í Mexikó.
Mætt hef ég siðan meyjafjöld
og margar buðu mér hjarta sitt,
auð og völd,
að orðum þeirra ég aðeins hlæ,
mér efst í huga var mærin frá
Mexikó.
Ég var ungur þá o. s. frv.
Hvert sem fer ég um fjarlæg lönd,
hvert sem fleyið ber mig að
sjávarströnd,
ætíð er lít ég í augun brún,
heitt ég óska að þarna stæði hún.
Því mín æskuást mun aldrei mást
enga gleði mér lífið bjó.
Þar til ég fer um fjarlæg ver
og færi hana burt frá Mexikó.
Geturðu frœtt mig á pvl livort hér
í bær (Reykjavík) eða iiágrenni eru
nokkrir danskennarar, sem kenna
samkvœmisdansa í einkatlmum. Ef
svo er, hverjir er það þá?
SVAR: I Viðskiptaskránni eru
skráðir tveir danskennarar í Reykja-
vík, þær Rigmor Hanson (sími
13159) og Sigríður Ármann (sími
10509). Reyndu að tala við aðra
hvora þeirra.
Svar til H. K. F., Tveggja forvit-
inna, Gunnu Björns, Sandýar, Einn-
ar 12 ára, og G. K.: Það er hugsan-
legt að Tommy Steele komi hingað
til lands, en það er ekki ákveðið.
Heimilisfangið hans höfum við ekki.
FORSÍÐUMYNDINA
tók Snorri Snorrason
Framleiðsluaðferð LUDVIG DAVID
kaffibœtis er œvagamalt leyndar-
mál, oq hefur alla tíð varðveitzt.
ENGUM HEFUR
tekizt að líkja eftir
LUDVIG DAVID kaffibœti
LUDVIG DAVID
er því og verður í sérstökum
gœðaflokki.
Kaffibætisverksmiðja 0. JOHNSON & KAABER H.F.
Utgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Astþórsson, Tjarnargötu 4, sími 15004, pósthólf 495.