Menntamál - 01.02.1931, Síða 13
MEN NTAMÁL
27
sko, horfi svona, hverg'i smeikur
og hiklaúst svara skýrt og rétt.
V'iÖ 1. ljóÖlínu lög'Öu ])au hendurnar á borÖiÖ og sátu teinrétt
í sætunum. Við 2. ljóÖlínu stóðu þau hávaðalaust upp, og við
3. og 4. ljóðlínu stóðu þau hnakkakert i söniu sporum.
Þegar þessari visu var lokið, gengu hörnin ásamt kennar-
anum út úr skólastofunni út á ganginn og þaöan i röð út á
leiksviðið.
Seinna hlustaði eg marga tíma á kennslu í þessum sama
bekk, og íannst mér mjög til um alla kennslu þar, sem fór
oftast fram á svipaðan hátt og' hér hefir lauslega verið drepið á.
H. El.
Úr utanför.
Þær hreytingar og umhætur, sent höfðu mikinn kostnað i
för með sér, svo sem skólabyggingar og annar útbúnaður skóla,
fóru hægt af stað. Þýzka ríkið stóð uppi autt og snautt eftir
ófriðinn. Menn gátu ekki áttað sig strax á þvi, að nú væri
tími til þess að rétta við eftir rothöggiö. Fé var sama sem ekkert
til, og það litla sem hægt var að halda í, fór til þess að liæta
eftir megni úr hrýnustu likamlegum þörfum manna. Það var
])ví varla von á ])ví, að rnikið fé yrði lagt fram til skólamála
til að byrja með. En þa'Ö hamlaði stjórninni þó ekki frá því
að láta undirbúa málin sem bezt, svo að ekki stæði á breytinga-
áætlununum þegar féð yrði til.
Ein fyrsta og mesta breytingin, sem komst í framkvæmd,
var sú, að ákveÖið var með lögum, að fyrstu 4 árin, sem börn
væru skólaskyld, ]). e. 6—10 ára, skyldu öll börn undantekn-
ingarlaust ganga í samskonar skóla sem Þjóðverjar kalla