Menntamál - 01.05.1938, Síða 56

Menntamál - 01.05.1938, Síða 56
54 MENNTAMÁL aðrar skólasögur o. s. frv. En allar hafa þær það sameiginlegt að örva drengi til dáða og hetjuskapar. Og hetjur eru langtum fleiri en þeir, sem skráðir eru i alfræðiorðabækur eða í doð- ranta sagnaritara. í flestum sögum Aðalsteins eru hetjur, sem verða til fyrirmyndar i daglegu lífi. Drengurinn hrífst af þeim, verður bjartsýnni og fær trú á möguleika sína eins og sögu- hetjunnar. Mér er kunnugt um, að sögur þessar hafa haft mik- il áhrif til nytsemdar, en það er meira en hægt er að segja um fjölda af æskulýðsbókum vorum. G. M. M. Um bindindisfræðslu. Hahdbók fyrir kennara. Ríkis- prentsmiðjan Gutenberg 1938. Þessi bók, s'em er 78 hls. að stærð, er gefin út af fræðslu- málastjórninni, en Arnór Sigurjónsson hefir þýtt, endursagt og samið fyrir islenzkar aðstæður eftir Handledning för larare vid nykterhetsundervisningen, pá Kungl. Mj:ts uppdrag utgiven av Kungl. Skolöverstyrelsen. Það er fljótsagt, að þessi handbók kemur í góðar þarfir og virðist á flestan hátt svara tímabærum kröfum um þessi efni. Þarna er samankominn mjög mikill fróðleikur um áfenga drykki, áhrif þeirra á neytendurna frá heilsufræðilegum og siðferðis Sjónarmiðum, um áfengismálin frá félagslegu sjónarmiði o. fl. — Þessi bók verður ekki kennd í skólum, en ég álít að hverjum kennara sé nauðsynlegt að kynna sér áfengisfræðslu, til þess að geta miðlað hinum ungu nemendum raunhæfum sannindum um þessi efni. Hin raunhæfu sannindi verka oft betur og varanleg- ar heldur en langar prédikanir, sem svifa í loftinu hátt yfir andrúmslofti og hugarheimi harna og unglinga. Ég er ánægður yfir því, að þessi bók er komin út. Hún gæti orðið vopn í höndum skynsamra manna til þess að reka einn höfuðfjanda menningar vorrar af höndum þjóðariiinar, — sið- leysi áfengisnautnar. Fræðslumálastjórn hefir stigið gott spor með útgáfu þessari og Arnór Sigurjónsson á þökk skilið fyrir vel og skilmerkilega unnið starf. G. M. M. Dr. Ágúst H. Bjarnason: Almenn sálarfræði, 2. útgáfa, aukin og endurbætt, með 34 myndum. Reykja- vík 1938, ísafoldarprentsmiðja H.f. 496 bls. Dr. Ágiist H. Bjarnason er fyrir löngu þjóðkunnur fræðimað- ur, enda þótt nú um skeið hafi verið tiltölulega hljótt um nafn hans. En þessi hók, sem komin er á markaðinn fyrir nokkrum vikum, ber þess ljósan vott, að höfundurinn hefir ekki legið

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.