Menntamál - 01.05.1944, Síða 4

Menntamál - 01.05.1944, Síða 4
102 MENNTAMÁL ryðjum oss aldrei til rúms meðal annarra þjóða eða vinn- um oss virðingu þeirra og álit með mannfjölda eða auð- legð. Oss er sú leið ein opin að taka öðrum fram, skapa oss þann dóm, að vér séum heiðarleg og manndómsmikil menningarþjóð, þótt fámenn sé. En vegur hverrar þjóðar byggist á manngildi einstaklinga þeirra, er hana mynda. Innan skamms fögnum vér stofnun lýðveldis hér á landi. Þá er sérhverjwm íslendingi skylt að heita því að vera jafnan trúr sjálfum sér og þjóð sinni. Ríkari skylda er þó að efna það heit eftir föngum. Framtíð lýðveldisins, sjálf- stæði vort og frelsi er að nokkrum hluta lcomið undir hverjum einstaklingi, hver drengur hann reynist þjóð sinni í daglegu lífi sínu. Undan þeirri ábyrgð fær enginn maður skotizt. Allar veilur einstaklingsins koma fram í því, að þjóð hans verður veikari vegna þeirra, framtíð hennar óvissari, sjálfstæði hennar og frelsi í meiri hættu. Hver einstaklingur þarf að horfast í augu við þessar stað- reyndir og velja síðan lífi sínu þá stefnu, er liann telur bezt sæma. Vér viljum eigi, að tjáldað sé til einnar nætur, er vér stofnun lýðvéldi vort. Oss er það alvörumál, að framtíð þess verði löng og giftusöm. Sú tcynslóð, sem við því á að talca að oss liðnum, þarf að vera sem bezt undir hlut- verk sitt búin. Milcil er sú skylda og þung sú ábyrgð, er hvílir á kenn- urum landsins, skólanefndum, foreldrum og öllum öðrum, sem nolckur afskipti hafa af uppeldi barna og unglinga. Allir þessir menn eiga hver eftir sinni getu og aðstöðu að velta völum eða bera björg í þann grjótmúr, sem vernda slcal í framtíðinni frelsi og sjálfstæði hins íslenzka lýð- veldis, en sá múr er þegnskapur og manngildi hvers ein- staks þjóðfélagsborgara. Ólafur Þ. Kristjánsson.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.