Vorið - 01.06.1956, Page 7
V O R I Ð
45
Fill i dýragarðinum.
Einn hinna fögru turna Friðriksborgar-
hallarinnar.
Við fórum svo inn og skoðuðum
þennan gamla kastala, sem Eiríkur
a£ Pommern upphaflega byggði.
Mikill hluti hans brann einu sinni,
en var síðar endurreistur. að utan
er kastalinn mjög tilkomumikill og
fagur með nokkrum turnum, en
ekki að sama skapi að innan, og lít-
ið í samanburði við Friðriksborgar-
höllina, enda höfðu þeir ólíku
hlutverki að gegna. Undir kastalan-
um er mjög stórt fangelsi. Það hef-
ur verið ömurlegt líf fyrir þá, sem
þar þurftu að dvelja, ég var orðin
dauðmyrkfælin áður en ég komst
aftur út úr þessurn svörtu ranghöl-
um, því að fáir voru gluggarnir og
allir veggir rakir.
Þegar Eyrarsundstollurinn var
afnuminn, hætti Krónborg að hafa
hernaðarlega þýðingu, og stendur
nú sem safn, og kemur mönnum til
að rifja upp liðna sögu.
Við eina hlið kastalans standa
einar fimrn fallbyssur, þar hjá
stendur einnig alltaf einn hermað-
ur á verði og gengur hann þar fram
og aftur, alltaf á sama blettinum og