Vorið - 01.06.1956, Blaðsíða 33

Vorið - 01.06.1956, Blaðsíða 33
V O RIÐ 71 hann þar löngum og var nú kom- inn í föt af föður barnanna. Hann var nú ekki eins flóttaleg- ur og í fyrstu, og þreytusvipurinn var minni. Hann brosti oft til barnanna, og þá óskuðu þau einatt, að hann gæti talað ensku. Mamma skrifaði fjölda bréfa, til þess að reyna að hafa upp á konu hans og börnum. Hún skrifaði samt ekki sínum gömlu kunningj- um, heldur ýmsum ritstjórum blaða og tímarita, riturum ýmissa félaga, þingmönnum o. s. frv. Börnin vildu á allan hátt sýna ókunna manninum samúð sína. F.n þeim var ekki ljóst á hvern hátt þau gætu það bezt. Þau gátu auð- vitað brosað til hans, og það gerðu þau. En ef maður brosir stöðugt, þá verður brosið stirðnað vanabros. Þau færðu ihonum líka oft ofur- litla blómvendi úr bláklukkum, rósum eða smárablómum. Og einu sinni datt Fríðu nokkuð í hug. Hún kallaði í systkini sín og mælti: „Munið þið ekki eftir því, að Perks gamli lofaði að gefa mér einhvern tíma jarðarber úr gSarðinum sín- um? Við skulum koma þangað of- an eftir til hans.“ Börnin höfðu ekki komið á járnbrautarstöðina í þrjá daga, vegna þess, hve ókunni maðurinn dró að sér athygli þeirra. Og þeirn til mikillar hryggðar og undrunar tók nú gamli Perks mjög kuldalega á móti þeim. ,,En sá heiður," mælti hann, er þau stungu höfðinu inn í dyragætt- ina á herbergi hans, og hélt síðan áfram að lesa í blaði sínu. Nú kom óþægileg þögn. „Æ,“ sagði Bobbí, „ég er hrædd um, að þér séuð okkur eitthvað reiður." „Síður en svo,“ svaraði Perks þóttalega, „mér kemur það sannar- lega ekkert við, hvorki það sem skeður hér né annars staðar. Ef þið viljið þegja yfir einhverjum leynd- armálum, sem þið hafið, þá gjörið svo vel, á sama stendur mér.“ „Við höfum engin leyndarmál, sem þér megið ekki vita,‘ sagði Bobbí, eftir litla umhugsun. „Það getur vel verið, mér kemur það heldur ekkert við, og verið þið sæl,“ sagði Perks, breiddi blaðið enn þá betur fyrir andlit sér og hélt áfram að lesa. „Æ,“ sagði Fríða í örvæntingu sinni. „Hvað sem það er, sem hefur komið fyrir, þá segið okkur það.“ En Perks gamli steinþagði og byrjaði á nýrri blaðsíðu. „Þetta er ekki réttlátt,“ sagði Pétur. „Mönnum er aldrei hegnt, jafn- vel þótt þeir hafi drýgt glæp, án þess að þeir fái að vita, fyrir livað er verið að hegna þeim.“ ,,Ég veit ekkert um, hvað gerist lijá ykkur,“ svaraði Perks. „Jú, það vitið þér, þvi að mamma fór hingað, til þess að segja

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.