Vorið - 01.06.1956, Side 35
V O R 1 Ð
73
Úr heimi barnanna.
SKÓLINN.
Það var komið haust, og skólinn
var að byrja. Þau Stella og Maggi
voru að fara í fyrsta sinn í skólann,
í 7 ára bekk.
Þau voru tvíburar og voru mjög
samrýnd. Áttu þau heima í dai ein-
um skammt frá kaupstaðnum.
Höfðu þau oft komið ofan í kaup-
staðinn og þótti það ákaflega gam-
an. Þau voru því auðvitað aiveg
ihiminlifandi, Iþegar pabbi þeirra
hafði vakið þau eldsnemma einn
morgun og sagði að þau ættu að
fara á fætur og hjálpa mömmu
sinni að láta niður í töskurnar sín-
ar, af því að þau ættu að fara á
morgun í heimavistarskólann, sem
var í kaupstaðnum (en hann var
svo langt í burtu, að þau gátu ekki
farið heim á hverju kvöldi). Höfðu
þau farið snemma á fætur, og er
þau komu fram, var mamma þeirra
búin að hita kakó handa þeim.
Drukku þau það og borðuðu brauð
með, síðan Ihöfðu þau farið að tína
saman öll föt, sem þau áttu að fara
með. Síðan kom kvöldið og þau
fóru í rúmið, sæl og ánægð. Og svo
kom morgundagurinn, auðvitað
með öllum sínum yndisleik, og
börnin fóru á fætur klukkan 7. Og
er þeim var litið út um gluggann,
sáu þau, sér til mikillar gleði, að
það var kominn heilmikill snjór.
Svo kvöddu þau mömmu sína og
fóru út með pabba sínum. Og litlu
andlitin ljómuðu af ánægju er þau
sáu að fyrir utan dyrnar stóð spán-
nýr skíðasfeði. Pabbi þeirra sagði,
að hann hefði keypt hann í kaup-
staðnum og mættu þau eiga hann.
Börnin hlupu upp um hálsinn á
pabba sínum og kysstu hann fvrir