Vorið - 01.06.1956, Side 39

Vorið - 01.06.1956, Side 39
V O RIÐ 77 mundu stoða að dyljast lengur. Hún kvað svo vera skyldu. Setjast jlau niður í túnbrekkuna. Síðan rnælti hún: „Ef iþú vilt nafn mitt vita, þá heiti ég Melkorka.“ Hösk- uldur bað hana þá segja lengra ætt sína. Hún svaraði: „Mýrkjartan hét faðir minn. Hann er konungur á Irlandi. Ég var þaðan hertekin 15 vetra gömul.“ — (Laxdæla.) 5. Þegar Björn Jórsalafari var ut- an í þriðju ferð sinni, hafði hann — að dærni annarra stórmenna — fundið stjörnumeistara og látið Iiann „stilla hóróskóp" barna sinna, Þórleifs og Kristínar, sem bæði voru heima. Þau voru tvíburar, og gat hann sagt stjörnumeistaranum dag og stund, þegar þau fæddust. Stjörnumeistarinn reiknaði og reiknaði, vakti heilar nætur og rýndi og rýndi í hina bláu, leyndar- dómsfullu bók, sem breiðir sig út opna yfir höfðum okkar allra. Loks sagði hann, að annað barnið rnundi deyja, áður en Jrað næði fullum Jrroska, en hitt væri síhækkandi stjarna. Það mundi lifa lengi og af því mundi koma mikill ættbogi og margt ágætra manna. (Hækkandi stjarna eftir Jón Trausta.) 6. „Nei, Norðlendingar eru vak- andi. í þetta skipti eru Norðlend- ingar vakandi. — Síðan þing- menn komu að sunnan og fyrirætl- anir Jæirra kóngsmanna urðu kunnar, hafa verið njósnarmenn á öllum heiðum. Og nú hefur spurzt til þeirra Smiðs sunnan af Vatna- hjallavegi." „Og þú býst við Jaeim hingað í kvöld?‘ Helga húsfreyja brosti gremju- lega. „Hvar skyldu þeir fremur húsa leita en á höfuðbólinu? Mundi Jreim ekki þörf á góðri hressingu eftir öræfareiðina.* „Og Einar bóndi ekki heima.“ „Einar bóndi er að búum sínum vestur á landshorni. Það er ekki í fyrsta skipti, pater, að húsfreyjan á Grund hefur fríar hendur. — Gott og vel. Grund á ég sjálf, og þar vil ég ráða, hvort sem bóndi minn er lieima eða ekki. — Hingað til hefur Jrað ekki orðið okkur til missættis." „Og hvað hefurðu í hyggju að gera, húsfreyja?" „Búa til veizlu. — Gera Grund- ar-gestrisnina orðstírs síns mak- lega.“ (Veizlan á Grund eftir Jón Trausta.) Þegar Jrið sendið ráðningu við getrauninni um liver þetta er, Jrá skýrið frá, hvað átt er við með hverri gi'ein. Veitt verða ein verð- laun. Svör verða að hafa borizt fyr- ir 15. ágúst næstk.

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.