Vorið - 01.06.1956, Side 8
46
VORli)
bendir byssunni ýmist beint upp í
loftið, fram, eða niður. Það var
skoplegt að sjá þessar aðfarir og
fórum við að skellihlæja og hætt-
um ekki fyrr en hann var farinn að
hlæja líka.
Það er í Krónborg, sem Shake-
speare lætur hið fræga leikrit sitt,
,,Hamlet“, gerast.
Lengra fórum við ekki þennan
daginn, en snerum aftur til Kaup-
mannahafnar.
Næsta dag lögðum við af stað í
bíl vestur á bóginn frá Kaup-
mannahöfn til Hróarskeldu. Dóm-
kirkjan í Hróarskeldu er löngu
fræg orðin. Hún er mjög stór og
með mörgum turnum. í kirkjunni
eru margar grafhvelfingar og í
þeim hvíla Danakonungar síðustu
500 ára.
Frá Hróarskeldu var haldið í
norður til Nyböbing. Þar var okk-
ur gefinn matur í barnaheimili, og
fórum við svo á baðstað á eftir. En
því miður var ekkert sólskin, og
var það víst eini dagurinn í dvöl
okkar í Danmörk, sem hún lét ekki
sjá sig. í stað þess komu þrumur og
eldingar og óskapleg rigning á eft-
ir. Danirnir sögðu þetta vera einu
vætuna, sem þeir hefðu fengið það
sem af var sumrinu.
í þessari ferð komum við einnig
á annað barnaheimili, Höve. Þar
dvelja börn frá Kaupmannahöfn,
sem hafa verið veik, og eru þarna
sér til hressingar.
Lengra var svo ekiki farið, og
snerum við aftur til Kaupmanna-
hafnar.
Einn dagur í Svíþjóð.
Einn morguninn tókum við okk-
ur far með ferjunni frá Kaup-
mannahöfn yfir til Málmeyjar í
Svíþjóð. Þar er aftur á móti vinstri-
liandar akstur, og gerði það okkur
illt verra, þar sem við vorum nokk-
uð vön að víkja til hægri, en það
gekk samt allt. saman slysalaust.
í Málmey tókum við okkur lest
og ókum til Lundar. Þar er gömul
og fræg dómkirkja í rómönskum
stíl, sem Knútur helgi lét reisa.
Árið 1103 var þar settur erki-
biskpsstóll og er kirkjan elzta erki-
biskupskirkjan á Norðurlöndum,
einnig var hún höfuðkirkja Dana á
miðöldum. Þar var Jón biskup Ög-
mundsson vígður ásarnt nokkrum
öðrum íslenzkum biskupum.
Á 17. öld var reistur í Lundi há-
skóli, löngu frægur.
Við skoðuðum dómkirkjuna. í
henni er til dæmis mjög merkileg
klukka, sem mælir fyrst og fremst
klukkustundir, en einnig daga, vik-
ur, mánuði, tunglstöður o. m. fl-
Klukkan tólf spilar hún mjög fag-
urt sálmalag, en þvl miður komum
við nokkrum mínútum of seint. til
að geta hlustað á það. Lundur er
lítill bær, en fagur.
Hins vegar er Málmey stór borg.