Vorið - 01.09.1967, Blaðsíða 19

Vorið - 01.09.1967, Blaðsíða 19
1946 og tókst með ágætum. í júlí 1948 kom svo Gullfaxi liinn fyrsti til lands- ins. Þetta var þá glæsilegasta flugvél okkar íslendinga. Hún var af Skymaster- gerð, og innrétting og frágangur allur með afbrigðum vandaður. Upp frá því iiefur Flugfélag Islands rekið allt sitt millilandaflug með eigin flugvélum. 1955 eignaðist félagið aðra flugvéí af Skymastergerð og hlaut hún nafnið Sólfaxi. I innanlandsfluginu, sem óx jafnt og þétt, gerðist það, að félagið eignaðist fleiri Dakota-flugvélar, hafði 3 Katalínaflugvélar í förum og auk þess fiugvélar af Norseman- og Grönman- gerðum. Arið 1956 voru fanþegar Fiugféiags íslands milli landa orðnir nokkuð á sextánda þúsund. Fyrirsjáanlegt var því, að endurnýja þyrfti millilandaflugflot- ann tii þess að mæta vaxandi þörf. For- ráðamenn Flugfélagsins fréttu þá af tveim nýjum skrúfuþotum af Viscount- gerð, sem kannski væru til sölu í Bret- landi. Undinn var bráður hugur að mál- um og þessar flugvélar keyptar. Þær komu til landsins 2. maí 1957, og voru um árabil uppistaðan í millilandaflug- flota íslendinga, þótt Skymasterflugvél- ar væru notaðar til leiguflugs og til Grænlandsferða. Árið 1961 keypti Flugfélag íslands sína fyrstu Cloudmasterflugvél og eign- aðist nokkru síðar aðra. Endurnýjun VORIÐ 113

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.