Vorið - 01.12.1967, Qupperneq 4
Ævintýri á ísjaka 1965, Skíðakeppnin 1965, Ingi og Edda leysa vandann,
flutt í útvarp 1966, Barnaleikritið Kubbur og Stubbur, sýnt af Leikfélagi
Reykjavíkur í Iðnó, leikárið 1966—1967. Sigur páskanna, útvarpsleikrit,
flutt á páskum 1967. Þessar bækur hefur Þórir þýtt: Systkini uppgötva
ævintýraheim 1964, og Ævintýri barnanna 1966.
Af þessari upptalningu sézt, að þessi ungi höfundur hefur ekki slegið
slöku við þessi undanfarin ár.
Þórir hefur verið svo vinsamlegur í bréfi til Yorsins að gera í stuttu
máli grein fyrir livað fyrir honuni vakir, er hann ritar fyrir börn. Þetta
nefnir hann:
„1. Að bókin hafi hoðskap að flytja — siðferðilegan og trúarlegan.
2. Sagan sé lifandi, eðlileg frásögn, og atburðarásin nokkuð hröð.
3. Sagan sé, eftir því, sem unnt er, í þeim búningi, sem aðgengilegur
mætti teljast fyrir börn og unglinga. Samrýmist ákveðmi marki „and-
rúmslofti4 þeirrar kynslóðar, sem skrifað er fyrir.
4. Bezt, að sagan væri þannig skrifuð, að markmið hennar eins og síaðist
inn í lesandann, án þess að hann verði þess alltof mikið var, eða hér
séu á ferð einhverjir voðalegir siðferðispredikarar.
5. Að sagan komi að einhverju leyli inn á vandamál, sem lesendur gætu
haft gagn af í daglegu lífi, t. d. bindindi, óhreinskilni, stríðni o. s. frv.“
Ennnfremur segir Þórir í áðurnefndu bréfi:
„Við lifum á tímum afkristnunar. Og innan skamms búum við í þjóð-
félagi, þar sem vandamál æskunnar verða miklu alvarlegri, en við gerum
okkur fyllilega ljóst. 011 fjölmiðlunartæki hafa mikil áhrif á hjörtu æsk-
unnar og stundum móta stefnu þeirra á viðkvæmum aldri.
Bókmenntir af ýmsu tagi flæða inn í landið — og margt miður gott. I
lilöðum, bókum, tímaritum, kvikmyndum og myndablöðum er útlitsfegurð
'ig ást skipað í svo háan sess, að unglingarnir eiga oft erfitt með að sætta
sig við raunveruleika hins hversdagslega lífs. Innri fegurð er gleymd.
Kapphlaupið við tímann og peningana hefur magnast mikið með árunum,
og ýmis fleiri vandamál mætti hér upp telja, sem við eiguin við að stríða.
146 VORIÐ