Vorið - 01.12.1967, Blaðsíða 12

Vorið - 01.12.1967, Blaðsíða 12
Börnin höfðu tekið með sér eldhús- klukkuna til að vita hvað tímanum liði. Ekkert þeirra átti úr. Þau vöfðu utan um hana áklæði, svo að hún skyldi ekki vökna, ef það gæfi á bátinn. Það var svo sem séð fyrir öllu! Eftir 20 mínútna róður voru þau komin út að Lundey og stigu þar á land eftir langa og harða útivist, eins og sæ- barðir landkönnuðir. Til allrar ham- ingju þurftu þau þó ekki að gefa þessu landi nafn, því að það var þegar fyrir. Þau urðu að notast við það, þótt ekki væri það neitt skáldlegt. Þau bundu bát- inn rammlega við krókstjaka, sem þau höfðu haft í bátnum, og ráku hann nú niður í sandfjöruna eins langt og þau gátu. Þau myndu áreiðanlega geta kom- ið bátnum á flot þó að fjaraði undan honum. Þetta var ekkert stórskip. Þau fóru nú í könnunarferð upp á eyna til að finna gott tjaldstæði. Þau fundu það brátt í fallegu, sléttu jóðri, en eyjan var öll vaxin víði og hirki- kjarri. Alls staðar sátu fuglar á eggjum, einkum æðarkollur. Þegar hörnin höfðu fundið fallegan tjaldstað, hlupu þau aft- ur niður að bátnum og sóttu farangur sinn. Síðan tjölduðu þau og komu öllu dólinu fyrir inni í tjaldinu. Svanur vildi að Dóra færi að hila kakóið, en henni þótti það allt of snemmt, og við það varð að sitja, því að hún var húsmóðir á sínu heimili. Þau fóru nú könnunarferð um eyna og sáu þar margt forvitnilegt. Þó að þau hefðu oft séð æðarkollur á eggjum áður þótti þeim einna skemmlilegast að sjá þessar fallegu eggjamæður, sem voru svo gæfar að þær hreyfðu sig ekki þótt strokið væri um bakið á þeim. Þetta var þeirra friðland og þær höfðu ekkert að óttast. Svartbakurinn hafði aldrei ónáð- að þær með komu sinni til Lundeyjar. Kríurnar og riturnar áttu þarna sína nýlendu, en þær voru snöggari upp á lagið. Þegar hörnin komu nálægt hreiðr- um þeirra, komu þær á móti þeim með illyrmislegu gargi og gerðu sig líklegar til að höggva í kollinn á þeim með nefj- um sínum. Þær gerðu meira að segja alvöru úr því, svo að börnin hættu sér ekki lengra inn í ríki þeirra. Þá fóru þau einnig framhjá lundabyggð. Þar var jörðin öll holgrafin af lundahreiðrum. En það leið nú að því, að pysjurnar færu að skríða úr holum sínum, en svo nefnast lundaungarnir. „Ættum við að taka með okkur nokkr- ar pysjur í matinn?“ spurði Einar. „Pabba og mömmu þykja þær mjög góðar.“ „Já, við skulum gera það,“ sagði Svanur. „Við getum eldað þær í matinn í kvöld.“ „Ég þori ekki að seilast ofan í holurn- ar,“ sagði Dóra. „Ég veit ekki nema pysjurnar híti mig.“ „Er það nú hetja?“ sagði Einar. „Þorir þú það, Svanur?“ - „Já, það er nú ekki mikið að þora. IJetta eru tannlaus grey.“ „Jæja, Svanur þá byrjum við,“ sagði Einar. I’eir gengu nú um lundabyggðina og þegar þeir sáu holur niður í jörðina stungu þeir handleggjunum niður í þær og komu svo með litla spriklandi lunda- unga í lófanum. i-Ji 154 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.