Vorið - 01.12.1967, Blaðsíða 19

Vorið - 01.12.1967, Blaðsíða 19
Svo háttaði hún og hvarf inn í ævin- lýri svefns og drauma. Hún var stödd í einhverju rjóðri. Allt i kringum hana var grænn, lágur runna- gróður. Hún þekkti ekki þessa runna. HafSi aldrei séS þá fyrr. Þeir minntu aS vísu ofurlítiS á víSi, en þó var þaS ekki víSir. Hún gekk eftir mjóum götutroSningi, og þá blasti viS henni allstórt stöSuvatn. Hún hélt áfram í áttina til vatnsins. Þeg- ar hún kom þangaS, sá hún þar nokkra fugla. Þetta voru stórir fuglar, sem rninntu á svani, en þó voru þaS ekki svanir. Þeir voru ekki hvítir, heldur svartflekkóttir. — Hún undraSist mjög yfir þessum fuglum. Þeir voru í stórum hópum. Hún gekk um hríS meSfram vatninu. f eiS hennar lá um lyngmóa og lágvaxiS kjarr, en hávaxin stör óx meSfram vatn- inu, og bar hún lítil, Iilá blóm. Hún horfSi á þetta undrandi. Loks sá hún einhverja hreyfingu i ttióunum. Og þegar hún kom nær, sá hún aS þetta voru tvö börn, sem krupu þarna í þúfunum, drengur og slúlka. í sama bili litu þau upp og heilsuSu henni. — HvaSan kemur þú? spurSu þau. — Eg kem aS heiman, svaraSi Anna Stína. — Hvar áttu heima? — Eg á heima á Akureyri. — Þann bæ hefi ég aldrei heyrt nefnd- an áSur, svaraSi stúlkan. — ÞaS er þó næst stærsti bærinn á landinu okkar, svaraSi Anna Stína. ■—- Landinu ykkar? HvaSa land er þaS? — AuSvitaS fsland. Þá skellihlógu bæSi börnin og sögSust aldrei hafa heyrt þaS nefnt fyrr. Nú sá Anna Stína aS börnin voru aS lína ber. Og þá mundi hún allt í einu eítir því, aS þaS var vetur á Akureyri og Súlurnar alhvítar af snjó. En hér var sumar, jörðin græn og ber á lynginu. Hún skyldi ekkert í þessu. Hún lnagaSi á berjunum, en þekkti þau ekki. Þau voru góS og safamikil. Eftir nokkurn tíma hættu börnin berjatínslunni og héldu heim til bæjar. Anna Stína fylgdist meS þeim og var nú orSin dálítiS kunnug þeim. Onnu Stínu þóttu bæjarhúsin skrýtin. Þau voru á einni hæS og úr einhverju efni, sem hún þekkti ekki. Þegar þau komu, hafSi móSir barnanna dúkaS borS úti á svölum. Á borSinu voru ýmis- konar ber og ávextir. Einhver ávaxta- drykkur var þar í vatnsglösum. Þegar þau höfSu matast, fór hún meS börnunum í skólann. Anna Stína undr- aSist margt, er hún sá þar. Þar voru börnunum sýnd lifandi dýr og plöntur í kennslustundum. í fyrstu kennslustund- inni var komiS meS þröst í búri. SkýrSi kennslukonan svo frá lifnaSarháttum hans, hreiSurgerS og ferSalögum. SíSar var þeim sagt frá einhverri plöntu, sem hún þekkti ekki. Þá voru börnunum sýndar myndir úr bimingeimnum. Þaj- sáu þau sólina og reikistjörnurnar. Þar sá hún jörSina VORIÐ 161

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.