Vorið - 01.12.1967, Qupperneq 22

Vorið - 01.12.1967, Qupperneq 22
vitund hræddur við' þau, enda voru þau svo falleg og góðleg á svipinn. Hann leit upp á kofavegginn og þar sat Blær litli á hlóminu sínu og brosti til hans og veifaði, glaður og ánægður. Fyrst þið eruð vinir hans Blæs litla, þá hljótið þið að vera góðir álfar. — En segið mér hvaða erindi eigið þið við mig. Og nú leit Rúnar spyrjandi á syst- kinin. — Við ætlum að h jóða þér heim með okkur, það er svo stutt og blómálfarnir gæta bús ykkar bræðra á meðan, svo að þú þarft ekkert að óttast, sagði Askur og hló lítillega. — Það er sunnudagur í dag, svaraði Rúnar, svo að við bræður eigum frí og ef ég verð ekki það lengi, að pabbi og mamma vera farin að undrast um mig, þá er það allt í lagi með að koma. — Þú þarft ekkert að óttast um það, sagði nú Askur. — Við sjáum um að koma nógu snemma til baka. Komdu bara, — og Askuv rétti Rúnari hönd sína. —• Já, komdu, sagði Ögn einnig og tók í hina hönd Rúnars, sem reis nú jpp og fannst hann dálítið lítill milli þessara systkina, sem voru bæði stærri og eldri en hann. — En glerið mitt góða, sagði Rúnar. — Ég sé það hvergi. — Þú þarft þess ekki lengur, því að nú sérð þú án þess og auk þess' var þetta dvergasmíði, sem nii er horfið og ófinn- anlegt, sagði Askur. — En nú skulum við koma og syngja sólskinssönginn okkar á leiðinni upp brekkurnar, þá verðum við fljótari eins og við álfarnir erum vanir að segja. Og systkinin tóku lil að syngja en Rúnar hlustaði á, því að hvorki kunni hann lagið né Ijóðið. — Sólin skín, sólin skín, sveipar fjöllin blá. Blómin mín, blómin mín brosa ung og smá. Vorið hlýtt, vorið hlýtt vekur allt á ný. Sigla þýtt, sigla þýtt silfurlituð ský. Ljósblá á liðast frá létt um grænan dal. Una smá unglömb þá inni’ í fjallasal. Syngur ló, söng í mó, syngur lind í hlíð. Birta nóg, bros og ró, blíð er vorsins tíð. Álfaþjóð, elskar Ijóð, elskar vor og sól. Geislaflóð græna slóð gyllir, laut og hól. Syngjum dátt, syngjum dátt, senn er gengin leið. Loftið hátt, ljóst og blátt, lýsir álfaskeið. Það stóð á endum að söngnum var lokið, er börnin komu að klettaborg- inni. Nú var þetta ekki lengur grátt grjót í augum Rúnars, heldur glæst og háreist hús með stórum gluggum og vandaðri koparhurð fyrir dyrum. — Þá erum við komin heim, sagði Ogn og lók i hurðarhúninn, sem var gylltur og alls ólíkur .þeim, sem Rúnar hafði séð! Eramh. 164 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.