Vorið - 01.12.1967, Blaðsíða 24

Vorið - 01.12.1967, Blaðsíða 24
Vi3 Gefjunargosbrunninn. Gullfaxa FJugféJags íslauds. Ég kvaddi þau öll og gekk út í nýju flugvélina. Ég settist við glugga og innan skamms fór þotan með ofsahraða eftir flugbrautinni og var komin upp fyrir öll ský eftir nokkrar mínútur. Síðan var borinn fram mjög góður morgunverður og það kom sér vel, því að ég hafði verið i ferðahug og borðað lítið áður en ég fór um morguninn. Nú flugum við í eina klukkustund og fimmtíu mínútur. Var mér sagt, að vél- in ætti að lenda í Glasgow eftir stuLta stund. Þegar þangað kom, ók þotan að stórri byggingu. Litlu síðar gengum við út úr flugvélinni á afarstórri flugstöð. Þá var ég korninn til útlanda og sá í fyrsta sinn yfir mikla stórborg, sem er ólík Reykjavík. Þarna vorum við í hálfan tíma. Þá var lagt af stað til Kaupmannahafnar. Aftur báru flugfreyjumar okkur góðan mat. Okkur Mæju þótti gaman að sjá Skot- land, og eftir litla stund flugum við inn yfir Danmörku. Við vorum komin til Kaupmanna- liafnar kl. 1 síðd. Við gengum fram í stjórnklefa þotunnar og sáum alla takka og mæla, sem henni er stjórnað með. Síðan gengum við inn í flugstöðina á Kastrupílugvellinum, einn langan gang. Þar var margt fólk að koma og fara. Þar hiltum við Hinrik Bjarnason, sem hefur barnatímana í sjónvarpinu. Hann var með tvo menn frá danska sjónvarp- inu. Sveinn og Hinrik töluðu eittlivað saman meðan við gengum út. Þegar út var komið, beið okkar bíll. Við fórum upp í hann og ókum á Hótel Inperíal, þegar við böfðum fengið þar herbergi, fórum við út í Tívolí. í TIVOLÍ Tívolí er stór og fallegur skemmti- 166 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.