Vorið - 01.12.1967, Qupperneq 35

Vorið - 01.12.1967, Qupperneq 35
spurði hvort ekki væri bezl fyrir alla, að hann fengi lóðina, fyrst hann lang- aði til þess. — Eg gæti kannski útvegað ykkur annan blett, sagði hann. Því neitaði Aki rnjög ákveðið, svo að hann minntist ekki á það aftur. Og hann lét sig alveg, þegar hann sá alla ungl- ingana úti. — Jæja, þið komið með heilan her- flokk, svo að mér er víst bezt að láta undan. Hann brosti um leið og hann sagði þetta. Að síðustu rétti hann þeim liend- ina. — Þið fáið góðan leikvöll, sagði hann. — Takið föður þinn til fyrir- niyndar og standið ykkur vel. Annars sé ég eftir blettinum handa ykkur. Svo sagði hann þeim að Ijúka húsinu og fara vel með það. — Og hreinsið svo leikvanginn. ■— Og lærið að stjórna ykkur sjálfum, bætti hann við. Hann talaði í sig hita og stóð kyrr eins og hann vildi segja eitthvað meira. En þau vildu komast út. Og þegar Áki var rétt kominn út fyrir dyrnar, komu félagar hans, lyftu honum upp og báru bann á milli sín út á leikvanginn. Þetta kvöld var líf og fjör hjá unga fólkinu. Loks hafði það eignasl íþrótta- völlinn. Það var gaman, að það gat hagað störfum þar eftir eigin vild. •— Húrra! Minnstu krakkarnir ólm- ast um völlinn, detta og rísa upp aflur. beir sem stærri eru skilja að hér á að verða knattspyrnuvöllur og slíta upp tætur og þúfur svo að rykið rýkur í kringum þá. En frá skálanum berst mik- ill hávaði. Stóru krakkarnir sveifla hömrum og saga með sög. Sjáið hann Áka í Stíflu! Stendur hann ekki þarna eins og hann sé alveg heilfættur og vinn- ur við einn vegginn. — Jú, þetta verður fljótt hús, segja þau. Þau sjá ekki, að bræðurnij- úr Innsta- dal koma neðan stíginn. Þeir hafa ekki látið sjá sig síðan þeir fóru í fússi. Nú stefna þeir beint að húsinu, stinga hönd- unum í vasann, líta hvor til annars og spýta langt. Þeir sem vinna að byggingunni vita, að þeir muni eiga eitthvert erindi. — Bræðurnir bíða eins og þeir búist við, að þeim verði boðið að verða með og einhver bjóði þá velkomna. — Hefur Kolbeinn gleymt, hve vond- ur hann var við Áka? Eða heldur hann, að við höfum gleymt því, hugsa þeir. — Halda þessir þrjótar, að við höfum gleymt, hve mikil vandræði þeir komu okkur í á undan knattspyrnukeppninni við þá á völlum? — Þeir ættu að skammast sín. Nei, þeir Kolbeinn og Haraldur skulu fá að vita, að við gleymum ekki svona fljótt. Og þeir, sem reka nagla strengja á munnvikjunum. Það þýðir ekki fyrir þá að koma skríðandi í kvöld, því að þetta kvöld er helgað Áka, og svo .... Það er aðeins Áki sjálfur, sem hugsar öðruvísi. Allt í einu lítur hann til þeirra og lyftir hamrinum hærra en hann er vanur. — Halló! Hann ýtir við Hjördísi með hamrinum og fær hana til að hlæja, svo að sést í hvítar tennurnar, fær hana til að hlæja innilega svo að lokkarnir VORIÐ 177

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.