Vorið - 01.12.1967, Blaðsíða 37

Vorið - 01.12.1967, Blaðsíða 37
er aS hælta. Hún hefur ekki fylgsl með, hvað aðhafst var inni í húsinu, og þegar svartur reykur kemur framan í hana, skilur hún ekkert í því. —■ Skyldi vera kviknað í húsinu? Aki sér hana þegar hún slekkur nið- ur. Hún er skammt frá honum. Hún er hrædd. Þau eru svo hrædd, að hún faðmar hann að sér óttaslegin. Enþ egar Hjördís skilur, að reykurinn kemur frá reykháfnum, þá fer hún að hlæja. Hún hlær og hlær meðan liún stendur þarna hjá honum. En Aki hlær ekki. Hann hefur aldrei fyrr komið svona nálægt nokkurri stúlku, og hann er undrandi og alvar- legur. Það er eins og hann sjái Hjördísi • fyrsta sinn. Það er eins og hann hafi faðmað að sér allt þetta hátíðlega kvöld. Það er svo margt, sem liann lang- ar til að segja henni. — Hann vill þakka henni fyrir í nafni félagsins og segja, að hún sé duglegust af þeim öllum. Svo er hún skemmtilegust, þegar hún hlær °g skín í hvítar tennurnar. — Hjördís, segir hann. En þelta segir hann svo lágl og vandræðalega, að hann þagnar. Hjördís verður líka alvarleg. Hún líl- ur til hans og roðnar. Það er eins og hún sjái það nú fyrst, að þetta er Áki. Svo hnykkir hún til höfðinu og hlær aftur. — Komdu, við skulum koma inn lil þeirra hinna, segir hún og tekur undir handlegginn á Áka og leiðir hann inn ganginn. Inni fyrir mætir þeim sjón, svo að þau gleyma öllu öðru. Félagar þeirra sitja í hring á gólfinu með kaffibolla fyrir framan sig og í miðju er stafli af vínarhrauðum á nokkrum plankaendum. Á ryðguðu eldavélinni sýður í katlin- um. Sigríður og Sveinn hlaupa um og eru rjóð í kinnum. Sveinn bíður þeim Áka og Hjördísi sæti í hringnum. Hann hið- ur þau að vera glöð og njóta veiting- anna. Gestgjafarnir eru glaðir og við- kunnanlegir, — en út undir sig. Þessa veizlu höfðu þau útbúið án þess að neinn vissi. Enginn hafði vitað neitt, fyrr en kaffikannan stóð á ofninum og vínarbrauðið var á gólfinu. —7 Svona viljum við liafa það núna, segja þau. — Stólar, borð og dúkar mega bíða þar til á vígsluhátíðinni. Svo verður Sveinn hátíðlegur, því að það þarf að segja dálílið meira í kvöld. — Við verðum að gera eitthvað, því að Áki hefur gert svo mikið fyrir okk- ur. —- Gefum Áka ferfalt húrra! Hann lyftir upp hendinni og byrjar um leið. Allir standa upp. Enginn vill láta sig vanta, því að þeim finnst Áki eiga skilið að fá níu til tíu húrra. Það er ekki daglega, að nokkur fær slíka hyll- ingu. Framh. E. Sig. jiýildi. VORIÐ 179

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.