Vorið - 01.12.1967, Side 42
SKULDUGI ÞJÓNNINN
EFTIR DORO BJELLAND
Leíkendur: Konungurinn — Jónatan
þjónn — Miriam — Aron — 1. þjón-
ustustúlka — 2. þjónustustálka.
1 hásœtissalnum. — 1. atriði:
KONUNGURINN: Þjónn, færið mér
lista yfir þá, sem skulda mér fé.
ÞJÓNNINN: Já, herra. Það skal gjört.
(Sækir skuldalistann og fær konung-
inum með djúpri hneigingu.)
KONUNGURINN (les): Hvað er þetta
Jónatan, þjónn minn skuldar mér 40
milljónir króna? Látið hann koma
liingað inn.
ÞJÓNNINN: Já, herra. Það skal gjört.
(Fer út og kemur skömmu síðar inn
með Jónatan, sem fleygir sér á góifið
fyrir framan hásæti konungsins).
JÓNATAN: Hvers óskar herra minn,
konungurinn?
KONUNGURINN: Þú skuldar mér 40
milljónir króna. Greiddu skuld þína.
JÓNATAN: Ég á enga peninga til að
greiða hana með.
KONUNGURINN: Ef þú greiðir ekki
skuld þína, mun ég selja bæði þig,
konu þína, börn ykkar og allt það,
sem þú átt til þess að fá skuld þína
greidda.
JÓNATAN (kveinkar sér og barmar):
Herra konunugur, sýndu mér misk-
unn. Hafið hiðlund með mér. Eg lofa
að greiða þér alla skuldina.
KONUNGURINN: Stattu upp, þjónn
minn. Vegna þess að þú iðrast, skal
ég gefa þér upp alla skuldina. Gakk
burt og skuldaðu ekki framar.
JÓNATAN: Herra konungur! Ég íæri
þér þúsund þakkir! Hjarta þitt er
gott. Guð blessi þig!
Að svo mæltu hneigir hann sig djúpt
og gengur út.
Fyrir u-tan hús Jónatans. — 2. atriði '-
JÓNATAN: Miriam! Ég hef gleðifréttir
að færa þér. Konungurinn okkar hefur
þurrkað út allt, sem við skuldum hon-
um. Nú skuldum við engum neitt!
MARIAM (glöð): Guð veri lofaður!
Nú þurfum við ekki lengur að óttast
að við missum heimili okkar.
JÓNATAN: Er það ekki dásamlegt,
vina mín? En bíddu nú við. Þarna er
hann Aron, sem skuldar mér 70 krom
ur. Hann skal sannarlega verða að
greiða þær. (Hann gengur til AronS
og tekur fyrir kverkar honum).
JÓNATAN: Greddu það, sem þú skuld-
ar mér!
ARON (fellur á kné): Hafðu biðlund,
kæri félagi. Ég skal greiða það allt,
þegar ég get.
JÓNATAN: Ég hef sýnt þér þolinmæði
nógu lengi. En ef þú getur ekki greid
skuld þína nú, verður þú að fara 1
fangelsi. Komdu með mér!
184 VORIÐ