Vorið - 01.12.1967, Síða 46
EVA: Ég hef lesið urn skip, sem strand-
aði, af því að stýrimaðurinn var
drukkinn.
MARTEINN: Flugmenn hafa auðvitað
ekki heldur leyfi til að neyta áfengis?
KENNARINN: Nei, ]>að mega þeir ekki.
Flugmaður verður að hafa skýra hugs-
un til þess að geta gætt allra hinna
nákvæmu tækja í flugvélinni.
ÓLAFUR: Ég sá einu sinni lögregluna
taka mann, sem hafði ekið bíl. Það
var brennivínsþefur af honum, og
þeir sögðu að lögreglan ællaði að láta
gera á honum blóðrannsókn.
MARTEINN: Já, hvað er annars blóð-
rannsókn?
KENNARINN: Þið vitið, að áfengið
fer í blóðið og flyzl með því um allan
líkamann. Ef bílstjóri er grunaður um
að hafa neytt áfengis, stendur í lögun-
um, að læknir geti gert á honum blóð-
rannsókn. Læknirinn tekur úr honum
ofurlítið blóð og rannsakar það. —
Maður, sem er mikið drukkinn, getur
haft tvo eða þrjá af þúsundi (%<?) af
áfengi í blóðinu. Það er, að í hverj-
um lítra blóðs eru tvö til þrjú grömm
af áfengi.
MARTEINN: Eru takmörkin 0,5 af þús-
undi fyrir bílstjóra?
KENNARINN: Jú, það varðar við log
að aka farartæki, ef maðurinn hefur
0.5 af þúsundi eða meira í blóðinu.
ÁSLAUG: Verða menn varir við, að sá,
sem hefur þetla áfengismagn í blóð-
inu, sé reikull í gangi eða heyrist a
mæli hans?
KENNARINN: Nei, það verða menn
ekki varir við. En þó er hann ekki fær
um að aka bíl, og það er hætlulegt, að
hann fari út í umferðina. Þess vegna
eru í lögunum viðurlög við því að
aka farartækjum undir áhrifum áfeng-
is.
EVA: Hve mikið áfengismagn í blóð-
inu hefur maður, sem er mikið drukk-
inn?
KENNARINN: Verði áfengismagnið
yfir fjóra af þúsundi (4%c), er það
lífshættulegt. Það kemur fyrir, að fólk
drekkur sig í hel. Þá liefur áfengis-
eitrið lamað taugastöðvarnar, sem
stjórna andardrættinum, svo að inað-
urinn kafnar.
ÓLAFUR: Stafa öll bílsys af áfengis-
nautn?
188 VORIÐ