Vorið - 01.12.1967, Síða 48

Vorið - 01.12.1967, Síða 48
HVAÐ GERIST Á EINUM DEGI í NOREGI? 65 hjónavígslur. 173 börn fæðast. 101 deyr. 99.000 ferðasf með jórnbrautarlesf- um. 20 lenda í umferðarslysum. 1 deyr í umferðarslysi. 84 blöð koma út. 145 tonn eyðast af blaðapappír. 22.000 bækur eru lónaðar úr bóka- söfnum. 858.630 bréf eru póstlögð. 13 manns lenda í fangelsi. 21 húsbruni verður. 3.870 tonn af mjólk eru afhent i rnjólkursamlögin. 4.400 tonn af fiski koma ó land. 15.6 tonn af vindlingum er brennt. 244.000 lítrar af öli eru drukknir. 25.000 litrar af sterkum drykkjum. 12.300 lítrar af léttari vínum. Fólk, sem drekkur þetta, fremur 87 meiri og minni afbrot. Hvernig skyldi þessi listi líta út hér ó landi? GAMLIR LEIKIR AÐ JÁRNA RIMBU. Hér er lýsing á gömlum leik, sem mörgum þótti erfiður og þurfti talsverða æfingu til þess að geta leikið hann. Reipi er strengt ó milli tveggja stólpa og á að vera dólítið bil undir það. Rimbujórn- arinn tekur prik í hönd sér, sezt ó reipið langsetis og krossleggur fæturna upp ó því. Fyrst hefur hann prikið í hægri hendi, slær því upp í vinstri ilina og segir um leið: „Geng ég í haga." Því næst slær hann annað högg og segir: „Tek ég meri mína". Við þriðja höggið segir hann: „Teymi ég hana í hlaðið," en „Tólga ég hófinn" við fjórða höggið. Síðan segir hann: „Rek ég einn nagia" o. s. frv. upp að tuttugu og fjórum og slær eitt högg við hvern nagla. Ekki er allt búið enn. Rimbujórnarinn heldur ófram og segir: „Legg ég á hnakinn", og um leið tekur hann prikið úr hægri hendi með hinni vinstri og YFIR reipið og hné sér. Að því búnu bregður hann prikinu UNDIR reipið, grípur það aftur með hægri hendi og segir um leið: „Spenni ég gjörðina". Seinast segir hann: „Spenni ég reiðann", og bregður jafn- framt prikinu aftur fyrir sig með hægri hendinni og grípur það með þeirri vinstri. - Ef þetta gengur allt slysalaust, þá hefur hann unnið þrautina, en velti hann út af reipinu, ofan á gólf, áður en hann hefur spennt reiðann, þá er rimbutruntan ójárnuð eftir sem áður. Þess verður að geta, að rimbujárnarinn má stinga prikinu í gólfið sér til stuðnings svo oft sem hann vill, en aldrei má hann taka fæturna af reipinu, og þvi síður rétta úr þeim. Fleiri frásagnir eru af þessum leik, og er hann á sumum stöðum kallaður að járna pertu I staðinn fyrir rimbu. 190 VORIÐ

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.