Vorið - 01.08.1971, Blaðsíða 9

Vorið - 01.08.1971, Blaðsíða 9
fljótt, það er komixin snjór á fjöllin, og ég vil ekki láta Botnu deyja úti. Mamma: Kindurnar verða sóttar, börn- in mín. En nú skuluð þið vera fljót á fætur. Börnin: Já, við skulum reyna okkur. 3. ÞÁTTUR Mamma: Ernð þið nú búin að leika ykkur vel, börnin mín ? Ella: Já, við fórnm í skollablindu. Siggi: Já, og í útilegumannaleik. Bína: Og í fuglaleik. Steini: Já, og marga fleiri leiki, það hefir verið dæmalaust gaman í dag. Mamma: Þið hafið öll verið fjarska góð börn í sumar. Þið hafið öll hjálpað til við heyskapinn eftir mætti. Nú fer veturinn að byrja, og þá fáið þið nægan tíma til að lesa. Pabbi ykkar kom með nýjar bækur úr kaupstaðnum, sem við ætlum að gefa ykkur. Bína: O, Rauðhetta í fallegu bandi. Steini: Nei, sjáið. Nonni og Manni. Siggi: Og Mjallhvít með mörgum myndum. Ella: Ó, lítið á. Róbínson, Róbínson. Öll börnin (Jcyssa mömmu sína); Þakka þér fyrir, mamma mín. Mamma: Njótið bókanna vei. Geymið þær vandlega og látið engan blett sjást á þeim. Því að þið munuð vilja lesa þær oft og mörgum sinnum. Öll börnin: Já, ég skal fara vel með mína bók. Eg skal aldrei brjóta neitt horn á neinu blaði, eða láta nokkurn blett sjást. 4. ÞÁTTUR Mamma: Bráðum er slægjudagurinn á enda. Þið hafið skemmt ykkur vel. Öll börnin: Já, fjarska vel, mamma. Mamma: Nú skulum við hugsa um allt, sem við eigum að vera þakklát fyrir. Iíér er blýantur og blað handa ykkur. Skrif- ið nú í röð og tölusetjið allt, sem við eigum að vera þakklát fyrir. Siggi: Má ég skrifa allt, sem ég man! Mamma: Já, ég ætla að sjá, hver býr til lengstan og fallegastan lista á 15 mín- útum. Byrjið. — Mamma: Nú eru 15 mínútur á enda. Eruð þið nú búin? Sum börnin: Nei, ekki alveg. Mamma: Yiltu lesa þinn lista, Steini. Steini: Já, mamma. Fyrst vil ég þakka fyrir heimilið mitt, pabba og mömmu og systkini mín, bæinn og fötin, sem skýla mér. Matinn, sem ég vex af. Svo taldi ég allt, sem ég á: gullin mín, kindina, fol- aldið. Næst taldi ég sveitina mína fal- legu fjöllin, engið, ána og vatnið. Næst nefndi ég ísland, og að við erum frjáls þjóð, svo sjóinn í kring um landið, og allt, sem við fáum úr honum af auðæf- um. Loks vil ég þakka Guði fyrir augun, sem hann hefur gefið mér, til þess að sjá, hvað allt er fallegt, og eyrun til að heyra með. Seinast þakka ég Guði fyrir, að hann hefur gefið mér góða heilsu og vit til að fara vel með allar gjafir hans. Þetta er tuttugu og eitt, mamma mín. Bína: Já, en ég hefi þrjátíu og sjö. Siggi: Ég hefi átján. Ella: Ég hefi fimmtán. Ég þakkaði fyrir brúðuna mína og að henni Bíldu minni batnaði. Mamma: Nú er dagurinn búinn, nú förum við öll að sofa. Guð gefi ykkur góðar nætur. Börnin: Góðar nætur, mamma mín. Vorið 117

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.