Vorið - 01.08.1971, Side 12

Vorið - 01.08.1971, Side 12
BJÖRN RONGEN: KÍNVERJINN jónIna steinþórsdóttir þýddi Það var mikið um dýrðir, þegar Óli byrjaði í skólanum. Hann eignaðist nýja skólatösku, jafnvel þótt Andrés hefði gjarnan viljað fá hana vegna þess, að hann var ári eldri. „Þú ert syo lítill, þér ætti að nægja mín taska,“ sagði Andrés. „Já, vissulega gæti Óli...“ „Nei,“ sagði pabbi. „Þegar þú byrjaðir í skóla, fékkst þú nýja tösku. Nú er Óli líka að byrja og þess vegna fær hann líka nýja tösku. Það á ekki að gera upp á milli bræðra, er það?“ „Alveg rétt,“ sagði Óli. „Tja, en hann er minni,“ sagði Andrés og varð fýldur á svipinn. Honum fannst nýja taskan hans Óla fallegri en sín, sem var farin að láta á sjá og með stórri blek- klessu framan á. Dagarnir liðu. Óla fannst gaman í skól- anum. Hann vissi ýmislegt, því hann hafði fylgzt með Andrési síðastliðinn vetur, þeg- ar hann var að læra lexíurnar sínar. Hann var greindur, svo hann mundi bæði tölur og bókstafi. Pabbi og mamma spurðu hann hvernig hann kynni við sig, og Óli svar- aði: — Jú-ú, það væri gaman. En mörg börnin voru á eftir, þau þekktu ekki einu sinni stafina. Svo slæmt var það. „En þú stríðir þeim samt ekki á því?“ spurði mamma. „Nei,“ svaraði ÓIi. „Þau læra þetta fljótlega.“ En dag nokkurn, þegar hann kom heim úr skólanum, fleygði hann töskunni frá sér, eins og hann væri reiður. Mamma sagði ekkert, en þegar pabbi kom heiin, spurði hann: „Jæja, Óli minn, gekk eitthvað illa í skólanum í dag? Yiltu að við hjálpum þér með heimaverkefnin ?“ „Nei,“ sagði Óli. „Þú veizt það, að Óla hefur aldrei ver- ið sagt til,“ sagði mamma. „Hann vill bjarga sér sjálfur, alveg eins og Andrés. En samt er eitthvað að, Óli minn, er það ekki?“ Eftir mikla eftirgangsmuni gátu þau lokkað út úr honum, að börnin höfðu upp- nefnt hann og það var ekki fallegt. Hvað höfðu þau kallað hann ? 0, þau höfðu kallað hann Kínverjann! Hver hafði fundið upp á því, hann var enginn Kín- verji, eða hvað ? „Nei,“ sagði Óli. „Ég er það alls ekki. Og það hefði ekki verið neitt við það að athuga að vera kallaður Kínverji, ef ég hefði verið fæddur í Kína, er það?“ „Nei, þetta er alveg rétt,“ sagði pabbi. „Kínverji er jafngóður og Norðmaður, að- eins fæddur í öðru landi.“ Óli varð hugsi um stund. Hann vildi ekki heldur klaga neinn. En mömmu og pabba gat hann sagt frá öllti. Hann leit upp — gott að Andrés var ekki inni, svo hann gæti heyrt það. „Það var kennarinn,“ sagði hann. „Kennarinn! Kallaði kennarinn þig Kínverja? Hvað átti liann við með því?“ „Veit það ekki!“ „Jæja,“ sagði pabbi, og „jæja“, sagði mamma líka, og svo horfðu þau hvort á 120 VORIÐ

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.